Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra er fæddur á Akranesi þann 3. júní 1950. Hann tók við embætti velferðarráðherra þann 1. janúar 2011.
Foreldrar: Hannes Þjóðbjörnsson fæddur 20. janúar 1905, dáinn 2. október 1984, verkamaður og kona hans Ólafía Rannveig Jóhannesdóttir fædd 30. maí 1910, dáin 30. janúar 2007.
Maki: Sigrún Ásmundsdóttir fædd 17. desember 1951, yfiriðjuþjálfi. Foreldrar maka: Ásmundur Jónatan Ásmundsson og kona hans Hanna Helgadóttir.
Dætur: Birna, fædd 1978 og Hanna María fædd 1988.
Menntun: Meistarapróf frá kennaraskóla Lundúnaháskóla (Institute of Education, University of London) 2005. Framhaldsnám í skólastjórn KHÍ 1992-1995. Tómstundakennarapróf frá Seminariet for Fritidspædagoger, Vanløse, Danmörku 1978. Kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands 1971.
Guðbjartur Hannesson var kjörinn á þing árið 2007 fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi. Hann var endurkjörinn árið 2009 sem 3. þingmaður Norðvesturkjördæmis. Í september 2010 var Guðbjartur skipaður félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra og gegndi því starfi til ársloka 2010 þegar ráðuneytin voru sameinuð í velferðarráðuneytið.
Guðbjartur var forseti Alþingis á árinu 2009.
Nefndastörf á Alþingi:
- Félags- og tryggingamálanefnd 2007 – 2009 (formaður frá 2009 - )
- Fjárlaganefnd 2007 – 2009 (formaður frá 2009 - )
- Menntamálanefnd 2007 – 2009
- Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2007 – 2009
- Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2009 -
Starfsferill:
- Ráðherra frá 2010
- Þingmaður frá 2007
- Skólastjóri Grundaskóla Akranesi 1981-2007
- Kennari við Grunnskóla Akraness 1979-1981
- Kennari við Peder Lykke Skolen á Amager í Kaupmannahöfn 1978-1979
- Erindreki Bandalags íslenskra skáta 1973-1975
- Kennari við Grunnskóla Akraness 1971-1973
Stjórnar- og nefndaseta:
- Bæjarstjórn Akranesbæjar 1986 – 1998
Í bæjarráði 1986 – 1998, formaður 1986 – 1989 og 1995 – 1997
Forseti bæjarstjórnar 1988 – 1989, 1994 – 1995 og 1997 – 1998 - Framkvæmdanefndir um byggingu Grundaskóla og leikskólans Garðasels 1981 – 2001
- Æskulýðsnefnd Akranesbæjar 1982 – 1986
- Fulltrúi skólastjóra í skólanefnd Akranesbæjar 1981 – 2007
- Fulltrúi á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 1986 – 1994
- Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1986 – 1998
- Stjórn Rafveitu Akraness 1986 – 1990 og 1994 – 1995
- Stjórn Akranesveitu 1995 – 1998
- Stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar 1994 – 1998, formaður 1995 – 1998
- Samstarfsnefnd um svæðisskipulag sunnan Skarðsheiðar 1990 – 1996
- Starfshópur um vinnu við mótun markmiða og stefnu í málefnum leikskóla á Akranesi 1992 – 1994
- Samstarfsnefnd um mótun tillagna um uppbyggingu og rekstur íþróttamannvirkja á Akranesi 1993 – 1994
- Stjórn útgerðarfélagsins Krossvíkur hf. 1994 – 1996
- Stjórn Sjúkrahúss- og heilsugæslustöðvar Akraness (SHA) 1996 – 1998
- Fulltrúi sveitarfélaga í SAMSTARF, samstarfsnefnd um framhaldsskóla 1996 – 2001
- Formaður Akraneslistans 1998 – 2000
- Formaður skipulagsnefndar Akranesbæjar 1998 – 2002
- Bankaráð Landsbanka Íslands 1998 – 2003
- Bankaráð Heritable-bankans í London (eign Landsbankans síðan 2000) 2002 - 2003
