Hoppa yfir valmynd
21. desember 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Landlæknisembættið metur álagið - LSH betur mannaður en áður

Landlæknisembættið hyggst á næstunni kanna ítarlega hvort álag á starfsmenn Landspítala hafi aukist frá því sem áður var og skila heilbrigðisráðherra greinargerð um málið. Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, óskaði eftir því við Landlæknisembættið að það kannaði sérstaklega hvort álag á starfsmenn Landspítala hafi aukist eins og Ungliðadeild sjúkraliða hélt fram, og ógnaði öryggi sjúklinga. Greindi ráðherra sjúkraliðum frá viðbrögðum sínum við ályktun félagsins á fundi, sem hún átti með fulltrúum félagsins og ungliðadeild. Í bréfi Landlæknisembættisins til ráðherra kemur fram að embættið hygðist hafa „á næstu vikum og mánuðum þétt samstarf við samtök sjúkraliða.“ Í bréfinu til ráðherra segir ennfremur: „Þegar málin fara að skýrast betur mun Landlæknisembættið skrifa greinargerð um málið til heilbrigðisráðherra.“

Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, hefur látið hafa eftir sér af þessu tilefni að spítalinn sé betur mannaður nú en undanfarin ár, sjúklingum sé sinnt meira en í nóvember í fyrra og fleiri séu starfandi á spítalanum. Anna Stefánsdóttir segir ma. í samtali við Morgunblaðið að fleiri hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar séu starfandi á bráðadeildum spítalans en undanfarin tvö ár og að samkvæmt könnun meðal starfsmanna telji þeir álag nú ekki vera þyngra en árið 2006.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum