Hoppa yfir valmynd
6. mars 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði  félagsmála lausir til umsóknar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum um verkefni sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði félagsmála. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 23. mars 2015.

Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Styrki má m.a. veita til verkefna sem felast í því að:

  1. Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
  2. Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
  3. Bjóða félagsmönnum upp á stuðning og ráðgjöf.

Ekki eru veittir styrkir eingöngu til reksturs.

Einnig eru veittir styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði endurhæfingar, málefna fatlaðs fólks, forvarna og fræðslu og fjölskyldu- og jafnréttismála. Sérstök áhersla er lögð á verkefni er miða að því að auka jafnrétti og vinna gegn ofbeldi og afleiðingum þess.

Mat á umsóknum

Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytisins. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á, svo sem:

  1. Gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk.
  2. Að umsækjanda muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt.
  3. Að verkefnið sé byggt á faglegum grunni.
  4. Að gert sé grein fyrir í umsókn hvernig staðið skuli að mati á árangri.
  5. Fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd þess verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar. Jafnframt er vakin athygli á því að þeir aðilar sem sóttu um innan tilskilins tímafrests við síðustu úthlutun, þ.e. 10. nóvember 2014, koma ekki til álita við þessa úthlutun.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Innskráning á mínar síður - þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is
  2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum og þar undir velferðarráðuneyti er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2015.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um gerð umsókna á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum