Hoppa yfir valmynd

Alþjóðasamningur um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi

Um sáttmálann

Alþjóðasamningurinn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 16. desember 1966. Samningurinn var undirritaður af hálfu Íslands 30. desember 1968, fullgiltur 22. ágúst 1979. Samningurinn er annar tveggja sáttmála sem gerðir voru út frá Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, en hún markaði mikil tímamót í afstöðu alþjóðasamfélagsins til mannréttinda þegar hún var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 10. desember 1948. Hinn samningurinn er Alþjóðasamningur um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Í báðum þessum samningum er jafnframt lögð áhersla á sjálfsákvörðunarrétt þjóða og skyldu aðildarríkja til að stuðla að viðurkenningu á þessum rétti.

Samningurinn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi lýtur að ýmsum mikilvægum réttindum fólks sem varða tækifæri og möguleika fólks á að lifa mannsæmandi lífi. Samningurinn leggur þær skyldur á aðildarríkin að setja nauðsynleg lög og reglur og koma á fót kerfum sem tryggi að fólk fái notið þeirra réttinda sem þar er kveðið á um, eftir því sem frekast er unnt. Ákvæði samningsins ná yfir breitt svið réttinda á borð við réttinn til að afla sér lífsviðurværis (6. gr.), réttinn til að njóta líkamlegrar og andlegar heilsu að hæsta marki sem unnt er (12. gr.) og réttinn til menntunar (13. gr.). Áhersla er lögð á að ríki skuli ábyrgjast jafnan rétt karla og kvenna til að njóta allra þeirra réttinda sem samningurinn verndar (3. gr.). 

Eftirlit

Eftirlit með samningnum er í höndum nefndar Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi en hlutverk hennar er að fylgjast með framkvæmd samningsins, auk þess sem hún gefur út almenn álit sem víkja yfirleitt að einstökum ákvæðum samningsins og túlkun þeirra.

Þau ríki sem hafa fullgilt samninginn skuldbinda sig jafnframt til að senda nefndinni reglulegar skýrslur um innleiðingu hans. Nefndinni gefst þá færi á að gera athugasemdir og leggja fram spurningar um efni skýrslunnar og aðildarríkið getur síðan lagt fram viðbótarupplýsingar. Í kjölfarið gefur nefndin út lokaathugasemdir sínar þar sem bent er á hvað megi betur fara í framkvæmd aðildarríkisins til þess að það geti fullnægt skuldbindingum sínum samkvæmt samningnum. Hér neðar á síðunni er að finna skýrslur Íslands og lokaathugasemdir nefndarinnar.   

Nefndin um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi tekur einnig við kvörtunum frá einstaklingum um að aðildarríki hafi brotið á réttindum þeirra samkvæmt samningnum, að því gefnu að ríkið hafi átt aðild að samningnum og samsvarandi valfrjálsri bókun við hann þegar brotið átti sér stað, og að öðrum skilyrðum samkvæmt bókuninni sé fullnægt. Ísland er ekki aðili að bókuninni.

Valfrjálsar bókanir

Ein valfrjáls bókun hefur verið gerð við Alþjóðasamninginn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og kom hún á fót kæruleið fyrir einstaklinga og hópa til nefndarinnar vegna brota á samningnum. Ísland er ekki aðili að bókuninni.

Framkvæmd

Forsætisráðuneytið ber meginábyrgð á skuldbindingum Íslands samkvæmt samningnum um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Samningurinn nær þó yfir breitt svið réttinda og varðar framkvæmd hans því öll ráðuneyti með einum eða öðrum hætti.

Texti samningsins

Helstu staðreyndir

Staða:  Fullgiltur
Titill á ensku:  International Covenant on Economic, Social and Cultural Rights (ICCPR)
Eftirlitsaðili:  Nefnd um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi
Kæruleið:  Til staðar samkvæmt valfrjálsri bókun við samninginn, en Ísland er ekki aðili að bókuninni

 

Helstu hugtök

Undirritun

Með undirritun gefur ríki til kynna áform sín um að undirgangast skuldbindingar samkvæmt samningnum.

Fullgilding

Með fullgildingu skuldbindur Ísland sig gagnvart öðrum aðildarríkjum til að uppfylla þær skyldur og tryggja þau réttindi sem kveðið er á um í samningnum. Oft þarf aðkomu Alþingis til að hægt sé að fullgilda alþjóðasamninga.

Lögfesting

Með lögfestingu samnings er texti hans í heild settur í lög og einstaklingum þar með gert kleift að byggja á ákvæðum hans fyrir innlendum dómstólum.

Innleiðing

Með innleiðingu eru réttindi og skyldur samkvæmt samningi gerð virk í landsrétti aðildarríkisins. Innleiðing getur átt sér stað með lagasetningu eða öðrum úrræðum sem duga til að tryggja framkvæmd samningsins.

Valfrjáls bókun

Viðauki við alþjóðlegan samning sem inniheldur viðbótarskuldbindingar fyrir aðildarríki. Aðildarríki hafa val um hvort þau gerist aðilar að bókunum.

 

Skýrslur

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum