Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ákveðið hefur verið að loka hjúkrunarheimilinum í Víðinesi og á Vífilsstöðum 1. september 2010. Heimilisfólk mun flytja í nýtt hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut og starfsfólkið mun njóta forgangs í störf á nýja heimilinu.
Lesa meiraTil að koma í veg fyrir misskilning vill félags- og tryggingamálaráðuneytið taka það skýrt fram að fjárhæð vasapeninga til aldraðra á stofnunum verður ekki lækkuð árið 2010. Óskertir vasapeningar eru 41.895 krónur á mánuði.
Lesa meiraAuglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2010.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að verja 1,3 milljörðum króna árið 2010 í stórátak til að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir fólk án atvinnu til starfa, menntunar eða annars konar virkni.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið hefur uppfært grunnfjárhæðir vegna fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga í samræmi við hækkun á neysluverðsvísitölu.
Lesa meiraInnflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála.
Lesa meiraAtvinnuleysi er hlutfallslega mest meðal fólks undir þrítugu og nærrri 80% atvinnulauss fólks á þessum aldri er aðeins með grunnskólapróf. Miklu varðar að styðja ungt atvinnulaust fólk með litla menntun til náms eða annarrar virkni að mati vinnuhóps sem nú hefur skilað tillögum um úrbætur.
Lesa meiraFjallað verður um áhrif alþjóðlegu fjármálakreppunnar á húsnæðismarkaði norrænu ríkjanna og velferðarkerfi þeirra, á norrænni ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík fimmtudaginn 26. nóvember.
Lesa meiraSýni atvinnulífið ekki fljótlega marktækan árangur í því að rétta hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja er einboðið að taka upp kynjakvóta. Þetta kom fram í máli félags- og tryggingamálaráðherra við setningu norrænu ráðstefnunnar um Kyn og völd sem nú stendur yfir.
Lesa meiraÁrlegur fundur norrænna vinnumálaráðherra verður haldinn í Reykjavík á morgun. Á fundinum verður meðal annars rætt um leiðir til að sporna við vaxandi atvinnuleysi meðal ungs fólks vegna fjármálakreppunnar.
Lesa meiraVelferðarvaktin stendur fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 11. nóvember 2009 kl. 8.30-10.00 þar sem fjallað verður um skuldavanda heimilanna og kynnt helstu úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum.
Lesa meiraNý skýrsla um atvinnuástand og þróun atvinnumála í OECD ríkjunum verður kynnt á norrænu ráðstefnunni Virkjum fjölbreyttari mannauð í Reykjavík 9.-10. nóvember. Fjallað verður um atvinnumál í víðu samhengi, áhrif atvinnuleysis og leiðir til að berjast gegn því og afleiðingum þess.
Lesa meiraÁhrif fjármálakreppunnar á konur og karla voru til umræðu á fundi norrænu jafnréttisráðherranna sem haldinn var hér á landi fimmtudaginn 5. nóvember.
Lesa meiraSamningar við fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð um úrræði vegna skuldavanda einstaklinga og heimila og framkvæmd þeirra voru undirritaðir í félags- og tryggingamálaráðuneytinu í dag.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag úthlutun 30 milljóna króna úr starfsmenntasjóði til 17 starfsmenntunarverkefna sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Þórhildi Þorleifsdóttur formann Jafnréttisráðs. Hlutverk ráðsins er að stuðla að jafnri stöðu og jöfnum rétti kvenna og karla á vinnumarkaði, veita stjórnvöldum ráðgjöf og gera tillögur til félags- og tryggingamálaráðherra um aðgerðir á þessu sviði.
Lesa meiraNiðurstöður tveggja nýrra kannana sem gerðar hafa verið í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda til að sporna við ofbeldi á heimilum og kynferðislegu ofbeldi voru kynntar í dag.
Lesa meiraVegna misskilnings sem fram hefur komið í fjölmiðlum vill félags- og tryggingamálaráðuneytið árétta að upphæð vasapeninga til aldraðra á stofnunum verður ekki lækkuð. Óskertir vasapeningar eru 41.895 kr. á mánuði.
Lesa meiraVelferðarvaktin hefur óskað eftir samstarfi við Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ og Árborg um gerð könnunar til að greina ástæður þess að tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað á undanförnum mánuðum.
Lesa meiraRúmlega 30 manns leituðu ráðgjafar í nýrri starfsstöð Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem tók til starfa í dag. Síðdegis hitti félags- og tryggingamálaráðherra starfsfólkið og kynnti sér starfsemina.
Lesa meiraKaup á vændi eru nú refsiverð samkvæmt breytingu á hegningarlögum sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Félags- og tryggingamálaráðherra segir þetta mikilvægan áfanga í baráttunni gegn mansali.
Lesa meiraÁsta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, veitti í dag 25 milljónir króna í styrki til atvinnumála kvenna. Sótt var um styrki til 261 verkefnis og hafa umsóknir aldrei verið fleiri.
Lesa meiraÁsta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, tók í dag á móti starfssystur sinni, Viera Tombanova, ráðherra félags-, vinnu- og fjölskyldumála í Slóvakíu. Ráðherrann er hér á landi til að kynna sér íslenska velferðarkerfið.
Lesa meiraSamþykkt var á Alþingi í dag frumvarp til laga um breytingu á barnalögum og barnaverndarlögum til að vernda börn gegn hvers konar ofbeldi.
Lesa meiraMikil aðsókn var á námsstefnu um vinnumarkaðsúrræði sem haldin var í dag á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Námsstefnunni var sjónvarpað á Netinu og er upptaka aðgengileg á vef ráðuneytisins.
Lesa meiraJafnréttisvaktin sem skipuð er af félags- og tryggingamálaráðherra hefur opnað vefsvæði þar sem unnt er að beina til hennar ábendingum sem nýst geta við að greina og meta áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um 97. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 2008. Meðal efnis í skýrslunni er yfirlýsing þingsins um félagslegt réttlæti fyrir sanngjarna alþjóðavæðingu.
Lesa meiraÁsta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, og Nancy Allan, ráðherra atvinnu- og inflytjendamála í Manitoba í Kanada, hafa undirritað samkomulag sem skapar tímabundna atvinnumöguleika fyrir Íslendinga.
Lesa meiraFjárhæðir styrkja og uppbóta vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðs fólks hækka um 20% og ýmis skilyrði fyrir styrkjum verða rýmkuð samkvæmt nýrri reglugerð sem félags- og tryggingamálaráðherra kynnti fyrir hagsmunaaðlum á fundi í gær.
Lesa meiraÁsta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, heimsótti Barnaverndarstofu í gær, ræddi við starfsfólk og kynnti sér starfsemina.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Ásta R. Jóhannesdóttir, hefur skipað Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur formann sjö manna vinnuhóps sem meta á sérstaklega áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna sem mun hefja störf á föstudag.
Lesa meiraFélags- og trygginamálaráðherra sendi í byrjun vikunnar erindi til formanna stjórnmálaflokkanna og beindi þeim til mælum til þeirra að þeir leituðu leiða til að tryggja jafnræði kynjanna við uppröðun á framboðslistum fyrir alþingiskosningarnar í vor.
Lesa meiraJafnréttisráð fagnar sögulegum tímamótum í íslensku samfélagi á sviði jafnréttismála þar sem kona er í fyrsta sinn forsætisráðherra og hlutur kynjanna jafn meðal ráðherra. Þetta kemur fram í ályktun ráðsins.
Lesa meiraVinnumálastofnun hefur birt á heimasíðu sinni helstu reglur, eyðublöð og aðrar upplýsingar um vinnumarkaðsúrræði sem stofnunin annast, svo sem námskeið, starfstengd úrræði, atvinnutengda endurhæfingu og ráðgjöf.
Lesa meiraSkýrsla ráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála ásamt tölfræðilegum upplýsingum um jafnrétti kynjanna.
Lesa meiraFrestur til að sækja um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2009 rennur út 10. janúar næstkomandi. Starfsemi sjóðsins fer samkvæmt ákvæðum laga um málefni aldraðra og er hlutverk hans að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.
Lesa meiraer heiti nýútkominna fræðslurita fyrir fagstéttir sem kynnt var í dag og er ætlað að auka þekkingu þeirra sem í störfum sínum koma að málefnum kvenna sem beittar hafa verið ofbeldi.
Lesa meiraViðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta tekur breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu.
Lesa meira