Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2010 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr. 99/1993 um framleiðslu verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 895/2010, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2011.

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
      stk. % kr./kg
Tollskrárnr.: Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar        
0602.9091 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.01.-30.06.11

 

 

 

2.000 30 0
  Aðrar:        
0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

 

Lifandi:

01.01.-30.06.11 2.500 30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.01.-30.06.11     9.000 30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.01.-30.06.11 166.250 30 0

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 1. desember 2010.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

24. nóvember 2010.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum