Hoppa yfir valmynd
1. mars 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Opinn fundur um leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins fundar um leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands, með tilliti til ræktunnar, miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00.

Fundurinn fer fram á Teams og hægt er að skrá sig hér.  Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur mun kynna leiðbeiningarnar og svara spurningum.

Leiðbeiningarnar má finna hér en með þeim er lögð áhersla á að flokka land sem nýtist til ræktunar á matvælum og fóðri, með tilliti til fæðuöryggis og jarðarlaga. Niðurstöðum flokkunarinnar er ætlað að nýtast sveitarfélögum sem forsendur við skipulagsákvarðanir um landnotkun við gerð aðalskipulags.

Að gerð þessara leiðbeininga stendur atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið í samstarfi við Skipulagsstofnun og Landbúnaðarháskólann en þær voru mótaðar af þeim Salvöru Jónsdóttur, skipulagsfræðingi, Guðna Þ. Þorvaldssyni, prófessor við LBHÍ, og Guðrúnu Láru Sveinsdóttur, hjá Skipulagsstofnun, í samráði við hagaðila.

Leiðbeiningarnar eru unnar á grundvelli jarðalaga. Með breytingum á lögunum, sem samþykktar voru í júlí 2020, varð ráðherra heimilt að gefa út leiðbeiningar um hvernig skuli flokka landbúnaðarland í aðalskipulagi, í samvinnu við yfirvöld skipulagsmála (55. gr. jarðalaga nr. 81/2004).

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum