Hoppa yfir valmynd
30. júní 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Vilja verja velferðarkerfið

Norrænir ráðherrar á Þingvöllum
Norrænu ráðherrarnir á Þingvöllum

Á tímum efnahagssamdráttar er eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda að draga úr atvinnuleysi og styrkja velferðarkerfið.

Þetta sjónarmið var norrænu félags- og heilbrigðisráðherrunum ofarlega í huga, þegar þeir ræddu afleiðingar efnahagssamdráttar á félags- og heilbrigðisþjónustu landanna, en þetta var megin þema ráðherrafundarins.

Fram kom t.d. hjá finnska heilbrigðisráðherranum og sænska félagsmálaráðherranum að afleiðingar atvinnuleysis hefðu orðið langvarandi í löndunum og sögðu það mikilvægt, að huga sérstaklega að atvinnustigi ungs fólks á krepputímum.

Norrænu ráðherrarnir skiptust á skoðunum um ástand mála í löndunum, sem öll glíma við afleiðingar efnahagssamdráttar sem þó er mismikill eftir löndum.

Stefán Ólafsson, prófessor, gerði á fundinum grein fyrir efnahagskreppunni á Íslandi og bar hana saman við annars vegar fyrri efnahagskreppur í landinu og þá kreppu sem reið yfir Finnland og Svíþjóð á tíunda áratugi liðinnar aldar.

Fjallaði Stefán sérstakleg um afleiðingar efnahagssamdráttar, þ.e. atvinnuleysi, skuldastöðu heimilanna, minnkandi ráðstöfunartekjur og hættuna á brottflutningi frá landinu. Í stuttu máli var niðurstaða Stefáns Ólafssonar sú, að líkur gætu bent til þess að efnahagslífið á Íslandi yrði hugsanlega fyrst til að rísa úr kreppunni sem nú ríður yfir. Líflegar umræður urðu á fundinum, en þeim stjórnaði Björg Eva Erlendsdóttir, fréttamaður.

Norrænu félags- og heilbrigðisráðherrarnir leggja áherslu á að efla samstarf sitt á sviði fyrirbyggjandi aðgerða á heilbrigðissviði og að huga sérstaklega að þjóðfélagshópum sem við þessar aðstæður eiga á hættu að lenda utanveltu í samfélaginu.

Á fundinum voru framtíðaráherslur samstarfsins á sviði velferðarmála ræddar og lögðu menn áherslu á að styrkja velferðarkerfin á tímum alþjóðavæðingar og vaxandi samkeppni á öllum sviðum.

Norræna velferðarstofnunin í Stokkhólmi var kynnt sérstaklega og var nýr forstöðumaður hennar kynntur, en löndin öll binda miklar vonir við starfsemi hinnar nýju stofnunar. Ákveðið var að fela háskólanum í Osló rekstur og eignarhald NIOM, stofnunar sem starfar á sviði tannlæknamála, áfangaskýrsla um samstarf á sviði áfengismála var lögð fram og ákveðið að fjalla reglulega um skaðsemi áfengis og þá fóru fram umræður um hugsanlegt samstarf á sviði rafrænna lyfseðla.

Á ráðherrafundinum var rætt um kosti og galla öflugra og víðtækara samstarfs í viðbúnaði við heimsinflúensu. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, gerði grein fyrir samstarfi landanna og sjónarmiðum þeim, sem íslensk sóttvarnayfirvöld hafa.

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, og Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, buðu til fundarins, en fimm starfsbræður þeirra annars staðar af Norðurlöndum sóttu fundinn, tveir frá Noregi, frá Svíþjóð, Finnlandi, og frá Færeyjum.

Ögmundur Jónasson ásamt embættismönnum á fundi Norrænu ráðherranna

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra ásamt embættismönnum heilbrigðisráðuneytisins



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum