Hoppa yfir valmynd
21. mars 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Dagur Norðurlanda

Fánar Norðurlanda. Ljósmynd: Johannes Jansson/norden.org
Fánar Norðurlanda. Ljósmynd: Johannes Jansson/norden.org

Á degi Norðurlanda, 23. mars 1962, undirrituðu fulltrúar norrænu þjóðríkjanna samstarfssáttmála í Helsinki og mörkuðu þar með upphafið að svæðasamstarfi fimm fullvalda ríkja sem á sér enga hliðstæðu í heiminum í dag. Fyrir Ísland var undirritun Helsinkisáttmálans mikið gæfuspor, aðgangur opnaðist að sameiginlegum norrænum vinnumarkaði, norrænu velferðarkerfi og æðri menntastofnunum.

Norræna ráðherranefndin er vettvangur norræna ríkisstjórnarsamstarfsins en á síðasta ári var komið að Íslandi að gegna þar formennsku. Á formennskuárinu lögðum við áherslu á nokkur stór verkefni  sem eru öll til þriggja ára, 2014-2016.

Verkefnin ganga vel

Stærsta verkefnið er Norræna lífhagkerfið, eða NordBio. Það fjallar í stuttu máli um mikilvægi þess að nýta sem best lifandi auðlindir okkar og að sem minnst fari í súginn. Þetta krefst nýskapandi hugsunar; úrgangur verður að auðlind sem hægt er að nýta til verðmætasköpunar. Um leið nýtur umhverfið góðs og atvinnutækifæri skapast í byggðum landsins.

Kennslufræðitilraunin BioPhilia byggir á samnefndu listaverki söngkonunnar Bjarkar Guðmundsdóttur. Áhersla er lögð á að brjóta upp hefðbundnar kennsluaðferðir með því að tvinna saman vísindi og listir.

Norræna velferðarvaktinbyggir á samnefndu verkefni sem sett var hér á laggir strax eftir efnahagshrunið 2009. Efnahagskreppur og vár á Norðurlöndum undanfarna áratugi verða rannsakaðar og viðbragðsstyrkur norrænu velferðarkerfanna í alvarlegum fjármálaþrengingum verður metinn.

Norræni spilunarlistinner menningarverkefni þar sem markmiðið er að kynna norræna popptónlist jafnt innan Norðurlanda sem utan. Verkefnið nýtir netið til þess að ná  til almennings en miðstöð þess er á heimasíðu þar sem kynningin fer fram. Viðtökur hafa farið langt fram út björtustu vonum. Ofangreind verkefni ganga mjög vel og stefna í að skila góðum árangri fyrir íbúa Norðurlandanna. Þau eru dæmi um jákvæðan framgang norrænnar samvinnu.

Nýlegar áskoranir

Nýlegar áskoranir er einnig að finna í norrænu samstarfi um þessar mundir sem finna þarf lausn á og vil ég nefna tvær þeirra, stöðu upplýsingaskrifstofa í Rússlandi og aukna þörf fyrir ráðstefnutúlkun.

Undanfarin 20 ár hefur Norræna ráðherranefndin rekið upplýsingaskrifstofur í Rússlandi. Nýverið hafa rússnesk stjórnvöld með hertum reglum þrengt mjög að starfsemi skrifstofanna. Rekstrarumhverfi skrifstofanna er nú orðið óviðunandi og hafa samstarfsráðherrar Norðurlanda því ákveðið að loka þeim. Ákvörðunin var allt annað en auðveld en vonast er til að hægt verði að hefja starfsemi á ný í framtíðinni.

Samstarfstungumál norræns samstarfs eru danska, norska og sænska. Þess vegna er mikilvægt að ekki verði dregið úr kennslu í þessum tungumálum hér á landi. Á norrænum fundum verður þörf á færum íslenskum ráðstefnutúlkum í framtíðinni. En vegna fjárskorts var ekki boðið upp á ráðstefnutúlkanám við Háskóla Íslands á þessu skólaári. Starfshópur hefur nú verið skipaður um þetta málefni og vona ég að niðurstaða hans verði að kennsla geti hafist á ný.

Eygló  Harðardóttir,
samstarfsráðherra Norðurlandanna 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum