8. október 2014: Geðheilsa og vellíðan barna og unglinga
Ráðstefnan fjallar um geðheilsu og vellíðan barna á Norðurlöndum og hvernig nýta má norrænt samstarf og sérþekkingu til frekari eflingar á geðræktarstarfi og forvörnum á sviði geðheilsu. Ráðstefnan verður haldin í Nauthóli þann 8. október frá kl. 9:00 til 16:00.
Ráðstefnan er hluti af viðburðaröð velferðarráðuneytisins á sviði félags- og heilbrigðismálavegna formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni á árinu 2014.
Ráðstefnan er öllum opin og gjaldfrjáls.
Erindi á ráðstefnunni eru á ensku.
- Dagskrá ráðstefnunnar
Athugið að ráðstefnan verður send út beint á vef ráðuneytisins, www.vel.is
Upptökur frá ráðstefnunni og glærur
- Ávarp Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félagsmálaráðherra
- Geðheilsa ungmenna og velferð þjóða
Geir Gunnlaugsson, landlæknir - Aðalfyrirlestur: Hvernig eflum við geðheilsu og forvarnir gegn geðrænum vanda meðal ungs fólks og stuðlum að bættum efnahag samfélagsins?
Arne Holte, aðstoðarframkvæmdastjóri norsku Lýðheilsustofnunarinnar (Folkehelseinstituttet; FHI) og prófessor í heilsusálfræði við Óslóarháskóla
- Glærur - Fá börnin okkar þá hjálp sem þau þurfa? Aðgengi barna að geðheilbrigðisþjónustu í nærumhverfi
Ingibjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og sérfræðingur í klínískri sálfræði og hagnýtri atferlisgreiningu
- Prezi-kynning - Farsælt samstarf stofnana til að efla geðheilsu barna í Finnlandi
Päivi Santalahti, sérfræðingur í barnageðlækningum, deildarstjóri geðheilbrigðismála barna og unglinga hjá finnsku heilbrigðisstofnuninni (Terveyden ja hyvinvoinnin laitos; THL) og dósent við barnageðlækningadeild Turku háskóla
- Glærur - Geðheilsa ungs fólks í Danmörku: Tíðni geðraskana og þróun yfir tíma
Pernille Due, yfirmaður heilsufarsrannsókna barna og unglinga hjá dönsku Lýðheilsustofnuninni (Statens Institute for Folkesundhed)
- Glærur - Geðheilsa barna og ungmenna í Svíþjóð: Þróun og forvarnir
Johanna Ahnquist, deildarstjóri geðheilbrigðismála barna og ungmenna á Þekkingarþróunarsviði sænsku Lýðheilsustofnunarinnar (Folkhälsamyndigheten)
- Glærur - Aðalfyrirlestur: Lýðgeðheilsa: Tækifæri til innleiðinga
Jonathan Campion, geðlæknir og yfirmaður lýðgeðheilsu hjá UCL Partners og South London and Maudsley NHS Foundation Trust í Bretlandi
- Glærur - Geðheilbrigðisstefna á Íslandi
Guðrún Sigurjónsdóttir, sérfræðingur, staðgengill skrifstofustjóra, skrifstofa heilbrigðisþjónustu, Velferðarráðuneytið
- Glærur - Hvernig búum við til samfélag þar sem börnin okkar geta blómstrað?
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri Áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti landlæknis
- Glærur - Pallborðsumræður
Children's Mental Health and Well-Being:
Policy and Future Directions in the Nordic Countries
Conference on mental health promotion and prevention in youth
October 8th 2014 at Nauthóll, Reykjavík
This one-day conference is centered on the mental health and well-being of youth in the Nordic countries and how Nordic collaboration and expertise may be applied to further improve mental health promotion and prevention.
The conference is a part of the programme of events for health and social affairs during the Icelandic Presidency of the Nordic Council of Ministers in 2014.
The conference is open to all. Registration is required at http://registration.yourhost.is/forms/cmhw2014/skraning.php
The conference language is English.
- Programme
There will be a simultaneous transmission on the internet from the conference on the ministry's website, www.vel.is