Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Staða forstjóra Landspítala auglýst laus til umsóknar

Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.

Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús.  Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins.  Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu.  Á Landspítala starfa á fimmta þúsund starfsmenn og er spítalinn stærsti vinnustaður á Íslandi.

Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur.  Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir og á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.  Forstjóri ræður aðra starfsmenn spítalans. Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist honum í starfi og búa yfir reynslu af rekstri og stjórnun.  Gerð er krafa um mikla samskipta- og leiðtogahæfileika.  

Hæfni umsækjenda verður metin af þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Skipað er í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. október 2010. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um embættið. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.

Upplýsingar um starfið veita Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri ([email protected]) og Sigurjón Ingi Haraldsson, skrifstofustjóri ([email protected]).

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil sendist heilbrigðisráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík eða á [email protected] eigi síðar en 30. júlí 2010.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. 

 

Auglýsing vegna starfsins á Starfatorgi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum