Skipurit

Skipurit velferðarráðuneytisins

Velferðaráðuneytið skiptist í átta skrifstofur: Skrifstofu yfirstjórnar, skrifstofu fjárlaga, skrifstofu rekstrar og innri þjónustu, skrifstofu lífskjara og vinnumarkaðar, skrifstofu greiningar og hagmála, skrifstofu velferðarþjónustu, skrifstofu gæða og forvarna og skrifstofu réttindaverndar.

Fagsvið ráðuneytisins eiga að sjá til þess að ávallt sé unnið faglega að undirbúningi mála og að þekking starfsmanna sé nýtt og henni viðhaldið. Stoðsvið ráðuneytisins eiga að sjá til þess að ávallt séu til staðar stjórnunar- og fjárhagslegar upplýsingar til undirbúnings og stuðnings við ákvarðanatöku hjá ráðuneytinu og stofnunum þess eftir því sem við á.

Markmiðið með þessu stjórnskipulagi er að treysta stefnumótun og samræma aðgerðir og vinnubrögð við framkvæmd stefnu ráðuneytisins og ráðherra. Jafnframt felur stjórnskipulagið í sér eflingu á innri starfsemi ráðuneytisins með áherslu á markvissa stjórnun.

Skipurit velferðarráðuneytis 1. janúar 2011

Nánar um verkefni einstakra skrifstofa


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: