Hoppa yfir valmynd

Orðskýringar

OrðSkýring
Þróunarumsvif = Aid activityUm getur verið að ræða verkefni eða verkefnastoð, fjármagnsmillifærslu eða vöruafhendingu, námskeið eða rannsóknarverkefni, skuldaafléttingaraðgerð eða framlag til félagasamtaka.

Can be a project or a programme, a cash transfer or delivery of goods, a training course or a research project, a debt relief operation or a contribution to a non-governmental organisation.
Þróunarsamvinna = Development cooperationÞróunarsamvinna er fólgin í því að veita fólki í lágtekjulöndum fjárhagslega, félagslega og tæknilega aðstoð með það að meginmarkmiði að ýta undir efnahags- og félagslega uppbyggingu til lengri tíma. Opinber þróunarsamvinna (Official Development Assistance (ODA)) eru framlög opinberra aðila til lágtekjuríkja. Meginmarkmið opinberrar þróunarsamvinnu er efnahagsleg þróun og velferð fyrir allra. Framlögin geta verið styrkir eða lán með ívilnunum. Samkvæmt viðmiði OECD- DAC þurfa framlögin að hafa a.m.k. 25% einkenni styrks.

Development cooperation involves providing people in low-income countries with financial, social and technological assistance with the aim of improving economic and social structures in the long term. Official development assistance is the contribution of public entities to low-income countries. The main objective of official development assistance is economic development and welfare for all. The contributions can be grants or loans with incentives. According to the criteria of the OECD-DAC, all contributions have to convey a grant element of at least 25%.
 
 
Þróunaríhlutun = Development/Donor interventionTímabundin íhlutun til að stuðla að þróun.

A time bound effort to promote development.
Þríprófanir = TriangulationsLeið til að auka réttmæti rannsókna þar sem rannsakandi leitar að samleitni milli margra og ólíkra tegunda upplýsinga.

A validity procedure where researchers search for convergence among multiple and different sources of information.
Þekjun = CoverageVísar til þess hvaða hópar njóta góðs af verkefni/verkefnastoð, stundum í landfræðilegu samhengi, og ólík áhrif á þá sem verkefni nær til þá sem standa utan þess.

Refers to which groups are included/excluded from a project/programme, sometimes in a geographical context, and the different impact on those included and excluded.
Þátttökunálgun = Participatory approachÞátttökunálgun miðar að því að auka sjálfbærni þróunarstarfs. Í þátttökunálgun vinna stjórnvöld, þróunarstofnanir og heimamenn saman og taka sameiginlega ábyrgð á stefnumótun, framkvæmdum, fjármagni og árangri. Tilgreind eru helstu vandamálin (m.t.t. þróunar) ásamt nauðsynlegum aðgerðum til að mæta þeim þar sem gert er ráð fyrir marktækri þátttöku fulltrúa heimamanna.

Participatory approach aims to increase the sustainability of development work. With participatory approach, the government, development agencies and the locals work together and share the responsibility of policy making, implementation, funds and results. The main problems (with regard to development), along with necessary actions to deal with them, are specified where significant local participation is included. 
Þarfagreining = Needs assessmentKönnun sem gerð er áður en þróunarstarf er hafið. Heimamenn eru spurðir út í hugmyndir sínar um þróunartengd mál eða vandamál og leitað er eftir tillögum þeirra um þróunarinngrip sem gætu leyst úr þeim málum.

A study undertaken before planning a development activity. Local people are asked for their thoughts concerning development issues and their suggestions of development efforts that might address those issues.
 
Vöktun = MonitoringViðvarandi aðgerð þar sem notast er við kerfisbundna öflun upplýsinga um tiltekna vísa til að gera stjórn og hagsmunaaðilum yfirstandandi verkefnastoðar grein fyrir vísbendingum um framvindu og árangur og nýtingu úthlutaðra fjármuna.

