Hoppa yfir valmynd
14. maí 2010 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á smjöri og ostum

Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 419/2010, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smjöri og ostum fyrir tímabilið 1. júlí 2010– 30. júní 2011.

Tollskrárnr:

Vara

Tímabil

  Vörumagn

Verðtollur

 

 

 

 

kg.

%

 

a)

 

 

 

 

0405.xxxx

Smjör og önnur fita

01.07.10- 30.06.11

53.000

215,7

 

 

 

 

 

b)

Ostur og ystingur:

 

119.000

 

0406.1009

Annað (nýr ostur, mysuostur o.fl.)

01.07.10- 30.06.11

 

182,4

0406.2000

Hvers konar rifinn eða mulinn ostur

01.07.10- 30.06.11

 

182,4

0406.3000

Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn

01.07.10- 30.06.11

 

185,9

0406.4000

Gráðostur

01.07.10- 30.06.11

 

193,3

0406.9000

Annar ostur

01.07.10- 30.06.11

 

185,0










 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 509/2004, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast  til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 26. maí n.k.

 

Framvegis verður eingöngu auglýst eftir umsóknum um tollkvóta á heimasíðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 14. maí 2010.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum