Hoppa yfir valmynd
18. júní 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Biðtími eftir hjartaaðgerðum styttist

Meðalbiðtími eftir hjartaaðgerðum hefur ekki verið styttri í fimm ár, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Í greinargerð LSH vegna hjartaaðgerða kemur fram að biðtími eftir aðgerðum í ár er 1-2 mánuðir, óháð aðgerð.

Meðalbiðtími eftir hjartaaðgerðum á árunum 2005-2007 var 3-4 mánuðir að vetri en 4-5 mánuðir að sumri. Árið 2008 var meðalbiðtími 5-6 mánuðir eftir hjartalokuaðgerð, en 3-4 mánuðir eftir kransæðaaðgerð. Í fyrra var meðalbiðtíminn 4-5 mánuðir vegna hjartalokuaðgerða og 2-3 mánuðir vegna kransæðaaðgerða. Öll árin hefur áætlaður biðtími heldur lengst yfir sumarmánuðina, en í gegnum tíðina hefur biðtími verið lengstur eftir hjartalokuaðgerð sem ekki er flokkuð í forgangi.

Í byrjun september 2008 voru alls 64 einstaklingar á biðlista eftir hjartaaðgerð. Á haustmánuðum ársins 2008 var gert átak og hjartaaðgerðum fjölgað upp í allt að átta aðgerðir á viku. 1. desember 2008 hafði fækkað um næstum helming á biðlistanum.

Í greinargerð Landspítala segir að markmiðið sé að biðtími eftir hjartaskurðaðgerðum sé sem stystur. Að öðru leyti sé raðað í aðgerðir með þeim hætti að sjúklingar sem ekki þurfi forgang bíði aldrei lengur en 3 mánuði. Sjúklingar sem þurfi forgang en séu ekki inniliggjandi bíði mest í 4 vikur og inniliggjandi sjúklingar, sem þurfi forgang, bíði ekki lengur en 1-2 vikur eftir aðgerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum