Hoppa yfir valmynd
11. júní 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Skipulagi á Landspítala gjörbreytt

Nýtt skipurit Landspítala tók formlega gildi í dag, 11. júní 2009, með staðfestingu heilbrigðisráðuneytisins. Með nýju skipuriti eru boðleiðir styttar og stuðlað að dreifstýringu þannig að ákvarðanir um stjórnun standi nær skjólstæðingum spítalans. Sá hluti skipuritsins sem snýr að klínísku þjónustunni tók gildi 1. maí en stoðþjónustan bættist nú við. Með skipuritinu fylgdu ítarlegar skýringar þar sem gerð er grein fyrir helstu starfseiningum, stjórnunarstöðum og næstu verkefnum sem tengjast mótun stjórnskipulagsins.

Skipuritið og skýringarnar eru á nýjum upplýsingavef Landspítala www.landspitali.is



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum