Hoppa yfir valmynd
1. september 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Sett ráðuneytisstjóri til eins árs

Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, fer í eins árs námsleyfi frá og með 1. október næstkomandi. Guðríður Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra, hefur verið sett í embætti ráðuneytisstjóra til sama tíma.

Berglind var skipuð ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu haustið 2007. Guðríður hefur verið skrifstofustjóri skrifstofu laga og stjórnsýslu í ráðuneytinu í fjórtán ár, en hún hóf störf hjá ráðuneytinu árið 1996.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum