Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustunni árið 2010

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki vegna gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustunni árið 2010 í samræmi við stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda í gæðamálum til ársins 2010.


Í styrkumsókn þarf markmið verkefnis að koma fram, framkvæmdaáætlun og hvernig nýta má niðurstöður til að bæta þjónustuna. Sótt skal um í nafni einstakra stofnana og/eða starfseininga.

Afgreiðsla styrkja til gæðaverkefna fyrir árið 2010 eru rafræn. Umsækjendur um styrki til gæðaverkefna skrá sig inn á Umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsokn.stjr.is á kennitölu umsækjanda (ekki á kennitölu stofnunar).  Umsækjandi velur lykilorð og verða skráningarupplýsingar og staðfesting á að umsókn hafi verið móttekin sendar á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.  Lykilorði, netfangi og öðrum persónuupplýsingum má síðan breyta undir flipanum Mínar stillingar.

Umsækjendur velja heilbrigðisráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir styrki til gæðaverkefna. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta vistað umsókn áður en hún er send og nálgast hana aftur undir flipanum Mín mál.

Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2010.

Nánari upplýsingar um styrki til gæðaverkefna veitir Ásthildur Knútsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu í síma 545 8700 eða í tölvupósti á [email protected].


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum