A. Stjórnsýslan |
Lýsing á aðgerð
Unnið verði að því að koma Íslandi í eitt af efstu sætunum á regnbogakorti ILGA-Europe með réttarbótum og bættri stöðu hinsegin fólks.
Markmiðið verði að koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks.
Tímaáætlun: 2022–2025.
Ábyrgð: Forsætisráðuneyti.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Aðalinntak heimsmarkmiðanna um að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir.
Staða verkefnis í október 2023: Ísland fór í 5. sæti Regnbogakorts ILGA í maí 2023. Regnbogakortið verður næst gefið út í maí 2024.
Ábyrgð
Forsætisráðuneytið
Komið vel á veg