Hoppa yfir valmynd
14. júlí 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Skrifstofustjóri skipaður

Skipaður hefur verið skrifstofustjóri fjármála- og rekstrarskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins.

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað Hafdísi Hrönn Ottósdóttur, skrifstofustjóra fjármála- og rekstrarskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins til fimm ára, frá 1. ágúst n.k. Embætti skrifstofustjóra var auglýst laust til umsóknar fyrr á árinu. Átta umsóknir bárust um embættið, tók einn umsókn sína aftur. Hafdís Hrönn Ottósdóttir er viðskiptafræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu af heilbrigðismálum og fjármálum heilbrigðisstofnana. Hún hefur starfað á Ríkisspítölum (nú Landspítala), hjá Tryggingastofnun ríkisins og í heilbrigðisráðuneytinu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum