Hoppa yfir valmynd
8. október 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Vel sótt fræðsluþing um kynferðisofbeldi gegn börnum

Fræðsluþing á Egilsstöðum
Fræðsluþing á Egilsstöðum

Tæplega tvö hundruð grunnskólakennarar og fagaðilar sem starfa með börnum sóttu fræðsluþing um kynferðisofbeldi gegn börnum sem fram fóru á þremur stöðum á landinu í síðustu viku. Á þingunum er fjallað um leiðir til að útrýma kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum.

Þingin eru liður í vitundarvakningarátaki íslenskra stjórnvalda í samræmi við sáttmála Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu gegn börnum. Fyrirlesarar úr ýmsum áttum fræða um leiðir til að sporna við því að börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi en einnig um hvernig skuli bregðast við þegar slíkt á sér stað. Hugmyndin er að búa til net tengiliða allra grunnskóla á Íslandi sem hafi það að markmiði að auka þekkingu á kynferðisofbeldi innan síns skóla.

Í síðustu viku var þingað í Borgarnesi, á Akureyri og Egilsstöðum en Hvolsvöllur, Ísafjörður og Reykjavík verða viðkomustaðir dagana 8., 9. og 10. október. Þingin eru opin öllum sem vinna að velferð barna, svo lengi sem húsrúm leyfir. Fyrirlestrarnir verða teknir upp á settir á vef vitundarvakningarinnar: www.vel.is/vitundarvakning.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum