Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

19. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðGuðbjartur Hannesson, félagsmálaráðherra 2010, heilbrigðisráðherra 2010, velferðarráðherra 2011-2013

Alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt.

 

Grein Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu 16. október 2010

Frá árinu 1987 hefur 17. október verið helgaður baráttu gegn fátækt á veraldarvísu. Dagurinn er þörf áminning og til þess fallinn að auka vitund fólks um orsakir og afleiðingar fátæktar. Fátækt er veruleiki fólks um allan heim, ekki aðeins meðal fátækra þjóða í fjarlægum löndum, heldur einnig í hinum velmegandi samfélögum vestrænna ríkja. Ísland er engin undantekning.

Birtingarmyndir fátæktar eru margvíslegar og afleiðingarnar víðtækar. Augljósust er sú örbirgð sem blasir við, sérstaklega í mörgum ríkjum Afríku, þar sem fjöldi barna og fullorðinna þjáist af matarskorti og vannæringu, á sér ekki húsaskjól, hefur ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu og nýtur ekki þeirra lágmarksgæða sem á Vesturlöndum eru talin til mannréttinda. Önnur andlit fátæktar felast í margvíslegri efnahagslegri mismunun sem meinar fólki aðgang að mikilvægri þjónustu, menntun, menningu og tómstundalífi og útilokar það á ýmsan hátt frá þátttöku í samfélaginu. 

Evrópusambandið helgaði árið 2010 baráttu gegn fátækt og félagslegri einangrun og taka öll ríki sambandsins þátt, auk Íslands og Noregs. Fátækt er vandamál um alla Evrópu en talið er að um 80 milljónir Evrópubúa, eða 17%, lifi undir lágtekjumörkum. Tíundi hver býr á heimili þar sem enginn hefur atvinnu, um 8% hafa atvinnu en ná ekki endum saman og búa við fátæktarmörk. Talið er að 19% barna í Evrópu búi við fátækt.

Ýmsum aðferðum er beitt til að skilgreina fátækt. Algengt er að miða við afstæð fátæktarmörk. Evrópusambandið beitir þessari skilgreiningu og miðast lágtekjumörk við tekjur sem eru lægri en 60% af miðgildi ráðstöfunartekna viðmiðunarhópsins. Einnig er tekið tillit til fjölskyldustærðar.

Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar voru árið 2009 um 10% Íslendinga undir lágtekjumörkum. Í evrópskum samanburði er staða Norðurlandaþjóðanna áberandi betri en flestra annarra þjóða sem rakið er til öflugrar atvinnustefnu, stuðnings velferðarkerfisins við vinnandi foreldra og tekjutilfærslum almannatryggingakerfisins og skattkerfisins.

Hvað sem öllum samanburði líður þá getum við ekki sem þjóð sætt okkur við að 10% landsmanna búi við afkomu undir lágtekjumörkum. Efnahagsástandið í heiminum er slæmt og margar þjóðir eiga í miklum þrengingum. Hér á landi varð efnahagshrun sem mun auka fátækt ef ekkert er að gert, með alvarlegum afleiðingum fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Þekktir fylgifiskar fátæktar eru félagsleg einangrun, þunglyndi, atvinnuleysi, missir heimilis, hnignun menntunar, aukin vímuefnanotkun og fjölgun glæpa.

Fátækt er ekki náttúrulögmál sem enginn fær breytt. Vissulega getur fátækt átt sér ákveðnar náttúrulegar og landfræðilegar skýringar sem tengjast veðurfari, auðlindum, gróðurfari og náttúruhamförum. Meginorsakirnar eru þó jafnan misskipting auðs, misskipting valds og misnotkun valds milli þjóða og landsvæða og innbyrðis í samfélögum þar sem gjá er milli ríkra og fátækra og margvíslegur ójöfnuður og mismunun fær að líðast.

Ísland er í flestum skilningi auðugt land. Við megum því ekki láta fátækt viðgangast í samfélaginu og verðum að berjast gegn henni með oddi og egg. Við höfum öll tæki til þess en þurfum að beita þeim rétt þannig að landið standi undir nafni sem velferðarríki. Baráttan gegn fátækt er ekki verkefni stjórnvalda einna. Við eigum að skilgreina fátækt sem mannréttindabrot. Við eigum að viðurkenna vandann og fást við hann á breiðum vettvangi þar sem ríki og sveitarfélög, atvinnurekendur og stéttarfélög, hagsmunasamtök, félagasamtök og almenningur taka höndum saman með það að markmiði að útrýma fátækt úr samfélaginu.

Alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt er 17. október. Við skulum öll minnast þess og nota daginn til að hugleiða hvað við getum lagt af mörkum í baráttunni. Til áminningar um þetta verður öllum kirkjuklukkum landsins hringt lengur en venja er til. Við skulum hlýða á hljóm þeirra sem fyrirheit um árangursríka baráttu. 

Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra

 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum