Hoppa yfir valmynd
15. október 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kannanir á heimilisofbeldi

Félagsþjónusta og barnavernd

Rætt var við starfsfólk félagsþjónustu og barnaverndar í níu sveitarfélögum á landinu. Markmiðið var að fá yfirlit yfir á hvern hátt þessar stofnanir bregðast við þegar kona leitar aðstoðar vegna heimilisofbeldis og fá fram hugmyndir til úrbóta á þjónustunni. Könnunin var unnin af Rannsóknarsetri í barna- og fjölskylduvernd fyrir félags- og tryggingamálaráðuneytið. Október 2009. 

Grunnskólar

Rætt var við skólastjóra í tíu grunnskólum víðs vegar á landinu. Markmiðið var að fá mynd af því hvernig skólinn bregst við þegar barn þarfnast hjálpar vegna ofbeldis gegn móður á heimili þess og fá fram hugmyndir til úrbóta á þjónustunni. Könnunin var unnin af Rannsóknarsetri í barna- og fjölskylduvernd fyrir félags- og tryggingamálaráðuneytið. September 2009. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum