Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félags- og heilbrigðismála lausir til umsóknar

Umsókn fyllt út
Umsókn fyllt út

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum um verkefni sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins, þ.e. á sviði félags- og heilbrigðismála. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Umsóknarfrestur er til kl. 17:00 miðvikudaginn 4. desember 2013. Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar 2014.

Með forsetaúrskurði nr. 72/2013, um skiptingu starfa ráðherra, er málaflokkum velferðarráðuneytisins skipt á milli heilbrigðisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Með hliðsjón af því hefur verið gerð breyting á reglum um úthlutun velferðarstyrkja og úthlutar nú hvor ráðherra um sig styrkjum í samræmi við stjórnarmálefni, eins og þau eru ákvörðuð í forsetaúrskurðum nr. 71/2013 og 72/2013.

Veittir eru styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Styrkjum skal úthlutað til afmarkaðra verkefna og ekki til lengri tíma en eins árs í senn. Styrki má meðal annars veita til verkefna sem felast í því að:

a)      útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi,
b)     
vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna,
c)     
bjóða félagsmönnum upp á stuðning og ráðgjöf.

Ekki eru veittir styrkir eingöngu til reksturs.

Styrkir á sviði félagsmála

Auk verkefna- og rekstrarstyrkja eru veittir styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði endurhæfingar, málefna fatlaðs fólks, forvarna og fræðslu og fjölskyldu- og jafnréttismála. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á verkefni sem miða að því að styrkja og vernda fjölskylduna.

Styrkir á sviði heilbrigðismála

Auk verkefna- og rekstrarstyrkja eru veittir styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði forvarna og fræðslu og endurhæfingar.

Mat á umsóknum

Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytisins. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á, svo sem:

a)      gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk,
b)     
að umsækjanda muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt,
c)     
að verkefnið sé byggt á faglegum grunni,
d)     
fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Minnt er á að hafi umsækjandi áður hlotið styrk frá ráðuneytinu til annars verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd þess og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Innskráning á mínar síður - þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vefnum; Island.is
  2. Auðkenning með Íslykli á vefnum; Island.is
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum og þar undir velferðarráðuneyti er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2014.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum