A.01. Háhraðatengingar
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Ottó V. Winther, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu - [email protected]
Fréttir af verkefninu
27.01.22 Byggðastyrkir styðja við áætlun fjarskiptasjóðs. Aðgerðin hófst árið 2017 og það ár var 100 m.kr. úthlutað í byggðastyrki. Þannig hefur samtals 400 m.kr. verið veitt til 30 sveitarfélaga á tímabilinu 2017-2021.
18.12.20 24 sveitarfélög hafa fengið styrk. Áætlað er að verkefninu verði lokið fyrir árslok 2021.
12.06.20 Stjórnvöld hraða ljósleiðaravæðingu í dreifbýli
29.11.19 Allir byggðakjarnar landsins með ljósleiðara eftir tenginu til Mjóafjarðar
22.03.19 Samið við 23 sveitarfélög um styrki til ljóðleiðaravæðingar í dreifbýli
18.02.19 Úthlutun úr Fjarskiptasjóði vegna ljósleiðaravæðingar
08.02.19 Ísland ljóstengt - úthlutað eftir viku
20.11.18 Ísland ljóstengt: Svör við spurningum um umsóknarferli A-hluta 2019
05.11.18 Opnað fyrir umsóknir um styrki í verkefninu Ísland ljóstengt
Verkefnið
Markmið: Að öll lögheimili og vinnustaðir eigi kost á háhraðanettengingu um ljósleiðara.
Stutt lýsing: Staða háhraðanettenginga á landsvísu verði greind og sú greining lögð til grundvallar samkeppnishvetjandi aðgerðum og aðkomu opinberra aðila að verkefninu, reynist þess þörf. Forgangsmál verði að koma um 50 minni byggðakjörnum sem hafa takmarkað aðgengi að nútímaháhraðanettengingum í tengingu við ljósleiðara. Gripið verði til annarra ásættanlegra lausna í þeim tilfellum þar sem ekki er talið ákjósanlegt að tengja með ljósleiðara.
- Ábyrgð: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: Fjarskiptafyrirtæki og sveitarfélög.
- Dæmi um samstarfsaðila: Fjarskiptastofa, Fjarskiptasjóður og innviðaráðuneytið
- Tímabil: 2022–2025.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Fjarskiptaáætlun, nýsköpunarstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9, einkum undir¬markmið 9.1 og 9.4
- Tillaga að fjármögnun: 172 millj. kr. úr byggðaáætlun.