Hoppa yfir valmynd
23. október 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisstofnun Þingeyinga til fyrirmyndar í vinnuvernd

Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þykir til fyrirmyndar á sviði vinnuverndar og fékk af því tilefni viðurkenningu Vinnueftirlits ríkisins.

Vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar árið 2008 stendur nú yfir og af því tilefni hlaut Heilbrigðisstofnun Þingeyinga (HÞ) viðurkenningu frá Vinnueftirlitinu fyrir að vera til fyrirmyndar á sviði vinnuverndar og hafa markvisst unnið að forvörnum. Í vinnuverndarvikunni er sjónum beint að mikilvægi þess að gert sé áhættumat fyrir alla vinnustaði. Áhættumatið á að styrkja vinnuverndarstarfið innan fyrirtækjanna með skýrri ábyrgð og virkni atvinnurekenda, stjórnenda og kerfisbundinni þátttöku starfsmannanna sjálfra með hjálp öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða. 

Á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga starfa um 160 manns. Undir stofnunina heyrir sjúkrahúsið á Húsavík og sex heilsugæslustöðvar: á Húsavík, Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Reykjahlíð og Laugum.   Á stofnuninni starfar hópur fólks sem hefur lagt sitt af mörkum í vinnuverndarstarfi. Hópurinn hefur undir stjórn öryggisnefndar unnið að gerð áhættumats fyrir stofnunina, tekið þátt í ýmsum könnunum á starfsumhverfi, komið með ábendingar og tilllögur til úrbóta á vinnuumhverfi og unnið markvisst að þeim.  Að mati Vinnueftirlitsins er vinnuverndarstarf Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga til mikillar fyrirmyndar og var því ákveðið að veita fyrirtækinu viðurkenningu. Á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga ríkir mikil ánægja meðal starfsmanna með viðurkenninguna. Það er mikils virði fyrir HÞ að starfsmenn hafa með virkri þátttöku náð að skapa gott vinnuumhverfi á stofnuninni þar sem almenn starfsánægja er við völd.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum