Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Varað við notkun ljósabekkja

Geislavarnir ríkisins gera tillögu til heilbrigðisráðherra um hvernig bregðast má við nýjum upplýsingum um að notkun ljósbekkja valdi húðkrabbameini. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, óskaði í dag eftir að Geislavarnir ríkisins leggi fram tillögu til ráðuneytisins um hvernig brugðist skuli við niðurstöðum vísindarannsókna sem leitt hafa í ljós að ljósabekkir valda húðkrabbameini. Fram til þessa hefur verið talið að sterkar líkur séu á þessu en nú segjast vísindamenn á vegum alþjóðlegu krabbameinsmiðstöðvarinnar IARC hafa sannað að svo sé. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segir að þessar niðurstöður vísindamannanna beri að taka alvarlega. Þess má geta að reglur um ljósabekki á Íslandi eru sambærilegar við það sem tíðkast á Norðurlöndum en þar hefur verið rætt um að takamarka aðgengi yngsta aldurshópsins að ljósabekkjum á opinberum stöðum, en ungt fólk er talið í mestri hættu að fá húðkrabbamein vegna ljósanotkunar. Heilbrigðisráherra segir að niðurstöður vísindamanna eigi að verða okkur öllum til viðvörunar og að hann beini því til allra þeirra sem reka ljósastofur að gera fólki grein fyrir þeim hættum sem ljósanotkun fylgir.
Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á umfjöllun um þetta efni á heimasíðu Geislavarna ríkisins: http://www.gr.is/frettir/nr/398

Krabbameinsrannsóknastöðin IARC eru hluti af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og það voru vísindamenn frá níu löndum, sem birtu niðurstöður rannsókna sinna í nýjast hefti læknatímaritsins Lancet Oncology. Megin niðurstaða vísindamannanna er að hættan á því að fá húðkrabbamein við notkun ljósabekkja getur aukist um allt að því 75% hjá þeim sem nota bekkina reglulega og eru yngri en 30 ára. Nokkrar þjóðir banna ungmennum undir 18 ára nú þegar að nota ljósabekki. Í þeim hópi eru Þjóðverjar, Frakkar, Skotar og Ástralir.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum