Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigð sál í hraustum líkama

Heilbrigðisráðherra kynnir heilsustefnu
Guðlaugur Þór Þórðarson kynnir heilsustefnu á Hótel Hilton Nordica þann 18. nóvember 2008

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnti í dag heilsustefnu sína á fundi þar sem voru saman komnir flestir þeir sem taka þátt í að hrinda stefnunni í framkvæmd.

Heilbrigðisráðherra sagði þegar hann kynnti heilsustefnuna, að hún væri liður í því að geta veitt heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Snar þáttur í því væri að leggja stóraukna áherslu á forvarnir á öllum sviðum og stuðla að heilbrigðari lífsháttum einstaklinganna. Sagði ráðherra það brýnt að skapa þjóðfélag þar sem fólk ætti þess auðveldlega kost að taka heilsusamlegar ákvarðanir, einkum með geðrækt, næringu og hreyfingu í huga.

Samfara kynningunni sem var á heilsustefnunni í dag skuldbundu fjölmargir aðilar sig, með undirritun sérstakrar yfirlýsingar, að taka virkan þátt í að hrinda stefnunni í framkvæmd..

Félagssamtök, sveitarfélög, áhugahópar og fleiri rituðu undir yfirlýsinguna á fundinum í dag. Það hefur enda verið lögð á það rík áhersla við undirbúning og útfærslu heilsustefnunnar, að stefna saman fjölmörgum aðilum til að ná breiðri samstöðu um markmið og leiðir.

Heilbrigðisráðherra lagði áherslu á mikilvægt framlag þriðja geirans til almannaheilla í þessu sambandi. Hann sagði þriðja geirann samanstanda af ýmsum frjálsum félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum, sem tilheyrðu hvorki einkageiranum, þar sem fyrirtæki eru rekin með hagnað að leiðarljósi, né opinberum rekstri. Innan þriðja geirans störfuðu fjölmörg samtök og félög sem sinntu afar mikilvægum verkefnum á sviði lýðheilsu- og heilbrigðismála. Markmið margra þeirra er að efla forvarnir eða að draga úr vanda einstaklinga vegna tímabundins eða varanlegs sjúkleika eða fötlunar. Sagði heilbrigðisráðherra að afar mikilvægt væri að sameina alla þá sem sinna forvörnum til að hrind í framkvæmd virkri heilsustefnu. – „Góð heilsa er mikilvæg undirstaða lífsgæða. Með samstilltu átaki getum við ekki aðeins bætt heilsufar þjóðarinnar heldur einnig orðið öðrum þjóðum fyrirmynd“, sagði heilbrigðisráðherra þegar hann kynnti stefnuna.




Myndir frá kynningu heilsustefnunnar

Heilbrigðisráðherra kynnir heilsustefnu Heilbrigðisráðherra svarar fyrirspurnum um heilsustefnu Gestir á kynningu um heilsustefnu

Dóra Guðrún kynnir vinnu við heilsustefnu

Frá kynningarfundi um heilsustefnu heilbrigðisráðherra Gestir á kynningu heilsustefnu heilbrigðisráðherra Héðinn Unnsteinsson, Inga Dóra Sigfúsdóttir og heilbrigðisráðherra á kynningu heilsustefnu Frá kynningarfundi um heilsustefnu




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum