Hoppa yfir valmynd
1. júní 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Hækkun hjá sérfræðilæknum

1,9% samningsbundin hækkun sérfræðilækniskostnaðar kemur til framkvæmda í dag. Undanfarið hefur heilbrigðisráðuneytið átt í viðræðum við Læknafélag Reykjavíkur um að félagið taki þátt í því með ráðuneytinu að lækka lækniskostnað sjúkratrygginga, en samningar um slíkt hafa ekki tekist.

Í fjárlögum 2010 er gert ráð fyrir 1300 milljón króna lækkun á lækniskostnaðarliðnum sem að stærstum hluta er þjónusta sérfræðilækna og rannsóknir. Auk þess er við að etja 700 milljóna króna halla frá fyrra ári.

Farið var fram á samstarf um ýmsar aðgerðir sem ætlað var að lækka kostnað, þar á meðal 10% lækkun einingaverðs. Læknafélagið samþykkti viðræður um niðurskurð á kostnaði við sérfræðilæknaþjónustu. Jafnframt var samþykkt að meðan viðræður stæðu yfir yrði frestað um tvo mánuði 1,9% hækkun sem átti að koma til framkvæmda 1. apríl s.l.

Læknafélag Reykjavíkur taldi þær tillögur sem heilbrigðisráðuneytið lagði fram í megindráttum óaðgengilegar.

Hækkunin hefur þau áhrif að hlutur sjúklinga hækkar að meðaltali um 1,2%. Þó er hækkunin nokkuð minni hjá börnum, öldruðum og öryrkjum.

Heilbrigðisráðuneytið mun leita annarra leiða til að draga úr kostnaði vegna sérfræðiþjónustu og væntir þess að unnt verði að hafa samráð við sérfræðilækna um útfærslu þeirra aðgerða.

Þess má geta að samningur sérfræðilækna sem gilti til 31. mars 2010 var framlengdur til 31. mars 2011 gegn því að sérfræðilæknar féllu frá umsaminni 9% hækkun. Jafnframt var heildarafsláttur næsta uppgjörstímabils á undan felldur niður og lægri þrep í mánaðarlegum einstaklingsbundnum afslætti afnumin.

Komugjöld til klínískra sérfræðilækna (excel skjal tekið af vef Sjúkratrygginga Íslands - opnast í nýjum glugga)

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum