Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Jafnrétti kynjanna í tölum

Jafnrétti í tölum
Jafnrétti í tölum

Skýrsla félags- og tryggingamálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála ásamt tölfræðilegum upplýsingum um jafnrétti kynjanna. Skýrslan var lögð fram á jafnréttisþingi sem haldið var í fyrsta sinn 16. janúar 2009.

Í skýrslunni koma meðal annars fram eftirfarandi upplýsingar:

  • Hlutur kvenna í nefndum innan Stjórnarráðsins hefur aukist hægum skrefum og var orðinn 36% árið 2007. Í þremur ráðuneytum eru hlutur kvenna 40% eða meira, í heilbrigðisráðuneyti, félags- og tryggingamálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti.
  • Skipting kynja meðal forstöðumanna ríkisstofnana var í janúar 2007 þannig að af 210 forstöðumönnum voru 162 þeirra karlar (77%) en 48 konur (23%).
  • Á Alþingi sitja konur í 37% þingsæta, af tólf ráðherrum eru fjórar konur, og konur fara með formennsku í fjórum af tólf fastanefndum þingsins.
  • Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2006 var hlutur kvenna í sveitarstjórnum tæp 36% sem var 4,8% aukning frá kosningunum 2002. Hæst var hlutfallið á höfuðborgarsvæðinu þar sem konur voru 40% kjörinna fulltrúa. Í september 2008 voru konur 28% starfandi bæjarstjóra, sveitarstjóra og oddvita á móti 72% karla.
  • Hlutur kvenna á íslenskum vinnumarkaði var tæplega 46% árið 2007. Af framkvæmdastjórum fyrirtækja á innlendum vinnumarkaði voru 19% þeirra konur á móti um 80% karla. Árið 2005 var þetta hlutfall 18% svo lítið hefur breyst til batnaðar. Samkvæmt upplýsingum um stjórnir 15 félaga í úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands árið 2007 sátu þrjár konur í þessum stjórnum á móti 80 körlum.
  • Árið 2007 var skoðað hlutfall kvenna í hópi framkvæmdastjóra hjá fyrirtækjum með 100 starfsmenn eða fleiri og voru konur 9% framkvæmdastjóranna.

Skýrslan í heild sinni

Skjal fyrir Acrobat ReaderJafnrétti kynjanna í tölum 2009 (PDF, 3,7MB)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum