Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra ráðin

Lísa Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Lísa Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hefur ráðið Lísu Kristjánsdóttur sem aðstoðarmann sinn í heilbrigðisráðuneytinu.

Lísa Kristjánsdóttir tók til starfa í heilbrigðisráðuneytinu í dag. Lísa Kristjánsdóttir hefur um langt árabil starfað sem verkstjóri við gerð íslenskra kvikmynda, sinnt skrifstofustjórn og hefur undanfarið starfað sem viðburðarstjóri og almannatengill hjá bókaútgáfunni Bjarti og Veröld. Lísa hefur tekið virkan þátt í stjórnmálum og var til dæmis kosningastjóri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fyrir alþingiskosningarnar 2007 og 2009.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum