Framkvæmdasjóður aldraðra
Framkvæmdasjóður aldraðra
Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra
Framkvæmdasjóður aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og er í vörslu velferðarráðuneytisins. Sjóðurinn er fjármagnaður með sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem skattskyldir eru á aldrinum 16-70 ára, samkvæmt lögum um tekjuskatt. Sjóðnum er ætlað að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og skal fé úr honum varið til byggingar stofnana fyrir aldraða, þjónustumiðstöðva og dagvista, að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og á slíku húsnæði og til viðhalds húsnæðis dagvistar-, dvalar- og hjúkrunarheimila, auk annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu. Nánar er kveðið á um hlutverk sjóðsins í reglugerð um Framkvæmdasjóð aldraðra nr. 1/2011.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra annast stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra. Nefndin gerir árlega tillögur til velferðarráðherra um úthlutun úr sjóðnum og skal umsóknum raðað í forgangsröð í samræmi við þörf á hverjum stað.
Umsóknir um framlög úr sjóðnum
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra auglýsir reglulega eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Í umsóknareyðublöðum velferðarráðuneytisins á umsóknarvef STJR kemur fram hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að umsókn komi til greina, hvaða upplýsingar þurfa að koma fram og hvaða fylgigagna er krafist.
- Sótt er um á umsóknarvef STJR: http://umsokn.stjr.is
- Leiðbeiningar um notkun umsóknarvefs Stjórnarráðsins
- Viðmið um skipulag hjúkrunarheimila
Auglýsingar og úthlutanir úr sjóðnum
- Yfirlit yfir úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árunum 2000 - 2010
- Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2012
- Auglýsing um Framkvæmdasjóð aldraðra fyrir árið 2012
- Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2011
- Auglýsing um Framkvæmdasjóð aldraðra í janúar 2011
- Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2010
- Auglýst eftir umsóknum um framlög úr sjóðnum fyrir árið 2010
- Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra í mars 2008
