Hoppa yfir valmynd
28. september 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Pund manna þyngist

Íslendingar eru að þyngjast. Þetta er ein niðurstaðna skýrslu sem Lýðheilsustöð kynnti fyrir blaðamönnum og fagfólki í dag. Í skýrslu Lýðheilsustöðvar þar sem greint er frá rannsókninni Líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga frá 1990-2007 er holdafar fólks á Íslandi borið saman eftir árum frá 1990 til ársins 2007. Gögnin byggjast á upplýsingum um hæð og þyngd úr sex könnunum sem lagðar voru fyrir fullorðna á landinu öllu á tímabilinu. Þátttakendur voru á aldrinum 18 til 79 ára og voru þeir valdir með tilviljunarkenndu úrtaki úr þjóðskrá. Niðurstöðurnar sýna umtalsverða breytingu á líkamsþyngdarstuðli Íslendinga, sérstaklega á meðal karla.

Á kynningarfundinum reyndu sérfræðingar að skýra af hverju pund Íslendinga þyngist. Skýringarnar segja menn flókið samspil kyrrsetu, hreyfingaleysis, ofáts, óhollustu, óreglulegra matmálstíma og vaxandi áfengisneyslu.

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, sagði á kynningarfundinum að afar brýnt væri að setja offituvandann á dagskrá og hvetja einstaklinga, skóla, vinnustaði, og heilbrigðisstarfsmenn til að gefa því gaum hvert stefndi. Hann hvatti til almennrar umræðu um hollustu og aukna hreyfingu og greindi frá því að á næsta ári hygðist hann halda eins konar heilbrigðisþing þar sem lýðheilsa og forvarnir yrðu settar á dagskrá, offita, reykingar og forvarnir sem einstaklingar og samfélag geta beitt sér fyrir til gæslu heilsunnar.

Sjá nánar á vef Lýðheilsustöðvar



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum