Hoppa yfir valmynd
15. október 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ráðstefnur um hlutastörf, jafnlaunamál og jafnrétti á vinnumarkaði 12. og 13. nóvember

Í nóvember verða haldnar tvær samliggjandi ráðstefnur um jafnlauna- og vinnumarkaðsmál. Norræna rannsóknarverkefninu Hlutastörf, kyn og og dreifing tekna (s. Deltid, kön och ekonomisk fördeling) lauk um mitt ár 2014 og verða niðurstöður þess kynntar á ráðstefnu um hlutastörf og áhrif þeirra á jafnrétti á vinnumarkaði þann 12. nóvember. Daginn eftir, þann 13. nóvember, mun norrænn starfshópur um launjafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði, í samstarfi við aðgerðahóp íslenskra stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti, halda ráðstefnu um jafnlaunamál og jafnrétti á vinnumarkaði.

Á ráðstefnunum munu margir erlendir og hérlendir sérfræðingar halda erindi og taka þátt í pallorðsumræðum um brennandi spurningar sem snúa að jafnrétti kvenna og karla á vinnumarkaði. Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar þann 13. nóvember eru dr. Daniela Bankier yfirmaður jafnréttismála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambansins og dr. Helga Aune, lögfræðingur og framkvæmdastjóri hjá PricewaterHouse Coopers í Noregi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum