Hoppa yfir valmynd

32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála​

Forsætisráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra, forsætisráðherra og félags- og vinnumálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. 

Breytingar á ramma milli áranna 2023–2024

Heildargjöld málefnasviðs 32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála árið 2024 eru áætluð 11.857,7 m.kr. og lækka um 220,1 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023 eða sem svarar til 1,9% lækkunar. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 560,1 m.kr. milli ára eða sem svarar til 4,7 %.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Útgjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit

Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, embættis landlæknis, Geislavarna ríkisins og Lyfjastofnunar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Efling heilsu og heilbrigðra lifnaðarhátta

Innleiðing aðgerða á sviði lýðheilsustefnu og geðheilbrigðisstefnu.*

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi.*

Heilbrigðisráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Hvatning og stuðningur við heilsueflingu og forvarnir sem hluta af allri heilbrigðisþjónustu. 

Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis

Innan ramma

Innleiðing krabbameinsáætlunar með hliðsjón af heilbrigðisstefnu, lýðheilsustefnu og krabbameins-áætlun ESB.

       

Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir

       

Innan ramma

Markmið 2: Aukið öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks

Mannaflaþörf greind fyrir fjölmennustu heilbrigðisstéttir í heilbrigðisþjónustunni.*

Sett upp lifandi mælaborð yfir stöðu mönnunar og notað til stefnumótunar og áætlanagerðar.

Unnið að skilgreiningu læknaþjónustu á Íslandi til framtíðar.

Heilbrigðisráðuneyti og fjármálaráðuneyti

Innan ramma

Innleiðing gæðaáætlunar um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu, gæðavísar skilgreindir og birtir og gerðar kröfur til veitenda heilbrigðisþjónustu um gæðauppgjör.

Embætti landlæknis og heilbrigðisstofnanir

Innan ramma

Markmið 3: Aukin gæði og efling rafrænnar heilbrigðisþjónustu

Áfram unnið að samþættingu á rafrænni sjúkraskrá og innleiðingu verkefna á sviði stefnu um stafræna heilbrigðisþjónustu.

Embætti landlæknis

150 m.kr.

Áfram unnið að samþættingu á rafrænni sjúkraskrá, stafrænni skráningu og stafrænum skilum heilbrigðisgagna.

Heilbrigðisráðuneytið

Innan ramma

Efling fjarheilbrigðisþjónustu með innleiðingu viðeigandi tækni- og öryggislausna, skilgreint verði í lögum hvað felst í fjarheilbrigðisþjónustu og mismunandi þáttum hennar.

Heilbrigðisráðuneytið og embætti landlæknis

Innan ramma

     

Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 í málaflokki 24.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 3.438,5 m.kr. og lækkar um 175,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 241,0 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Útgjöld málaflokksins lækka um 200 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjuáætlunum stjórnsýslustofnana.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 150 m.kr. vegna þróunar rafrænnar sjúkraskrár hjá Embætti landlæknis.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 125,5 m.kr. og er aðhald útfært hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.

32.2 Jafnréttismál

Starfsemi málaflokksins er í höndum forsætisráðuneytis og Jafnréttisstofu. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl. 

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Launajafnrétti verði náð – kynbundnum launamun verði útrýmt

Tryggja áframhaldandi framfylgd jafnlaunavottunar í samræmi við lög nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Forsætisráðuneyti

Innan ramma

Unnið að og fylgt eftir tillögum aðgerðahóps um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði.

Forsætisráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Sporna við kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

Framfylgd verkefna í þingsályktun nr. 37/150 um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.

Forsætisráðuneyti og Jafnréttisstofa

Innan ramma

Markmið 3: Réttindi hinsegin fólks tryggð

Framfylgd verkefna í aðgerðaályktun í málefnum hinsegin fólks.

Forsætisráðuneyti

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 374,6 m.kr. og lækkar um 65,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 25,4 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða. 

  1. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 35 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður. Annars vegar 20 m.kr. framlag vegna aðgerða gegn hatursorðræðu, þingsályktunartillaga og hins vegar 15 m.kr. framlag til Samtakanna '78.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu  málefnasviðsins nemur 13,2 m.kr.
  3. Þá er gerð 17,4 m.kr. leiðrétting á sértekjum Jafnréttisstofu til lækkunar.

32.3 Stjórnsýsla heilbrigðismála

Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Sjúkratrygginga Íslands og vísindasiðanefndar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Skilvirk stjórnsýsla heilbrigðismála

 

Áframhaldandi innleiðing Power Bi mælaborða á heilbrigðisstofnunum.

Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir

Innan ramma

Markmið 2: Jafnrétti í bólusetningum kynja

 

Víðtækari bólusetning gegn HPV-veirunni til að auka vörn gegn krabbameini. Bólusett óháð kyni í 7. bekk grunnskólanna.

Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 4.235,4 m.kr. og lækkar um 2,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 282,5 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Útgjöld málaflokksins lækka um 24,6 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjuáætlunum stjórnsýslustofnana.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 156,2 m.kr. vegna aukinna framlaga til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og styrkingar aðalskrifstofu Sjúkratrygginga Íslands vegna nýrra verkefna.
  3. Almennt útgjaldasvigrúm málaflokksins er 25 m.kr.
  4. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 143,5 m.kr. og er aðhald útfært hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
  5. Sérstök viðbótaraðhaldskrafa á aðalskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins nemur 10,7 m.kr.

32.4 Stjórnsýsla félagsmála

Starfsemi málaflokksins er í höndum aðalskrifstofu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, auk þess sem rekstur úrskurðarnefndar velferðarmála, Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála og Tryggingastofnunar fellur undir málaflokkinn. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins. 

 

Helstu verkefni 2024 Framkvæmdaraðili Breyting á fjárveitingu til verkefnis
Markmið 1: Skilvirkari stjórnsýsla félagsmála.
Markviss stjórnendafræðsla meðal stjórnenda í FRN og forstöðumanna stofnana FRN sem miðar að því að styrkja stjórnun og þar með stjórnsýslu félagsmála á öllum stigum. Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti Innan ramma
Starfsemi fjögurra fagteyma innan FRN sem ætlað er að bæta stjórnsýslu félagsmála hvert á sínu sviði. Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti Innan ramma
     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 3.809,2 m.kr. og hækkar um 23,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 231,3 m.kr.

Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins. 

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um örorku er fjárheimild málaflokksins aukin tímabundið um 270 m.kr. vegna heildarendurskoðunar örorkulífeyriskerfisins. Um er að ræða kostnað vegna undirbúnings og innleiðingar þverfaglegs heilsufarsmats þvert á stofnanir og nýs greiðslukerfis starfsendurhæfingar og örorku, sbr. markmið í málaflokkum 27.10, 27.20 og 30.10. Þá eru 154 m.kr. varanlegar af fjárhæðinni sem er áætlaður kostnaður af rekstri matsnefnda. Helstu verkþættir á næsta ári eru breytingar og aðlögun  á mats- og greiðslukerfum sem og heilsuveru. Meginþungi verkefnisins er á árinu 2024 og á árinu 2025 þegar nýtt kerfi verður tekið í notkun.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin 80 m.kr. vegna hækkunar útgjaldasvigrúms málaflokksins.
  3. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 102,1 m.kr. vegna ráðstöfunar á útgjaldasvigrúmi ráðuneytis milli málefnasviða.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 315 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður. Um er að ræða 300 m.kr. vegna þriggja ára verkefnis í endurnýjun stafrænna innviða hjá Tryggingastofnun sem var hluti af fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar til að sporna við niðursveiflu í efnahagslífinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru 2020. Þá eru 15. m.kr. niðurfelldar vegna tímabundinna verkefna.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 196,9 m.kr. og er með  hlutfallslega skiptingu niður á stofnanir og verkefni málaflokks.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum