Hoppa yfir valmynd
19. maí 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Öllum sem þurfa lyf við þunglyndi áfram tryggð lyf

Tryggt er að enginn sjúklingur sem nýtur lyfjameðferðar vegna þunglyndis verður án lyfja í kjölfar nýrrar reglugerðar um breytta greiðsluþátttöku vegna þunglyndislyfja.
Frumtök, samtök frumlyfjaframleiðenda, hafa sent frá sér tilkynningu vegna reglugerðarinnar. Þar er gengið lengra í fullyrðingum og hræðsluáróðri gagnvart viðkvæmum sjúklingahópi en hægt er að láta ósvarað. °

Reglugerðin hefur í för með sér að frá og með 1. júní næstkomandi verða aðeins hagkvæmustu þunglyndislyfin áfram niðurgreidd. Lyfseðlar sem þegar hafa verið gefnir út og eru fjölnota, halda gildi sínu til 1.október 2010. Markmiðið með breytingunum er að draga úr notkun dýrari þunglyndislyfja og minnka þannig kostnað ríkisins vegna lyfja um 200-300 milljónir á ári.

Ekki er rétt, eins og haldið er fram í tilkynningu Frumtaka, að um það bil 14 þúsund einstaklingar verði „lyfjalausir” við gildistöku reglugerðarinnar. Allir sjúklingar haldnir þunglyndi fá eins og áður lyf við sjúkdómi sínum. Ef hagkvæmustu lyfin gagnast einhverra hluta vegna ekki viðkomandi sjúklingi sér læknir til þess að sjúklingnum verði tryggt lyfjaskírteini og þannig niðurgreiðsla vegna dýrari lyfja, sem sjúklingurinn þarf á að halda.

Hvergi er notkun og kostnaður vegna þunglyndislyfja meiri en á Íslandi. Þá er notkun dýrari þunglyndislyfja hlutfallslega meiri hér á landi en á Norðurlöndunum. Sem dæmi er notkun á algengasta þunglyndislyfinu, Cipralex, 24% af heildarnotkun þunglyndislyfja á Íslandi en aðeins 7% í Svíþjóð.
Notkun þunglyndislyfsins, Oropram, sem er mun ódýrara, er 9% af heildarnotkun þunglyndislyfja hér á landi en 32% í Svíþjóð.

Umræddri reglugerð er ætlað að spara verulegar upphæðir fyrir þjóðarbúið um leið og öryggi sjúklinga er tryggt. Sama leið hefur verið farin í öðrum lyfjaflokkum og reynst vel. Má það ekki síst þakka skilningi og góðu samstarfi við lækna og samtök sjúklinga.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum