Hoppa yfir valmynd

Stýrihópur um markaðsverkefni í þágu íslenskrar ferðaþjónustu

Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Íslandsstofa undirrituðu þann 3. apríl sl. samning um markaðsverkefni í þágu íslenskrar ferðaþjónustu sem hluta af efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19 faraldursins. Verkefnið verður starfrækt á völdum erlendum mörkuðum. Markmið þess er að auka eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina. Það verður unnið í samræmi við  framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 sem ber yfirskriftina „Leiðandi í sjálfbærri þróun“ og langtímastefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning.

Stýrihópinn skipa:

  •     Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  •     Óskar Jósefsson, tilnefndur af ráðherra
  •     Ólafur Teitur Guðnason tilnefndur af ráðherra
  •     Bjarnheiður Hallsdóttir, tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar
  •     Bogi Nils Bogason, tilnefndur af Samtökum ferðaþjónustunnar
Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum