Eldri fréttir FEL

Réttur til atvinnuleysisbóta lengdur um eitt ár - 18.12.2010

Réttur fólks til atvinnuleysisbóta verður lengdur um eitt ár og veikindaréttur tryggður. Gildistími ákvæðis um rétt til bóta á móti skertu starfshlutfalli er framlengt, en mörkin dregin við 70% starfshlutfall í stað 80% áður fyrir þá sem skrá sig án atvinnu 1. janúar nk. eða síðar. Lesa meira
 

Tímabundin heimild fyrir rekstrarfé úr Framkvæmdasjóði aldraðra - 18.12.2010

Alþingi samþykkti í dag breytingu á lögum um málefni aldraðra sem heimilar að fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra verði varið til reksturs hjúkrunarheimila árið 2011. Lesa meira
 

Flutningur málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga - 17.12.2010

Alþingi samþykkti í dag frumvarp til breytinga á lögum um málefni fatlaðra sem felur í sér flutning málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011. Samþykkt var breyting á heiti laganna og heita þau nú lög um málefni fatlaðs fólks.

Lesa meira
 

Rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs - 17.12.2010

Þingsályktunartillaga um að fram fari sjálfstæð og óháð rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs var samþykkt samhljóða á Alþingi í dag. Lesa meira
 

Lokaráðstefna Evrópuárs 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun - 17.12.2010

Senn lýkur Evrópuári 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun og af því tilefni var haldin vegleg lokaráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Lesa meira
 

Umboðsmaður skuldara opnar útibú í Reykjanesbæ - 16.12.2010

Útibú umboðsmanns skuldara var opnað í Reykjanesbæ í dag. Útibúið er í húsnæði Sýslumannsins í Keflavík, Vatnsnesvegi 33. Starfsemi hefst föstudaginn 17. desember kl. 8:30. Lesa meira
 

Þjónusta við íbúa á Sólheimum verður tryggð - 15.12.2010

Samkomulag um flutning málefna fatlaðra tryggir óbreytt rekstrarfé til Sólheima líkt og annarra sjálfseignarstofnana á næsta ári. Íbúum verður tryggð þar áframhaldandi þjónusta þótt forsvarsmenn Sólheima dragi sig út úr rekstrinum.

Lesa meira
 

Leiðsögu- og hjálparhundar í fjölbýlum - 15.12.2010

Fötluðu fólki í fjölbýlishúsum verður heimilt að halda leiðsögu- eða hjálparhund í íbúð sinni án þess að þurfa til þess samþykki annarra íbúðareigenda í húsinu samkvæmt frumvarpi um breytingu á lögum um fjöleignarhús.

Lesa meira
 

Lokaráðstefna Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun - 14.12.2010

Haldin verður lokaráðstefna Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun í Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 17. desember. Kynnt verða verkefni og rannsóknir sem efnt hefur verið til á árinu. Lesa meira
 

Verklok Straumhvarfa, átaks til eflingar þjónustu við geðfatlaða  - 14.12.2010

Nærri 140 manns hafa fengið búsetuúrræði, sérhæfðan stuðning og aðstoð til að stunda vinnu, menntun eða endurhæfingu eða nýta sér aðra þjónustu í tengslum við átaksverkefnið Straumhvörf. Verkefnið hófst árið 2006 og er nú formlega lokið. Lesa meira
 

Viðurkenning Jafnréttisráðs árið 2010 - 14.12.2010

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, hlaut viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir árið 2010. Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, flutti ávarp við afhendingu viðurkenningarinnar, föstudaginn 10. desember.

Lesa meira
 

Rannsókn á áhrifum starfsendurhæfingar - 13.12.2010

Starfsendurhæfing dregur úr félagslegri einangrun, eykur sjálfstraust, hvetur fólk til náms og ætla má að með henni megi draga úr fátækt til lengri tíma litið. Þetta eru meðal niðurstaðna úr könnun á áhrifum starfsendurhæfingar sem kynnt var í dag.

Lesa meira
 

Úrslit í fjölmiðlasamkeppni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun - 13.12.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra afhenti fyrir helgi verðlaun í fjölmiðlasamkeppni Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun á Íslandi. Vinningstillagan hefur verið send í Evrópuhluta keppninnar og verða úrslit hennar kynnar í Brussel 17. desember.

Lesa meira
 

Flóttafólk frá Kólombíu - 13.12.2010

Í gær, föstudaginn 10. desember, komu til landsins sex kólumbískir flóttamenn í boði íslenskra stjórnvalda. Þetta eru tvær fjölskyldur, kona á fimmtugsaldri og ungur sonur hennar, og önnur um þrítugt með þrjú börn, þar af son nokkurra mánaða.

Lesa meira
 

Velferðarþjónusta á Norðurlöndunum - 10.12.2010

Ritið Social tryghed i de nordiske lande 2008/09 er komið út en í því er ýmis samanburður á velferðarþjónustu milli Norðurlandanna. Lesa meira
 

Áhrif starfsendurhæfingar á fátækt - 9.12.2010

Starfsendurhæfing hefur marktæk, jákvæð áhrif á virkni fólks og dregur úr félagslegri einangrun. Þetta er meðal niðurstaðna úr umfangsmikilli rannsókn sem verður kynnt á hádegisverðarfundi á Hótel KEA mánudaginn 13. desember kl. 12.00.

Lesa meira
 

Ljósmyndasýning í tilefni Evrópuársins 2010 - 3.12.2010

Laugardaginn 4. desember verður opnuð ljósmyndasýning sem fjallar um fátækt og félagslega einangrun í húsakynnum Samhjálpar í Borgartúni 1 í Reykjavík. Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, opnar sýninguna kl. 18:00.  

Lesa meira
 

Ljósmyndasýning í tilefni Evrópuársins 2010 - 3.12.2010

Laugardaginn 4. desember verður opnuð ljósmyndasýning sem fjallar um fátækt og félagslega einangrun í húsakynnum Samhjálpar í Borgartúni 1 í Reykjavík. Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, opnar sýninguna kl. 18:00.  

Lesa meira
 

Úrbætur fyrir örorku- og ellilífeyrisþega - 3.12.2010

Víxlverkanir milli bóta örorkulífeyrisþega úr almannatryggingakerfinu og tekna þeirra úr lífeyrissjóðum verða aftengdar tímabundið í þrjú ár. Einnig verður frítekjumark ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna hækkað í áföngum á þremur árum. 

Lesa meira
 

Alþjóðlegur dagur fatlaðra - 2.12.2010

Alþjóðlegur dagur fatlaðra er er á morgun. Hann hefur verið haldinn 3. desember ár hvert frá því að Sameinuðu þjóðirnar stóðu fyrir alþjóðlegu ári fatlaðs fólks árið 1981. Markmið dagsins er að auka skilning á aðstæðum fólks með fötlun og baráttu fyrir réttindum þeirra og jafnri stöðu í samfélaginu.

Lesa meira
 

Atvinnuleitendur fá desemberuppbót - 30.11.2010

Atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember, samkvæmt tillögu félags- og tryggingamálaráðherra sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun. Full uppbót er 44.857 krónur. Lesa meira
 

Mælt fyrir frumvarpi um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna - 25.11.2010

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni fatlaðra vegna flutnings málaflokksins til sveitarfélaganna hefur verið lagt fyrir Alþingi. Mælt var fyrir frumvarpinu í dag og er það nú til umfjöllunar hjá félags- og tryggingamálanefnd þingsins. Lesa meira
 

Heildarsamkomulag um tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga undirritað í dag - 23.11.2010

Samkomulag um faglegt og fjárhagslegt fyrirkomulag á tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna var undirritað í dag. Frumvarp til laga um tilfærsluna á grundvelli samkomulagsins verður lagt fyrir Alþingi á næstu dögum.

Lesa meira
 

Árbót – óhjákvæmileg og réttmæt aðkoma ráðuneytisins - 22.11.2010

Aðkoma félags- og tryggingamálaráðuneytisins að gerð samkomulags við lokun Árbótar var óhjákvæmileg og réttmæt. Sameiginlegur vilji var til þess milli Barnaverndarstofu, ráðuneytisins og rekstraraðila að semja um samningslok með greiðslum umfram það sem kveðið var á um í uppsagnarákvæði þjónustusamnings.

Lesa meira
 

Auglýsing um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála - 20.11.2010

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags.

Lesa meira
 

Anna Lilja Gunnarsdóttir verður ráðuneytisstjóri í nýju velferðarráðuneyti - 18.11.2010

Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að skipa Önnu Lilju Gunnarsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis sem verður til við sameiningu félags- og tryggingamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis 1. janúar 2011.

Lesa meira
 

Styrkir til aukinnar þjónustu við börn. Umsóknarfrestur að renna út - 17.11.2010

Umsóknarfrestur sveitarfélaga um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með athyglisbrest rennur út 25. nóvember. Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.

Lesa meira
 

Skýrsla um skuldavanda heimilanna - 11.11.2010

Hópur sérfræðinga sem fjallað hefur um skuldavanda heimilanna skilaði niðurstöðum sínum í gær, 11. nóvember, með ítarlegri skýrslu um skuldastöðu heimilanna og mati á leiðum sem helst hafa verið til umræðu sem lausnir á skuldavanda heimilanna. Lesa meira
 

Verkefni til stuðnings íbúum Suðurnesja - 9.11.2010

Ráðinn verður starfsmaður til að sinna formlegu samstarfi sveitarfélaga á Suðurnesjum í velferðarmálum og opnað útibú umboðsmanns skuldara. Þetta eru meðal verkefna til stuðnings íbúum á svæðinu sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðast í. Réttur til atvinnuleysisbóta verður lengdur úr þremur árum í fjögur. Lesa meira
 

Húsnæðisstefna til framtíðar - 9.11.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað samráðshóp sem falið er að móta heildstæða húsnæðisstefnu til framtíðar. Markmiðið er að tryggja landsmönnum fjölbreytta og örugga valkosti í húsnæðismálum. Lesa meira
 

Haítíbúar komnir til fjölskyldusameiningar á Íslandi - 8.11.2010

Þrír einstaklingar frá Haítí, tvö börn og amma þeirra, komu til Íslands í gær, 7. nóvember. Fólkið kemur hingað í kjölfar hamfaranna á Haítí í janúar á þessu ári á grundvelli lagaákvæðis um fjölskyldusameiningu. Lesa meira
 

Leiðrétting á yfirlýsingum um stöðu Sólheima - 4.11.2010

Skýrt er kveðið á um stöðu sjálfseignarstofnana sem þjónusta fólk með fötlun í áætlun um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga. Rekstur Sólheima er tryggður, líkt og annarra sjálfseignarstofnana, þótt forsvarsmenn Sólheima hafi hafnað boði ráðuneytisins um endurnýjun þjónustusamnings.

Lesa meira
 

Allra úrræða leitað áður en kemur til nauðungarsölu - 3.11.2010

Íbúðalánasjóður frestar nauðungarsölu óski fólk eftir því og leitar allra leiða til að gera samning um greiðslu vanskila til að koma í veg fyrir nauðungarsölu. Frestun á byrjun uppboðs er aldrei hafnað ef fólk sækist eftir fresti og nóg er að hafa samband símleiðis. Lesa meira
 

Norræn jafnréttisstefna til framtíðar - 1.11.2010

Jafnréttisstefna til framtíðar á Norðurlöndunum er yfirskrift opins fundar og pallborðsumræðna í Þjóðmenningarhúsinu 2. nóvember. Efnt er til fundarins í tengslum við Norðurlandaráðsþing 2010 sem fram fer í Reykjavík 2. til 4. nóvember. Lesa meira
 

Ársfundur Vinnumálastofnunar 2010 - 29.10.2010

Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, vill efla hlutverk Vinnumálastofnunar á sviði starfsendurhæfingar, enda aukist mikilvægi þessa vinnumarkaðsúrræðis við núverandi aðstæður í samfélaginu. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi ráðherra á ársfundi stofnunarinnar í dag.

Lesa meira
 

Ábending vegna umfjöllunar um uppboð á íbúðarhúsnæði - 29.10.2010

Vegna frétta í fjölmiðlum um framhaldsuppboð íbúðarhúsnæðis í október vill félags- og tryggingamálaráðuneytið vekja athygli á aðgerðum sem gripið hefur verið til varðandi uppboð á íbúðarhúsnæði einstaklinga og fjölskyldna. Lesa meira
 

Hjálp til sjálfshjálpar - 28.10.2010

Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, tók þátt í fjölmennum samráðsfundi hjálparsamtaka og opinberra aðila sem fram fór á Grand hótel í Reykjavík í dag. Rætt var um fyrirkomulag hjálparstarfs við þá sem standa höllum fæti og hvernig best verði að því staðið.

Lesa meira
 

Áfram stelpur og strákar - 25.10.2010

Látum kraft kvennahreyfinganna verða okkur hvatningu til uppbyggingar og sóknar. Jöfn áhrif og jöfn staða kynjanna er forsenda fyrir því framtíðarþjóðfélagi sem við ætlum okkur að skapa, segir Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra í grein sem birtist í Fréttablaðinu í tilefni kvennafrídagsins 24. október.

Lesa meira
 

Styrkir til sveitarfélaga vegna þjónustu við börn - 25.10.2010

Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest.

Lesa meira
 

Stopp – hingað og ekki lengra - 21.10.2010

Hingað og ekki lengra, hættum að kenna hvert öðru um heldur sameinumst í því að endurreisa samfélagið á traustum grunni, sagði Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, á ársfundi Alþýðusambands Íslands sem hófst í dag.

Lesa meira
 

Öruggt heimili fyrir alla - 21.10.2010

 Aðgerðanefnd fimm ráðherra undir forystu forsætisráðherra hefur á síðustu vikum unnið að frekari lausnum á skuldavanda heimilanna og aukinni skilvirkni gildandi úrræða. Mikilvægar úrbætur hafa verið kynntar eða verða kynntar á næstunni. Ráðherra skrifar um þessi mál í blaðagrein í dag.

Lesa meira
 

Norrænt samstarf gegn ofbeldi í nánum samböndum - 19.10.2010

Norrænir jafnréttisráðherrar leggja áherslu á baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum. Þetta er leiðarstef í samstarfsáætlun norrænu þjóðanna og var til umræðu á fundi ráðherranna sem haldinn var í Kaupmannahöfn í gær.

Lesa meira
 

Norræn ráðstefna um ofvirkni og athyglisbrest (ADHD) - 18.10.2010

Fjallað verður um nýja nálgun við meðferð barna og fullorðinna með ADHD á norrænni ráðstefnu sem Danir efna til í Kaupmannahöfn 1. desember í tengslum við formennsku sína í Norrænu ráðherranefndinni árið 2010. Lesa meira
 

Íbúðalánasjóði verði heimilað að leigja íbúðir með ákvæði um kauprétt - 15.10.2010

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um húsnæðismál. Meðal annars er lagt til að Íbúðalánasjóður fái heimild til að leigja út uppboðsíbúðir með ákvæði um kauprétt.

Lesa meira
 

Fjöldi umsókna um embætti ráðuneytisstjóra - leiðrétting - 15.10.2010

Á lista yfir umsækjendur um embætti ráðuneytisstjóra sem birtur var í dag á vef heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins, vantaði nöfn tveggja umsækjenda.
Lesa meira
 

Umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra velferðarráðuneytis - 15.10.2010

87 umsóknir bárust um embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis, sem verður til 1. janúar 2011 með sameiningu heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins.

Lesa meira
 

Bráðabirgðaákvæði um tímabundinn frest vegna greiðsluaðlögunar lögfest - 14.10.2010

Sá sem sækir um greiðsluaðlögun fær tímabundinn greiðslufrest strax og umsókn hefur borist Umboðsmanni skuldara. Frumvarp til laga um þessa breytingu á lögum um greiðsluaðlögun var samþykkt á Alþingi í dag.

Lesa meira
 

Frumvarp um breytingar á barnaverndarlögum - 14.10.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til breytinga á barnaverndarlögum. Markmið breytinganna er að bæta réttarstöðu barna og efla barnaverndarstarf í landinu.

Lesa meira
 

55 milljónum króna úthlutað úr starfsmenntasjóði - 12.10.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra úthlutaði í dag 55 milljónum króna úr starfsmenntasjóði ráðuneytisins. Styrkir voru veittir til 39 þróunar- og nýsköpunarverkefna af ýmsu tagi. Þetta er í síðasta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.

Lesa meira
 

Umsókn um greiðsluaðlögun veiti tafarlausan greiðslufrest - 12.10.2010

Sá sem sækir um greiðsluaðlögun fær tímabundinn greiðslufrest strax og umsókn hefur borist umboðsmanni skuldara, samkvæmt frumvarpi sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi. Fjárnám, kyrrsetning eigna og nauðungarsala verður óheimil meðan á greiðslufresti stendur.

Lesa meira
 

Ráðherra afhendir frumkvöðlaverðlaun Geðhjálpar - 11.10.2010

Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti frumkvöðlaverðlaun Geðhjálpar sem veitt voru á afmælishátíð félagsins 9. október. Verðlaunin hlutu Anna Valgarðsdóttir og Páll Matthíasson.

Lesa meira
 

Hæfnisnefnd metur umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra - 8.10.2010

Þriggja manna hæfnisnefnd mun fara yfir umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis. Embættið var auglýst 28. september og rennur umsóknarfrestur út 13. október.

Lesa meira
 

Fjárlagafrumvarp 2011 – útgjöld ráðuneytisins dragast saman um 5,7% - 6.10.2010

Áætluð heildarútgjöld félags- og tryggingamálaráðuneytisins árið 2011 nema tæpum 121,5 milljörðum króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2011. Lækkunin nemur 5,7% frá fyrra ári sem svarar tæpum 7,4 milljörðum króna.

Lesa meira
 

Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra - 5.10.2010

Styrkja þarf úrræði í húsnæðismálum til að tryggja öllum öruggt heimili, efla leigumarkað, félagslega húsnæðiskerfið, kaupleigu- og búseturétt. Gripið verður til þeirra ráða sem duga vegna skuldavanda heimilanna sagði félags- og tryggingamála í umræðum á Alþingi í gær.

Lesa meira
 

Embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis laust til umsóknar - 29.9.2010

Auglýst er laust til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis. Velferðarráðuneytið verður til við sameiningu heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins 1. janúar 2011.

Lesa meira
 

Aðgerðir gegn ofbeldi í nánum samböndum - 23.9.2010

Lagðar eru fram tillögur um aðgerðir til að bæta skráningu upplýsinga um ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum, auka þekkingu fagfólks á vandanum og tryggja úrræði við hæfi í tveimur nýjum rannsóknum sem kynntar voru í dag.

Lesa meira
 

Ávarp ráðherra á málþingi um málefni fatlaðra - 22.9.2010

Ávarp Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra á ráðstefnunni Málefni fatlaðs fólks á tímamótum - horft til framtíðar sem fram fór Grand hótel Reykjavík í dag.

Lesa meira
 

Stéttarfélagsaðild starfsfólks svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra - 21.9.2010

Réttindi starfsfólks svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra verða að fullu tryggð komi til breytinga á stéttarfélagsaðild við flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna.

Lesa meira
 

Málefni fatlaðs fólks á tímamótum - horft til framtíðar - 20.9.2010

Horft er til framtíðar og sjónum beint að stjórnsýslu, hugmyndafræði og þjónustu við fatlað fólk með áherslu á úrbætur á málþingi sem fram fer á Grand hótel Reykjavík 22. september.

Lesa meira
 

Morgunverðarfundur um félagslega einangrun - 20.9.2010

Stýrihópur Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun boðar til morgunverðarfundar föstudaginn 24. september á Grand hótel í Reykjavík. Fjallað verður um félagslega einangrun á Íslandi í dag. Fundurinn er annar í fundaröð þar sem fjallað verður um fátækt, félagslega einangrun og leiðir til úrbóta.

Lesa meira
 

Leiðir til að fjármagna verkefni á sviði norræns samstarfs - 16.9.2010

Nýsköpunarmiðstöð Íslands sér um átaksverkefni sem nú er hafið og felst í upplýsingagjöf um leiðir til að fjármagna verkefni á sviði norræns samstarfs. Efnt var til átaksverkefnisins að frumkvæði Norrænu ráðherranefndarinnar sem fjármagnar það einnig.

Lesa meira
 

Samstarfssamningur um kennslu og rannsóknir í þágu barna með fötlun - 15.9.2010

Háskóli Íslands og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hafa gert með sér samstarfssamning um kennslu, rannsóknir og þjálfun í félags- og heilbrigðisvísindum.

Lesa meira
 

Nýtt velferðarráðuneyti tekur til starfa um áramót - 10.9.2010

Alþingi samþykkti í gær frumvarp til laga um sameiningu ráðuneyta. Heilbrigðisráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið verða sameinuð í eitt velferðarráðuneyti og tekur það til starfa 1. janúar 2011.

Lesa meira
 

Þjónusta við fatlaða – málaflokkur á tímamótum - 9.9.2010

Greinargerð félags- og tryggingamálaráðuneytisins um málefni fatlaðra í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Lesa meira
 

Ráðin aðstoðarmaður heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra - 8.9.2010

Anna Sigrún Baldursdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðbjarts Hannessonar heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra.

Lesa meira
 

Aukið fé til meðferðar fyrir karla sem beita ofbeldi - 8.9.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur veitt 800.000 króna styrk til meðferðarúrræðisins Karlar til ábyrgðar svo unnt sé að halda rekstri þess óskertum til ársloka.

Lesa meira
 

Ráðherraskipti og sameining ráðuneyta - 2.9.2010

Guðbjartur Hannesson tók í dag við lyklum að félags- og tryggingamálaráðuneytinu úr hendi Árna Páls Árnasonar. Guðbjartur er einnig ráðherra heilbrigðismála og mun stýra sameiningu ráðuneytanna tveggja sem tekur gildi um næstu áramót.

Lesa meira
 

Framkvæmdir hefjast við byggingu hjúkrunarheimilis í Borgarbyggð - 27.8.2010

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýju hjúkrunarheimili í Borgarbyggð í gær. Framkvæmdir eru að hefjast og áformað að heimilið verði tekið í notkun sumarið 2012.

Lesa meira
 

Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála skipuð - 26.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað kærunefnd greiðsluaðlögunarmála í samræmi við lög um greiðsluaðlögun einstaklinga og lög um tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota.

Lesa meira
 

Ný norræn upplýsingasíða um notendastýrða persónulega aðstoð - 26.8.2010

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, opnaði í gær norræna upplýsingasíðu um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fólk með fötlun. Allar Norðurlandaþjóðirnar stóðu saman að verkefninu undir stjórn Íslendinga.

Lesa meira
 

Réttur til atvinnuleysisbóta - 23.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur lýst sig viljugan til að leggja fram frumvarp um að tíminn sem fólk á rétt til atvinnuleysisbóta verði lengdur tímabundið úr þremur árum í fimm. Þetta kom fram á samráðsfundi hans með aðilum vinnumarkaðarins sem haldinn var í júní síðastliðnum.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna Jafnréttisstofu 10. september - 23.8.2010

Horft um öxl og fram á við er yfirskrift afmælisráðstefnu Jafnréttisstofu sem fram fer á Akureyri dagana 10. - 11. september í tilefni tíu ára afmælis hennar. Lesa meira
 

Námstækifæri í tækni- og raungreinum fyrir 150 atvinnuleitendur - 18.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Vinnumálastofnun, Samtök iðnaðarins, háskólar og tækni- og hugverkafyrirtæki standa saman að átaki sem tryggir um 150 einstaklingum á atvinnuleysisskrá tækifæri til náms í vetur í tækni- og raungreinum.

Lesa meira
 

Um 190 námspláss tryggð í framhaldsskólum fyrir atvinnulaus ungmenni - 17.8.2010

Ungmennum yfir 18 ára aldri sem nú eru á atvinnuleysisskrá verður tryggð námsvist í framhaldsskólum. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun tillögu um samstarf menntamálaráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins í þessu skyni.

Lesa meira
 

Hröð uppbygging hjá nýju embætti umboðsmanns - 12.8.2010

Starfsfólki umboðsmanns skuldara verður fjölgað á næstu vikum og ráðist í kynningu á embættinu og hlutverki þess. Tekið verður í notkun rafrænt upplýsingakerfi sem mun flýta verulega fyrir allri gagnaöflun og vinnslu mála hjá embættinu.

Lesa meira
 

Drög að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum - 6.8.2010

Drög að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til ársins 2014 eru til umsagnar á vef ráðuneytisins. Frestur fólks til að senda ráðuneytinu ábendingar sínar og athugasemdir rennur út 15. ágúst.

Lesa meira
 

Upplýsingarit fyrir eldri borgara um almannatryggingar - 6.8.2010

Upplýsingarit fyrir eldri borgara um almannatrygginga, „Áfram veginn 2010“ er komið út. Þar er svarað helstu spurningum um lífeyristryggingar og sjúkratryggingar sem upp koma við upphaf töku ellilífeyris og þegar sækja þarf heilbrigðisþjónustu.

Lesa meira
 

Spurningar og svör um ný úrræði - 5.8.2010

Listi sem birtur er á vefnum Island.is þar sem settar eru fram  spurningar ásamt svörum um úrræði fyrir einstaklinga í greiðsluvanda hefur verið uppfærður. Þar er fjallað um ný úrræði sem nú standa fólki til boða í samræmi við ný lög og lagabreytingar sem tóku gildi 1. ágúst.

Lesa meira
 

Birting hæfnismats umsækjenda um embætti umboðsmanns - 5.8.2010

Faglegt mat og málefnalag sjónarmið réðu úrslitum þegar afstaða var tekin til hæfni umsækjenda um embætti umboðsmanns skuldara. Ráðuneytið birtir hér öll gögn sem byggt var á við úrvinnslu málsins.

Lesa meira
 

Ásta Sigrún Helgadóttir skipuð umboðsmaður skuldara - 5.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Ástu Sigrúnu Helgadóttur, lögfræðing, umboðsmann skuldara. Ásta var metin mjög vel hæf til starfsins í hæfnismati sem unnið var í kjölfar nýafstaðins umsóknarferlis.

Lesa meira
 

Skriflegur rökstuðningur fyrir skipan í embætti umboðsmanns skuldara - 4.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur kynnt Ástu S. Helgadóttur skriflegan rökstuðning fyrir ákvörðun ráðherra um skipan í embætti umboðsmanns skuldara. Ákvörðun ráðherra var í samræmi við sjálfstætt hæfnismat ráðningarskrifstofu sem mat Runólf Ágústsson hæfari.

Lesa meira
 

Ingi Valur Jóhannsson settur umboðsmaður skuldara - 4.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett Inga Val Jóhannsson tímabundið til að gegna stöðu umboðsmanns skuldara í kjölfar þess að Runólfur Ágústsson sagði sig frá embættinu.

Lesa meira
 

ÞOR - átak gegn langtímaatvinnuleysi - 3.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Vinnumálastofnun kynntu í dag nýtt átak gegn langtímaatvinnuleysi og afleiðingum þess. Markmiðið er að virkja þá sem verið hafa lengi atvinnulausir til þátttöku í fjölbreyttum vinnumarkaðsúrræðum.

Lesa meira
 

Runólfur Ágústsson skipaður umboðsmaður skuldara - 23.7.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Runólf Ágústsson, lögfræðing, í nýtt embætti umboðsmanns skuldara sem tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi.

Lesa meira
 

Leiðsöguhundar í fjölbýli - 14.7.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið mun endurskoða lög um fjöleignarhús þar sem meðal annars er kveðið á um hundahald. Verður sérstaklega tekið tillit til þeirra sem þurfa vegna fötlunar sinnar á leiðsöguhundi að halda. Lesa meira
 

Umsóknarfrestur um embætti umboðsmanns skuldara liðinn - 14.7.2010

Alþingi samþykkti í júní frumvarp til laga um nýtt embætti umboðsmanns skuldara. Umboðsmaður skuldara er ríkisstofnun sem hefur það hlutverk að gæta hagsmuna og réttinda skuldara eins og nánar er kveðið á um í lögunum.

Lesa meira
 

Málefni Götusmiðjunnar - málsmeðferð barnaverndaryfirvalda samkvæmt lögum - 13.7.2010

Barnaverndaryfirvöld fóru að málsmeðferðarreglum við rannsókn á málefnum Götusmiðjunnar og brugðust við með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Þetta er niðurstaða félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem hefur lokið athugun sinni á meðferð málsins. Lesa meira
 

Greinargerð og tillögur um aðgerðir gegn einelti - 13.7.2010

Starfshópur þriggja ráðuneyta hefur skilað tillögum um aðgerðir til að sporna við einelti í skólum og á vinnustöðum. Lesa meira
 

Nefnd um aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi - 13.7.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað nefnd um gerð nýrrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi fyrir árin 2011-2015.

Lesa meira
 

Skipað í nýjar sameinaðar kæru- og úrskurðarnefndir - 13.7.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað í kærunefnd húsamála og úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála. Nefndirnar urðu til þegar fimm úrskurðar- og kærunefndir voru sameinaðar í tvær.

Lesa meira
 

Niðurstöður dómnefndar um hönnun hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð - 9.7.2010

Úrslit hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð voru kynnt á Eskifirði í dag. Þetta er fyrsta heimilið sem er hannað frá grunni samkvæmt nýjum viðmiðum um skipulag hjúkrunarheimila og markar því tímamót. Einrúm arkitektar hlutu fyrstu verðlaun en alls bárust 36 tillögur.

Lesa meira
 

Samkomulag í höfn um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaga - 6.7.2010

Ríki og sveitarfélög hafa samið um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaganna. Þetta er viðamesta endurskipulagning á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólanna árið 1996. Tekjustofnar sem nema 10,7 milljörðum króna flytjast til sveitarfélaganna á næsta ári samhliða yfirfærslu málaflokksins.

Lesa meira
 

Drög að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til ársins 2014 - 29.6.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirbúið tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til ársins 2014. Tillagan er nú birt til umsagnar á vef ráðuneytisins.

Lesa meira
 

Starfsemi embættis umboðsmanns skuldara hefst 1 ágúst - 29.6.2010

Embætti umboðsmanns skuldara hefur verið auglýst til umsóknar. Alþingi samþykkti lög um embættið í liðinni viku og hefst starfsemi þess 1. ágúst. Alþingi hefur einnig samþykkt frumvörp um greiðsluaðlögun og tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota.

Lesa meira
 

Undirritun samnings um hjúkrunarheimilið Mörk - 18.6.2010

 Félags- og tryggingamálaráðherra og forstjóri Grundar undirrituðu í dag samning um rekstur á nýju og glæsilegu 110 rýma hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut 66 í Reykjavík. sem hlotið hefur nafnið Mörk –  hjúkrunarheimili.

Lesa meira
 

Rök ráðuneytisins gagnvart stefnu Eftirlitsstofnunar EFTA - 18.6.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið telur mikilvægt að ákvæðum laga um rétt útsendra starfsmanna til launa vegna veikinda og slysa og til slysatrygginga verði ekki breytt þar sem um mikilvæg réttindi sé að ræða. Því hefur ekki verið orðið við kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA um afnám þeirra og mun íslenska ríkið grípa til varna fyrir EFTA dómstólnum. Lesa meira
 

Uppbót á lífeyri vegna lyfjakostnaðar telst ekki lengur til tekna - 16.6.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að hætt verði að telja uppbót á lífeyri vegna lyfjakostnaðar til tekna við útreikninga á rétti fólks til lágmarksframfærslutryggingar. Uppbótargreiðslur sem fólk fær til að standa straum af lyfjakostnaði munu því ekki skerða lágmarksframfærslutryggingu.

Lesa meira
 

Tekjur úr séreignalífeyrissjóðum skerða ekki atvinnuleysisbætur og húsaleigubætur - 16.6.2010

Hætt verður að skerða atvinnuleysisbætur og húsaleigubætur vegna tekna úr séreignarlífeyrissjóðum samkvæmt lagabreytingum sem Alþingi hefur samþykkt. Þá hefur gildistími lagaákvæðis um greiðslu atvinnuleysisbóta á móti hlutastarfi verið framlengdur til 31. desember 2010.

Lesa meira
 

Fækkun úrskurðar- og kærunefnda - 16.6.2010

Alþingi hefur samþykkt frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra um sameiningu fimm úrskurðar- og kærunefnda í tvær. Áætlað er að með þessu spari ríkið um tvær til fjórar milljónir króna á ári vegna minni kostnaðar við nefndarstörfin.

Lesa meira
 

Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun - 8.6.2010

Í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun hefur stýrihópur Evrópuársins í samstarfi við Vesturport ákveðið að sýna myndina Börn eftir Ragnar Bragason í Iðnó þann 10. júní.

Lesa meira
 

Morgunverðarfundur um fátækt, 4. júní - 2.6.2010

Stýrihópur Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun boðar til morgunverðarfundar föstudaginn 4. júní næstkomandi. Fundurinn er sá fyrsti í fundaröð þar sem fjallað verður um fátækt, félagslega einangrun og leiðir til úrbóta.

Lesa meira
 

Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2010 - 27.5.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2010. Alls verða veittar tæpar 800 milljónir króna úr sjóðnum, tæpar 300 milljónir til endurbóta og rúmar 400 milljónir til að ljúka byggingu þriggja nýrra hjúkrunarheimila.

Lesa meira
 

Nýtt hjúkrunarheimili í Borgarbyggð - 26.5.2010

Nýtt hjúkrunarheimili verður byggt í Borgarnesi og endurbætur gerðar á núverandi húsnæði samkvæmt samningi félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Borgarbyggðar sem undirritaður var í gær. Framkvæmdir hefjast á næstu vikum.

Lesa meira
 

Fagnar frumkvæði SP-fjármögnunar - 26.5.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra fagnar frumkvæði SP-fjármögnunar til umbreytingar gengistryggðra bílalána, í samræmi við það frumvarp sem ráðherra hefur lagt fram á Alþingi um sama efni. Lesa meira
 

Borgarafundur félagsmálaráðherra í Reykjavík fimmtudaginn 20. maí - 20.5.2010

Skuldastaða heimilanna, aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að létta greiðslubyrði og fyrirhugaðar leiðréttingar á höfuðstóli erlendra bílalána eru á meðal þess sem Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra kynnir íbúum höfuðborgarsvæðisins á borgarafundi á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, fimmtudaginn 20. maí klukkan 20:30-22:00.

Lesa meira
 

Úthlutun styrkja í tilefni Evrópuársins 2010 - 18.5.2010

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur úthlutað styrkjum úr sjóð sem stofnaður var í tilefni Evrópuársins 2010 sem tileinkað er baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Lesa meira
 

Samningar um hjúkrunarrými og málefni fatlaðra undirritaðir á Akureyri - 14.5.2010

Árni Páll Árnason, félags– og tryggingamálaráðherra, og Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu síðastliðinn þriðjudag tvo nýja samninga ríkisvaldsins og Akureyrarkaupstaðar.

Lesa meira
 

Vel heppnaður fundur um fátækt og félagslega einangrun - 12.5.2010

Síðastliðinn sunnudag var haldinn fundur þar sem fólk úr ýmsum hópum samfélagsins komu saman til þess að ræða um fátækt og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til að vinna gegn slíkri stöðu.

Lesa meira
 

Frumvarp um bætta réttarstöðu barna og eflingu barnaverndarstarfs - 7.5.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi á Alþingi um breytingar á barnaverndarlögum sem ætlað er að bæta réttarstöðu barna og efla barnaverndarstarf.

Lesa meira
 

856 störf auglýst - 7.5.2010

Viðhald á veðurstöðvum, grisjun þjóðskóga með keðjusög, útvarpsþáttagerð og ástandsskoðun á borholum eru á meðal 856 nýrra starfa sem verða auglýst nú um helgina. Ráðið verður í flest störfin fyrir næstu mánaðamót.

Lesa meira
 

Nýtt hjúkrunarheimili rís í Reykjanesbæ - 5.5.2010

Hjúkrunarheimili fyrir 30 aldraða verður byggt á Nesvöllum í Reykjanesbæ samkvæmt samningi sem félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Reykjanesbæjar undirrituðu í gær. Áætlað er að heimilið verði tekið í notkun sumarið 2012.

Lesa meira
 

Ákvæði um kaupleigurétt, öflugri húsnæðissamvinnufélög og endurbætur fjölbýlishúsa - 4.5.2010

 Íbúðalánasjóði verður heimilt að bjóða íbúðarhúsnæði sem sjóðurinn hefur keypt á uppoði til leigu með kauprétti samkvæmt frumvarpi sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu dögum. Starfsemi hússnæðissamvinnufélaga verður efld og stuðlað að framkvæmdum til að bæta aðgengi fatlaðra.

Lesa meira
 

Lausnir fyrir lántakendur – Fundaröð félags- og tryggingamálaráðherra - 4.5.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra heldur 10 borgarafundi víðs vegar um landið á næstunni þar sem hann fjallar um skuldastöðu heimilanna, kynnir úrræði og svarar fyrirspurnum. Á fundunum verða starfsmenn Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna til viðtals.

Lesa meira
 

Samið um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði - 3.5.2010

Nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili verður byggt á Völlum í Hafnarfirði sem áætlað er að verði tilbúið haustið 2012. Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjórinn í Hafnarfirði undirrituðu samning um verkefnið í dag.

Lesa meira
 

Frumvarp um greiðsluaðlögun bílalána lagt fyrir Alþingi á næstu dögum - 30.4.2010

Frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra um greiðsluaðlögun bílalána verður lagt fyrir Alþingi á næstu dögum. Þetta var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Lesa meira
 

Atvinnumiðstöð fyrir unga atvinnuleitendur í Kópavogi - 27.4.2010

Atvinnumiðstöð Kópavogs, þróunarverkefni á sviði staðbundinna vinnumarkaðsúrræða fyrir ungt fólk, verður opnuð í Kópavogi í byrjun næsta mánaðar. Samningur um þetta var undirritaður í gær.  

Lesa meira
 

Undirritun samnings um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ - 23.4.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ. Ráðgert er að hefja framkvæmdir í sumar og að heimilið verði tekið í notkun vorið 2012.

Lesa meira
 

Eigið fé Íbúðalánasjóðs verður mögulega aukið - 20.4.2010

Ársuppgjör Íbúðalánasjóðs sýnir að eiginfjárhlutfall sjóðsins er nú um 3% en markmið laga um sjóðinn er að það sé 5% eða hærra. Verið er að skoða leiðir til þess að bæta stöðu sjóðsins og kemur til greina að eigið fé hans verði aukið.

Lesa meira
 

Átak í atvinnumálum - sumarstörf og uppbygging hjúkrunarheimila - 9.4.2010

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun tillögu félags- og tryggingamálaráðherra sem tryggir allt að 830 störf fyrir námsmenn í sumar. Ráðherra kynnti einnig á fundinum fjármögnun vegna uppbyggingar 360 hjúkrunarrýma sem mun leiða af sér um 1.200 ársverk. Lesa meira
 

Atvinnuþátttaka öryrkja hvergi meiri en á Íslandi - 9.4.2010

Atvinnuþátttaka fólks með örorku eða langvarandi sjúkdóma er hvergi meiri en á Íslandi, borið saman við ríki OECD. Þetta kemur fram í nýlegri könnun Þjóðmálastofnunar sem gerð var fyrir Landssamtök lífeyrissjóða og örorkumatsnefnd forsætisráðuneytisins.

Lesa meira
 

80 milljónum króna úthlutað í styrki til að efla nærþjónustu við börn - 30.3.2010

Verkefnisstjórn hefur ákveðið úthlutun styrkja til verkefna sem ætlað er að efla þjónustu í heimabyggð við langveik börn og börn með athyglisbrest og ofvirkni. Úthlutað verður 80 milljónum króna til fjölbreyttra verkefna um allt land.

Lesa meira
 

Samið um áframhaldandi starfsemi Ekron - 26.3.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur samið við Ekron - atvinnutengda endurhæfingu, um áframhaldandi rekstur úrræða á sviði atvinnutengdrar endurhæfingar. Samningurinn gildir út júní á þessu ári. Lesa meira
 

Styrkir til atvinnumála kvenna - 26.3.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra úthlutaði í dag rúmum 30 milljónum króna í styrki til atvinnumála kvenna. Sótt var um styrki til rúmlega 300 verkefna og hafa umsóknir aldrei verið fleiri.

Lesa meira
 

Styrkjum úthlutað úr þróunarsjóði innflytjendamála - 23.3.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2009. Alls bárust 40 umsóknir til sjóðsins og voru veittir styrkir til 16 verkefna, samtals um 9.445.000 króna.

Lesa meira
 

Vinnueftirlitið og Vinnumálastofnun sameinast í einni öflugri vinnumarkaðsstofnun - 22.3.2010

Stefnt er að því að Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun sameinist um næstu áramót í nýrri og öflugri vinnumarkaðsstofnun. Félags- og tryggingamálaráðherra kynnti áformaða sameiningu á fundi með starfsfólki stofnananna tveggja í morgun.

Lesa meira
 

Ný reglugerð um úthlutun hjálpartækja vegna blindu, sjónskerðingar og daufblindu - 21.3.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett nýja reglugerð um úthlutun hjálpartækja sem ætlað er að auka og viðhalda færni þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða daufblindir, efla sjálfstæði þeirra og auka lífsgæði.

Lesa meira
 

Nýja hjúkrunarheimilið við Boðaþing í Kópavogi var vígt í dag - 19.3.2010

Hjúkrunarheimilið við Boðaþing í Kópavogi var vígt í dag. Framkvæmdum er að ljúka og fyrstu íbúarnir flytja inn á næstunni.

Lesa meira
 

Fundur um Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun - 19.3.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið efnir til fundar um Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun 25. mars næstkomandi í Iðnó.

Lesa meira
 

Umboðsmaður skuldara og ný lög um greiðsluaðlögun sem félagslegt úrræði - 17.3.2010

Stofnað verður embætti umboðsmanns skuldara til að gæta hagsmuna heimila í greiðsluvanda og sett ein lög um greiðsluaðlögun sem einfalda framkvæmdina og gerir úrræðið aðgengilegra.

Lesa meira
 

Um 150 ungir atvinnuleitendur til starfa hjá Íþróttasambandi Íslands - 17.3.2010

Vinnumálastofnun hefur samið við Íþróttasamband Íslands um að stýra sjálfboðaliðastarfi fyrir um 150 unga atvinnuleitendur.

Lesa meira
 

Tæpur helmingur forstöðumanna stofnana ráðuneytisins er konur - 15.3.2010

Af 16 stofnunum sem heyra undir félags- og tryggingamálaráðuneytið er níu þeirra stjórnað af körlum en sjö af konum, eða 44%. Forstöðumenn ríkisstofnana voru í febrúar 193 talsins, þar af voru konur 59 eða 31%.

Lesa meira
 

Unnið að fjölþættum aðgerðum vegna skuldavanda heimilanna - 15.3.2010

Á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins er nú unnið að fjölþættum aðgerðum vegna skuldavanda heimilanna. Markmið stjórnvalda er sem fyrr að ná samhengi milli skuldastöðu heimilanna og greiðslugetu þeirra.

Lesa meira
 

Opin samkeppni um hönnun nýs hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð - 13.3.2010

Boðað er til opinnar samkeppni um hönnun á nýju hjúkrunarheimili sem byggt verður á Eskifirði í Fjarðabyggð. Þetta er fyrsta heimili aldraðra sem verður hannað frá grunni samkvæmt viðmiðum ráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila.

Lesa meira
 

Áætlun um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks - 12.3.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í dag tillögur nefndar sem fjallað hefur um fyrirhugaða fullgildingu Íslands á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun.

Lesa meira
 

Auglýst eftir styrkumsóknum til verkefna tengdum Evrópuári gegn fátækt - 12.3.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna Evrópuárs 2010 sem er tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Til ráðstöfunar eru 35 milljónir króna.

Lesa meira
 

Ríki og borg virkja atvinnulaust ungt fólk - 12.3.2010

Efnt hefur verið til samstarfs milli félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um námskeiðahald fyrir ungt fólk án atvinnu á aldrinum 16-24 ára. Markmið námskeiðanna er að efla sjálfstraust, styrkja félagsfærni og styðja við náms- og atvinnuleit. Lesa meira
 

Barist fyrir jafnrétti og gegn kynbundnu ofbeldi - 8.3.2010

Grein eftir Árna Pál Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna sem er í dag, 8. mars.

Lesa meira
 

Ný áætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi - 5.3.2010

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu félags- og tryggingamálaráðherra um að ráðast í gerð nýrrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi fyrir tímabilið 2011-2015. Sérstaklega verður fjallað um meðferð kynbundinna ofbeldismála í dómskerfinu.

Lesa meira
 

Ráðherra á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York - 3.3.2010

„Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að vinna ötullega að jafnrétti karla og kvenna. Jafnrétti kynja er grundvöllur þess að efla lýðræði og skapa sjálfbæran heim, líkt og okkur ber skylda til gagnvart börnunum okkar og komandi kynslóðum.“ Þetta sagði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú fer fram í New York.

Lesa meira
 

Nýjung á sviði vinnumiðlunar og þjónustu við unga atvinnuleitendur - 26.2.2010

Opnuð verður Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar þar sem Vinnumálastofnun og bæjarfélagið munu annast svæðisbundna vinnumiðlun, ráðgjöf og aðra þjónustu við unga atvinnuleitendur í samráði við við Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. Þetta er þróunarverkefni og er stefnt að opnun svæðisbundinna atvinnumiðstöðva í fleiri sveitarfélögum.

Lesa meira
 

Vinnustaðaskírteini og virkt samstarf um eftirlit á vinnustöðum - 19.2.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Markmiðið er að stuðla að því að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.

Lesa meira
 

Auglýst eftir rekstraraðilum nýs hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut - 19.2.2010

Rekstur á nýju 110 rýma hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut hefst 1. ágúst og munu Ríkiskaup, fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðuneytisins, auglýsa eftir rekstraraðilum nú um helgina.

Lesa meira
 

Réttur einyrkja til atvinnuleysisbóta og hlutabóta - 17.2.2010

Sjálfstætt starfandi einstaklingur sem stöðvar rekstur sinn kann að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Atvinnuleysistryggingasjóður gerir ekki kröfu um að viðkomandi hafi lokað virðisaukaskattsnúmeri sínu heldur nægir að hann tilkynni til launagreiðendaskrá ríkisskattstjóra að reksturinn hafi verið stöðvaður. 

Lesa meira
 

Meira en helmingur þeirra sem fluttu frá Íslandi árið 2009 var erlendir ríkisborgarar - 16.2.2010

Tæplega 5.780 manns fluttust til Íslands frá öðrum löndum árið 2009. Brottfluttir voru þó mun fleiri en aðfluttir og nam fólksfækkunin 4.835 manns. Meira en helmingur þeirra sem fluttu frá landinu var erlendir ríkisborgarar samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Lesa meira
 

Skipað í innflytjendaráð til næstu fjögurra ára - 15.2.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað fulltrúa í innflytjendaráð til næstu fjögurra ára. Nýr formaður ráðsins er Íris Björg Kristjánsdóttir. Lesa meira
 

Ávarp félags- og tryggingamálaráðherra við opnum afmælishátíðar Félags heyrnarlausra - 11.2.2010

„Áratugum saman meinuðu stjórnvöld heyrnarlausum að njóta tjáskipta á því máli sem þið áttuð möguleika á að tileinka ykkur, táknmálinu. Afleiðingin varð sú að margar kynslóðir heyrnarlausra fóru á mis við þau tækifæri til þroska og menntunar, sem okkur finnst öllum sjálfsagt að njóta.“ 

Lesa meira
 

Daglega fá um 80 ungmenni ráðgjöf hjá miðstöð átaksins Ungt fólk til athafna - 11.2.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra heimsótti þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar við Engjateig í morgun, ræddi við starfsfólk og atvinnuleitendur og kynnti sér námskeið og úrræði fyrir fólk í atvinnuleit. Hann heimsótti einnig miðstöð átaksins Ungt fólk til athafna, en þangað koma daglega um 80 ungmenni og fá leiðsögn og ráðgjöf.

Lesa meira
 

Móttaka fólks frá Haítí til umfjöllunar í flóttamannanefnd - 5.2.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur falið flóttamannanefnd að fjalla um möguleika þess að taka á móti fólki frá Haítí á grundvelli ákvæða í lögum um útlendinga sem fjalla um fjölskyldusameiningu og heimildar til að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Lesa meira
 

Námstækifæri fyrir allt að 700 unga atvinnuleitendur - 5.2.2010

Vinnumálastofnun hefur samið við samtök símenntunarmiðstöðva um fjölbreytt menntunarúrræði fyrir allt að 700 ungmenni. Áætlað er að um 300 milljónum króna verði varið til verkefnisins.

Lesa meira
 

Auglýsing um styrki úr mótvægissjóði velferðarvaktarinnar - 5.2.2010

 Velferðarvaktin auglýsir eftir umsóknum í mótvægissjóð vaktarinnar.Tilgangur sjóðsins er að styðja við aðgerðir sem draga úr afleiðingum efnahagskreppunnar fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu. Lesa meira
 

Samið við RKÍ um sjálfboðastörf fyrir allt að 180 unga atvinnuleitendur - 4.2.2010

Vinnumálastofnun og Rauði kross Íslands hafa gert með sér samning sem tryggir allt að 180 sjálfboðastörf fyrir unga atvinnuleitendur á þessu ári. Þetta er tæpur helmingur þeirra sjálfboðaliðastarfa sem stofna á til samkvæmt átaki félags- og tryggingamálaráðuneytis og Vinnumálastofnunar: Ungt fólk til athafna.

Lesa meira
 

Mikill áhugi sveitarfélaga á styrkjum til að efla þjónustu við langveik og ofvirk börn - 3.2.2010

Um þrjátíu sveitarfélög og samtök þeirra sóttu um styrki til tæplega áttatíu verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Umsóknarfrestur rann út 27. janúar. Lesa meira
 

Nýr formaður flóttamannanefndar - 26.1.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Mörð Árnason formann flóttamannanefndar. Hann tekur við af Guðrúnu Ögmundsdóttur sem sagði af sér formennsku í október síðastliðnum, en varamaður hefur gegnt formennsku frá þeim tíma.

Lesa meira
 

Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun - 22.1.2010

Evrópusambandið hefur helgað árið 2010 baráttu gegn fátækt og félagslegri einangrun. Stöðvum fátæktina strax er kjörorð átaksins sem Barroso, forseti Evrópuráðsins, ýtti formlega úr vör í gær. Félags- og tryggingamálaráðuneytið stýrir verkefninu hér á landi.

Lesa meira
 

Samráðshópur skipaður um framkvæmd laga um greiðsluvandaúrræði - 21.1.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað þverpólitískan samráðshóp til að meta árangur af framkvæmd laga um aðgerðir í þágu einsaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrirshrunsins. Lesa meira
 

Ný námstækifæri í framhaldsskólum fyrir ungt fólk án atvinnu - 19.1.2010

Unnið er að þróun nýrra námstækifæra á framhaldsskólastigi fyrir ungt fólk án atvinnu samkvæmt samkomulagi sem ráðuneyti félagsmála og menntamála hafa gert með sér. Þess er vænst að um 200 ungmenni geti nýtt sér slík námstilboð á vorönn.

Lesa meira
 

Styrkir til atvinnumála kvenna - 19.1.2010

Auglýst er eftir styrkjum til atvinnumála kvenna sem félags- og tryggingamálaráðherra veitir ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.

Lesa meira
 

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar - 18.1.2010

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar verður haldið í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytisins í febrúar. Skráningarfrestur er til 26. janúar.

Lesa meira
 

Sterkur hugmyndafræðilegur agi er forsenda árangurs í jafnréttismálum - 15.1.2010

Reynslan hefur sýnt að til þess að ná árangri í jafnréttismálum þarf beinar aðgerðir og sterkan hugmyndafræðilegan aga, sagði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra þegar hann ávarpaði málþing Háskóla Íslands um jafnréttismál í dag.

Lesa meira
 

Reykjavíkurborg tekur að sér þjónustu við geðfatlaða - 14.1.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar munu ganga til samninga um að Reykjavíkurborg taki að sér ábyrgð og framkvæmd á þjónustu við geðfatlaða sem Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík hefur sinnt fram til þessa. Lesa meira
 

Skilgreining á grunnþjónustu sveitarfélaga - 13.1.2010

Velferðarvaktin hefur skilgreint hvað felst í grunnþjónustu ríkis og sveitarfélaga og sett fram ábendingar um hvaða leiðir skuli fara til að verja grunnþjónustuna þegar teknar eru ákvarðanir um hagræðingu og niðurskurð. Málið var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.

Lesa meira
 

Evrópusamstarf kynnt á Háskólatorgi 14. janúar - 11.1.2010

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15–18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.

Lesa meira
 

Framlengdur frestur sveitarfélaga til að sækja um styrki vegna þjónustu við börn - 8.1.2010

Verkefnisstjórn hefur ákveðið að framlengja umsóknarfrest um styrki vegna þjónustu við langveik börn og börn með ADHD greiningu til 27. janúar næstkomandi.  Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma. Lesa meira
 

Athugasemd vegna undirskriftalista InDefence - 4.1.2010

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu hefur borist ábending um að nafn ráðuneytisins hafi verið skráð á undirskriftalista InDefence hópsins: Áskorun til forseta Íslands - Þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög.

Lesa meira
 

Hækkun viðmiðunarfjárhæðar eignamarka vegna húsaleigubóta - 4.1.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út viðmiðunarfjárhæð um eignamörk til útreiknings á húsaleigubótum fyrir árið 2010. Hækkunin nemur 7,51% í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs á liðnu ári.

Lesa meira
 

Hækkun viðmiðunarfjárhæða tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða - 4.1.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út viðmiðunarfjárhæðir um tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða fyrir árið 2010. Fjárhæðirnar hækka um 7,51% í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs á liðnu ári.

Lesa meira
 

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica