Hoppa yfir valmynd
B. Forvarnir í leikskólum

Lýsing á aðgerð

B.4. Forvarnir í heilsugæslu.

Þekking starfsfólks í heilsugæslu í ung- og smábarnavernd á merkjum um ofbeldi verði aukin. Í því skyni verði netnámskeið fyrir starfsfólk leikskóla nýtt, sbr. aðgerð A.4. Samhliða verði því fylgt eftir að fræðsluefni um ofbeldi sé kynnt fyrir foreldrum í fjögurra ára skoðun.

  • Mælikvarði: 90% starfsfólks í ung- og smábarnavernd hafi lokið netnámskeiði og fræðsluefni um ofbeldi sé kynnt fyrir öllum foreldrum í fjögurra ára skoðun.
  • Kostnaðaráætlun: Innan ramma.
  • Ábyrgðaraðili: Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Heilbrigðisráðuneyti, Barnaverndarstofa, embætti landlæknis og Barnaheill.

Staða verkefnis

Netnámskeið með grunnfræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni var kynnt fyrir starfsfólki ung- og smábarnaverndar á landsvísu í lok júní 2023. Samhliða netnámskeiðinu fyrir starfsfólk í heilsugæslu þá er foreldrum barna sem koma í 2½ árs skoðun gefin bókin Líkaminn fyrir fyrir 0-6 ára frá Barnaheill og fræðslunni fylgt eftir af hjúkrunarfræðingum í 4 ára skoðun sem liður í forvörnum og fræðslu um vernd gegn kynferðislegu ofbeldi samkvæmt Leiðbeiningum um ung- og smábarnavernd frá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. Bókin Líkaminn minn 0-6 ára kom út árið 2022 í stað bókarinnar Þetta er líkaminn minn sem hefur verið dreift til foreldra í ung- og smábarnavernd frá árinu 1998 í samstarfi við Barnaheill. 

Verkefnið telst vel á veg komið.

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Til baka

Jafnréttismál

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum