Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Lækkað viðbúnaðarstig vegna svínainflúensu

Viðbúnaðarstig hér á landi vegna heimsfaraldurs inflúensu (svínainflúensu) hefur verið lækkað frá hættustigi niður á óvissustig, að því er fram kemur á vef Landlæknisembættisins. Þetta er gert í kjölfar þess að í gær lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin því að faraldurinn væri genginn yfir og viðbúnaðarstig vegna hans yrði lækkað.

Jafnframt hvetur stofnunin til ýtrustu árvekni því reynslan hefur sýnt að heimsfaraldrar ganga yfir í síðari bylgjum sem erfitt er að spá fyrir um.

Vegna lækkunar viðbúnaðarstigs hér á landi verða engar sérstakar aðgerðir viðhafðar vegna svínainflúensunnar aðrar en þær að áfram verður fylgst með útbreiðslu og afleiðingum sýkinga af hennar völdum hér á landi og erlendis. Þetta er gert til þess að hægt verði að grípa til frekari ráðstafana með litlum fyrirvara ef þurfa þykir.

Í landinu er til nægt bóluefni sem hægt er að nota ef ástæða þykir til. Um 50% Íslendinga hafa verið bólusettir gegn svínainflúensu.

Fréttatilkynning sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum