Áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, hefur verið tryggður með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í dag. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.
Lesa meiraVelferðarráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi frumvarpi til laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að almennt eigi allir einstaklingar rétt til atvinnutengdrar starfsendurhæfingar, hvort sem þeir eru á vinnumarkaði eða standa utan hans, að því gefnu að þeir uppfylli skilyrði frumvarpsins að öðru leyti.
Lesa meira
Velferðarráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Með frumvarpinu eru lögð til skýr lagaákvæði um að óheimilt sé að beita fatlað fólk nauðung nema að undanþága hafi verið veitt eða um sé að ræða neyðartilvik. Bannið nær einnig til fjarvöktunar á heimilum fatlaðs fólks.
Lesa meira
Samþætta þarf alla almenna stefnumótun, skipulag, stofnanir og þjónustu og efla skilning almennings á fötlun til að auka þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Þetta var meðal þess sem kom fram í ávarpi dr. Toms Shakespeare sem kynnti nýja alþjóðlega skýrslu um aðstæður fatlaðs fólks á málþingi 15. mars síðastliðinn.
Lesa meira
Fyrsta alþjóðaskýrslan sem gerð hefur verið um fötlun og aðstæður fatlaðs fólks verður kynnt á málþingi sem velferðarráðuneytið í samstarfi við fleiri aðila efnir til 15. mars næstkomandi. Aðalfyrirlesari er Dr. Tom Shakespeare, sérfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og einn af höfundum skýrslunnar.
Lesa meira
Guðbjartur Hannesson flutti ávarp við opnun fyrstu ráðstefnu Special Olympics á Íslandi sem fram fór laugardaginn 25. febrúar. Ráðherra ræddi meðal annars um íþróttir fyrir alla og mikilvægi skipulegs íþróttastarfs fyrir fatlað fólk.
Lesa meiraGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra ræddi um aðdraganda verkefnis um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), mikilvægar lagabreytingar, setningu laga um réttindagæslu fatlaðs fólks og ýmsa fleiri áfanga sem tengjast málinu þegar hann ávarpaði ráðstefnu sem verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð hélt í dag.
Lesa meiraVerkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð heldur ráðstefnu 10. febrúar þar sem kynnt verður hugmyndafræði, framkvæmd og skipulag slíkrar þjónustu. Ráðstefnan verður einnig send út á Netinu.
Lesa meiraGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur gefið út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk. Reglurnar taka til þjónustu stuðningsfjölskyldna, ferðaþjónustu, styrkja til náms og til verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.
Lesa meiraTillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012–2014 er nú aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins. Tillagan var unnin í samræmi við bráðabirgðaákvæði laga um málefni fatlaðs fólks sem meðal annars kveður á um að sett skuli fram stefna í málefnum fatlaðs fólks, forgangsröðun verkefna, aðgerðaáætlun og skilgreindir árangursmælikvarðar.
Lesa meira