Hoppa yfir valmynd
12. júní 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Húsnæði leigt vegna sjúkraflutninga í Árnessýslu

Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Björgunarmiðstöð Árborgar hafa gert samning um leigu húsnæðis, sem er í eigu Björgunarmiðstöðvarinnar á Selfossi. Í húsnæðinu verður aðstaða fyrir sjúkrabifreiðar þær, sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands rekur vegna sjúkraflutninga í Árnessýslu og öll aðstaða sem tengist þeirri starfsemi, en heilbrigðisstofnunin tók í ársbyrjun 2006 við sjúkraflutningum í Árnessýslu. Hafa flutningarnir aukist verulega undanfarin misseri. Um er að ræða rúmlega 360 fermetra húsnæðisins og aðgang að sameign. Gildistími samningsins er 25 ár, eða frá 17. júní 2008 til 17. júní 2033. Samningurinn var staðfestur með undirskrift Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra og Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, í hinni nýju Björgunarmiðstöð á Selfossi í morgun.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum