Airbnb veitir flóttafólki húsaskjól
Forráðamenn Airbnb vefsíðunnar hafa tekið upp samstarf við alþjóðlegu björgunarsamtökin -
International Rescue Committee (IRC)
- um skammtíma gistingu fyrir flóttafólk. Airbnb er því komið í hóp
fjölmargra fyrirtækja sem hafa ákveðið að styðja við bakið á flóttafólki
sem flýr stríðsátök, að því er segir í frétt Reuters fréttaveitunnar.
Að sögn talsmanna Airbnb er ætlunin að hýsa 100 þúsund manns tímabundið á næstu fimm árum, þeirra á meðal flóttafólk, fólk á vergangi, þá sem lifa af hamfarir og útlent starfsfólk sem vinnur að hjálparstarfi og mannúðarmálum. Fyrirtækið hefur aukin heldur lagt fram 4 milljónir bandarískra dala til IRC.