A continuing function that uses systematic collection of data, on specified indicators, to provide management and stakeholders, of an ongoing programme, with indications of the extent of progress and achievement of objectives, and progress in the use of allocated funds.
Viðtökugeta = Absorption capacityGeta lands, skipuheildar eða samfélags til að nýta sér þróunaraðstoð á gagnlegan hátt til að ná þróunarmarkmiðum.

The extent to which a country, organisation or community is able to use development assistance productively to achieve development goals.
Verklýsing = Terms of ReferenceSkrifleg lýsing á tilgangi og umfangi verks, aðferðum og gögnum sem nýtast við vinnslu þess, þann tíma sem það tekur og skýrsluskil.

Written document presenting the purpose and scope of the work, the methods to be used, the resources and time allocated, and reporting requirements.
Verkefnisteymi/ (teymi verkefnastoðar) = Project/Programme Implementation Team - PITStarfar við daglega framkvæmd verkefnis/verkefnastoðar.

Everyday implementation of project activities.
 
Verkefnisstjórn/ (stjórn verkefnastoðar) = Project/Programme Management Team – PMTStýrir verkefni/verkefnastoð og samræmir allar aðgerðir. Undirbýr og leggur fram árlega og ársfjórðungslega framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun sem stýrihópur verkefna samþykkir. Undirbýr og leggur fram tvisvar á ári framvinduskýrslu og fjárhagsskýrslu um þætti verkefnisins.

Administrates the Project and coordinates all its activities. Prepare and submit annual and quarterly Plan of Actions and budget for the approval of the Project Supervisory Committee (PSC). Prepare and submit biannual Project progress and financial report of the Project components.
 
Verkefnisskjal/ (skjal verkefnastoðar) = Project/programme DocumentLýsing á áformum, áætlunum, verkefnastoð eða verkefni sem til stendur að styrkja.

The description of the strategy, plan, programme or project to be considered for support.
Verkefni = ProjectÝmsar gerðir þróunaríhlutunar sem ætlað er að ná ákveðnum markmiðum með ákveðnu skipulagi og innan tilgreindrar fjárhagsáætlunar og tímaramma.

Different types of development interventions, which are
designed to achieve certain specific objectives within a given budget and organisation, and a specific period of time.
Verkefnastoð = ProgrammeSafn aðgerða eða verkefna þar sem markmið og takmörk eru sameiginleg.

A set of actions or projects with common goal(s) and objectives.
Varnarleysi = VulnerabilityVarnarleysi er skali sem nær til þess að hve miklu leyti einstaklingar eða hópar eru færir um að sjá fyrir, ráða við, sporna gegn og ná sér út úr áhrifum hörmunga sem yfir þá dynja af völdum manna eða náttúru. Fátækt og réttindaskortur gerir fólk meira berskjalda og sérstakir áhættuhópar eru til að mynda börn og gamalt fólk, fatlaðir, vannærðir og veikir.

Vulnerability is a scale covering the ability of individuals or groups to foresee, handle, counter and distract themselves from the effects of disasters that strike them caused by humans or nature. Poverty and lack of rights makes people more vulnerable and special risk groups are, for example, children, the elderly, the disabled, the malnourished and the sick.
Varða = BenchmarkViðmiðun eða mælikvarði sem hægt er að nota til að meta frammistöðu eða árangur.

Reference point or standard against which performance or achievements can be assessed.
Valdefling = EmpowermentValdefling er félagslegt ferli sem hefur margar víddir og felur í sér að efla getu og styrk einstaklinga eða hópa til að hafa stjórn á lífi sínu og aðstæðum, takast á við þau málefni sem þeir skilgreina mikilvæg og standa vörð um réttindi sín. Í hugtakinu felst áskorun á viðteknar hugmyndir um hvernig samfélagið og einstakir þættir innan þess virka og hvernig það getur orðið.

Empowerment is a multi-dimensional social process to enhance the abilities and strengths of individuals or groups to control their lives and situation, deal with the issues they identify as important and protect their rights. The concept includes a challenge of accepted ideas about how the society and individual aspects within it function and how it can become.
Úttekt = EvaluationKerfisbundið og hlutlægt mat á yfirstandandi verkefnastoð eða slíkri stoð, sem er lokið, og á stefnumáli, gerð þess, framkvæmd og árangri.

(Óháð), ytri úttekt: Mat, unnið af aðilum og einstaklingum sem eru óháðir þeim sem bera ábyrgð á gerð og framkvæmd þróunaríhlutunarinnar.

Innri úttekt: Úttekt á þróunaríhlutun sem er unnin af deild og/eða einstaklingum sem heyra undir gjafa, samstarfsaðila eða framkvæmdaraðila.

Sameiginleg úttekt: Framkvæmd í félagi við aðra gjafa og/eða samstarfsaðila.

A systematic and objective assessment of an on-going or completed programme and policy, its designs, implementation and results.

(Independent) External Evaluation:          An evaluation carried out by entities and persons free of the control of those responsible for the design and implementation of the development intervention.

Internal Evaluation: Evaluation of a development intervention conducted by a unit and/or individuals reporting to the management of the donor, partner, or implementing organisation.

Joint Evaluation: Performed together with other donors and/or together with the partner.
Útskiptanleiki = FungibilityAðstoð, sem ætluð er til ákveðinna nota, kemur í stað fjárútláta sem ríkisstjórnir viðtökuríkis hefðu hvort sem er ráðist í. Fjármagnið, sem þannig sparast, fer til annarra nota.

Aid intended for specific purposes substitutes for spending that recipient governments would have undertaken anyway and the funds that are thereby freed up are spent for other purposes.
Útkoma = OutcomeLíkleg eða framkomin áhrif afurða verkefnastoðar til skamms tíma eða meðallangs tíma.

The likely or achieved short-term and medium-term effects of a programme's outputs.
Uppbygging getu = Capacity developmentEinstaklingar, hópar eða skipuheildir þróa hæfni sína til að greina og ráða við áskoranir sem þau mæta í þróunarferlinu.

The process by which individuals, groups and organisations develop their capability to identify and deal with challenges that they meet in the development process.
Tvíhliða aðstoð = Bilateral assistanceAðstoð sem gjafaríki veitir viðtökuríki milliliðalaust.

Assistance given directly by a donor country to an aid recipient country.
Tilgangur = PurposeSjá markmið.

Ref. objective.
Takmark = GoalSjá markmið.

Ref. objective.
SVÓT-greining = SWOT analysisAðferð við áætlanagerð sem notuð er til að meta styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri sem felast í hverju verkefni. Með þessari aðferð eru markmið verkefnisins tilgreind og innri og ytri þættir sem geta haft jákvæð og neikvæð áhrif í tengslum við að ná því markmiði.

A strategic planning method used to evaluate the Strengths, Weaknesses, Opportunities, and Threats involved in a project. It involves specifying the objective of the project and identifying the internal and external factors that are favourable and unfavourable to achieving that objective.
Stýrihópur verkefna/verkefnastoða = Project/Programme Supervisory Committee - PSCSér um almennt eftirlit með verkefninu með því að vakta framvindu og taka ákvarðanir á sviði úrbóta- og breytingastjórnunar sem tengjast verkefninu.

Provides overall supervision of the project, monitoring of the project progress, decision making for corrective action and project cycle management.
Stofnanafærni = Organisational/institutional capacityStofnanafærni vísar til getu skipuheilda til að rækja hlutverk sitt, koma verkefnum til leiðar, leysa mál, setja sér markmið og ná þeim. Hugtakið felur í sér mannauð og starfsumhverfi skipuheildarinnar, þar á meðal skipulag, efnislegt og fjárhagslegt bolmagn, þekkingu, upplýsingar og stofnanaminni en einnig samskiptamenningu, gildi og valdatengsl.

Organisational/institutional capacity refers to the ability of organisations to uphold their role, finalise projects, resolve issues, set goals and achieve them. The concept consists of human resources and the working environment of the organisation, including the structure, physical and financial capacity, knowledge, information and institutional memory but also communications culture, values and relationships of power.
Stjórnhættir = GovernanceÞau stjórnmálalegu, félagslegu og hagfræðilegu kerfi sem eru til staðar og beint eða óbeint hafa áhrif á notkun, þróun og stjórnun auðs og þjónustu hins opinbera í ólíkum stigum samfélagsins.

Political, social. economic and administrative systems that are in place, which directly or indirectly affect the use, development and management of resources and the delivery of public service and different levels of society.
Stefnumörkun = Policy directionSú stefna sem mörkuð er af yfirvöldum hverju sinni, þar á meðal af ríkisstjórnum og ráðherrum, með ákvörðunum, yfirlýsingum, samþykktum eða lagasetningu.

The policy of the authorities, including of the governments and ministers, where directions are given through decisions, declarations, resolutions or legislation.
Stefnumiðuð áætlun = Strategic planningSkipulagning til langs eða meðallangs tíma varðandi stefnu skipuheildar, leiðir hennar að settu marki og aðferðir við að mæla framvindu og árangur. Áhersla við stefnumiðaða áætlun er jafnan lögð á skipuheildina sem heild frekar en einstök stefnumál, verkefnastoð eða verkefni.

A medium or long term planning where an organisation is going, how it is going to get there, and how it will measure progress and results. The focus of a strategic plan is usually on the entire organisation, rather than on a single policy, verkefnastoð, or project.
 
Stefna = PolicyFerill mikilvægrar, stjórnunarlegrar ákvarðanatöku. Einnig lýst sem stjórnmálalegum, fjárhagslegum og stjórnunarlegum ferlum sem ætlað er að ná fram ákveðnu takmarki.

A process of making important organizational decisions. Also described as political, management, financial, and administrative mechanisms arranged to reach explicit goals.
SMART-mælikvarðar = SMART indicatorsSértækir, mælanlegir, aðgengilegir eða ásættanlegir, raunhæfir og tímasettir mælikvarðar.

Specific, measurable, attainable, realistic and time bound indicators.
Skilyrði = ConditionalityGjafar hverfa frá því að nota hefðbundin skilyrði fyrir því hvernig og hvenær þróunarframlögum er ráðstafað til þess að skilyrðin eru byggð á þróunarmarkmiðum samstarfslandsins.

Donors will switch from reliance on prescriptive conditions about how and when aid money is spent to conditions based on the developing country's own development objectives.
Skilvirkni = EfficiencyHæfni til að gera eitthvað vel eða að ná tilætluðum árangri án sóunar á orku og fyrirhöfn.

The ability to do something well or achieve a desired result without wasted energy or effort.
Sjálfbærni = SustainabilityEr skilgreind sem hæfni kerfis til að viðhalda vinnslu (framkvæmdum), virkni og framleiðni í framtíðinni. Sjálfbærni verkefnis snýst um áframhaldandi ávinning og áhrif eftir að verkefninu lýkur.

Defined as the ability of a system to maintain processes, functions, and productivity into the future. In the context of a single project, the continuation of its benefits and impact after the project itself has ended.
Sannprófun = Means of VerificationGagnasafn sem notað er til að ákvarða mælikvarða.

The data set(s) that will be used to measure an indicator.
Samsvörun = RelevanceUpp að hvaða marki passar þróunarstarfið við forgangsröðun og stefnu markhóps, viðtakenda og gjafa.

The extent to which the aid activity is suited to the priorities and policies of the target group, recipient and donor.
Samstarfsaðilar = PartnersEinstaklingar og/eða skipuheildir sem starfa saman að sameiginlegu markmiði.

The individuals and/or organisations that collaborate to achieve mutually agreed upon objectives.
Samskotafjármögnun = Pooled fundingGjafi veitir fjármagni inn á sérstakan reikning sem er í sameiginlegri vörslu gjafans og annarra gjafa og/eða viðtakandans. Sérstakar reglur gilda um reikninginn að því er varðar ráðstöfun, útborganir, bókhald og gildistíma. Samskotasjóðir byggjast á sameiginlegu verkefnaskjali, sameiginlegum fjármögnunarsamningum og sameiginlegu skýrslu- og endurskoðunarverklagi allra gjafanna.

The donor contributes funds to an autonomous account, managed jointly with other donors and/or the recipient. The account will have specific purposes, modes of disbursement and accountability mechanisms, and a limited time frame. Basket/pooled funds are characterised by common project documents, common funding contracts and common reporting/audit procedures with all donors.
Samræming = HarmonisationAlþjóðleg viðleitni til að samræma aðferðir við skipulagningu, vöktun og framkvæmd þróunarsamvinnu auk regluverks um fjármagnsflutninga, innkaup og ráðningu utanaðkomandi starfsfólks.

International efforts to reconcile procedures for the planning, monitoring, execution and as well as of regulations governing financial transfers, procurement and recruitment of external staff.
Samkomulag um samfjármögnun = Joint Financing Arrangements JFARáðstafanir eða samkomulag þar sem ýmsir gjafar og samstarfsland sammælast um almennar verklagsreglur er varða sameiginlegan stuðning, t.d. fjárhagslegan stuðning við opinber verkefni, svið, verkefnastoðir eða áætlanir stjórnvalda gegn fátækt (PRSP) sem og aðrar íhlutanir þar sem samfjármögnun er valin.

Arrangement/agreement where several donors and a partner country agree on common procedures for joint support, for instance for budget support to the national plan/sector/ programme/PRSP as well as other interventions where pooling of funds is chosen.
Samhæfing = AlignmentAðstoð sem byggist á þróunaráætlun, stofnunum og starfsháttum samstarfslandanna.

Support is based on partner countries' national development strategies, institutions and procedures.
Samhliða framkvæmd = Parallel Implementation Units (PIUs)Gjafar starfrækja eigin framkvæmdaeiningar í verkefnum, samhliða framkvæmdaeiningum viðtökulands.

Donors have their own project implementation units, alongside with recipient country implementation structures.
 
Samhengi = CoherenceÞörfin til að meta aðrar stefnur og verkefnastoðir sem áhrif hafa á framkvæmd, t.d. stefnur og verkefnastoðir í mannúðarmálum og viðskiptum.

The need to assess other policies and programmes which affect the intervention, for example humanitarian and trade policies and programmes.
Samfjármögnun = Co-financing arrangementsÝmsar gerðir sameiginlegrar fjármögnunar á verkefni eða verkefnastoð þar sem um er að ræða tvíhliða samstarfsaðila eða ýmist tvíhliða samstarfsaðila eða fjölþjóðlega samstarfsaðila.

Various models of joint donor funding of a project or a programme, between bilateral partners or bilateral /multilateral partners.
Rökrammanálgun = Logical Framework Approach -LFAAðferð til að greiða fyrir skipulagningu, framkvæmd og mati á verkefnastoð.

Management tool which facilitates planning, execution and evaluation of a programme. 
 
Rökrammafylki = LF MatrixFylkið samanstendur af 16 reitum í fjórum dálkum og fjórum línum.

The LF (Logical Frame-work) Matrix consists of 16 cells in a 4 column by 4 rows.
Rýni = ReviewMat á framkvæmd þróunaraðgerða, unnið með reglulegu millibili eða þegar sérstaklega háttar.Sameiginleg rýni: Mat á framkvæmd, unnið með öðrum gjöfum og/eða með samstarfsaðila.

An assessment of the performance of development activities, periodically or on an ad hoc basis. Joint review: Performed together with other donors and/or together with the partner.
Ríkisendurskoðun = Auditor General-Supreme Audit Institution (SAI)Opinber aðili sem samkvæmt lögum ríkis hefur æðsta endurskoðandahlutverk þess.

The public body of a State that by law has the highest auditing function of that State.
Rekstrarfjárhagsáætlun = BudgetSkjal þar sem gerð er grein fyrir peningahlið áætlana. Einnig Ríkisfjárlög: Lagagerningur þar sem lýst er tekjum og útgjöldum ríkisins.

A document that translates plans into money. Also Government budget: a legal document describing the revenues and expenses of the government.
Reikningsyfirlit = Statement of accountEfnahagsyfirlit og/eða ítarlegt yfirlit hreyfinga á ákveðnum reikningi (á ákveðnu tímabili) úr bókhaldsgögnum aðila eða sambærilegt reikningsyfirlit frá banka.

Statement of balance and/or detailed transactions on a specific account (for a given period) from an entity's accounting records or similar statement of bank account from the bank.
Reikningshalds-/bókhaldsstaðlar = Accounting standards=financial reporting standardsStaðlar þar sem kveðið er á um hvernig gera eigi grein fyrir og fjalla um ákveðnar gerðir færslna og annarra atriða í reikningum.

A set of standards stating how particular types of transactions and other events should be accounted for and reflected in the financial statements.
Reikningshald/bókhald = AccountingBókhaldsaðferðir, kerfi, ferlar og starfsemi sem varða undirbúning, gerð og skráningu gagna um fjárhagsfærslur og undirbúning reikninga.

The bookkeeping methods, systems, procedures and activities involved in preparing, making and documenting financial records of transactions and in the preparation of financial statements.
Reikningar = Financial statementsSkýrslur um efnahag, rekstrarárangur og breytingar á efnahag verkefnis eða verkefnastoðar.

Reports about the financial position, performance and changes in financial position of a project or a programme.
Óhlutdrægar, sannprófanlegar mælistikur = Objectively verifiable indicatorsMælingar, beinar eða óbeinar, gerðar til að kanna að hversu miklu leyti markmiðum hefur verið náð. Hugtakið „óhlutdrægar“ gefur til kynna að mælistikurnar eigi að vera skilgreindar þannig að það komi ekki að sök þó að athugandi sé mögulega hlutdrægur.

These are the measures, direct or indirect that will verify to what extent the objectives have been fulfilled. The term “objectively” implies that these should be specified in a way that is independent of possible bias of the observer.
Opinber þróunaraðstoð (OÞA) = Official Development Assistance ODAFjármagnsstreymi til þróunarlanda og marghliða stofnana í gegnum opinberar stofnanir. Færslurnar þurfa að þjóna því meginmarkmiði að ýta undir efnahagslega þróun og velferð þróunarríkja.

Flows to developing countries and multilateral institutions provided by/through official agencies. The transactions must have promotion of the economic development and welfare of developing countries as its main objective.
Niðurstöður = FindingsNiðurstaða (í úttekt) styðst við gögn úr einni eða fleiri úttektum til að fá út raunsanna staðhæfingu.

A finding (in an evaluation) uses evidence from one or more evaluations to allow for a factual statement.
Nálganir í þróunarsamvinnu = Aid modalitiesAðstoð er veitt með mismunandi hætti, t.d. verkefna-, geira- eða fjárlagastuðningur.

Aid is provided through a mix of modalities including project, sector and budget support.
Mælikvarði, vísir = IndicatorMegindlegur eða eigindlegur þáttur eða breyta sem felur í sér einfaldar og áreiðanlegar leiðir til að mæla árangur, endurspegla breytingar sem tengjast verkefnastoð, eða veita aðstoð við mat á frammistöðu þróunaraðila.

Quantitative or qualitative factor or variable that provides a simple and reliable means to measure achievement, to reflect changes connected to a programme, or to help assess the performance of a development actor.
Málsvörn = AdvocacyMálsvörn vísar til þess þegar einstaklingar og hópar beita sér til að hafa áhrif á opinbera stefnu, fjárveitingar og dreifingu annarra gæða, og á ákvarðanir af pólitískum, efnahagslegum og félagslegum toga. Málsvarnarstarfi er komið á framfæri og málum fylgt eftir með margvíslegum hætti, t.d. í gegnum fjölmiðla, opinberar samkomur og með rannsóknum.

Advocacy refers to individuals and groups acting to influence public policy, appropriations and the distribution of other resources as well as political, economic and social decisions. Advocacy is communicated and cases followed up in various ways, for example through the media, public gatherings and research.
Mat á tillögum = AppraisalGæðaeftirlit með tillögu að verkefnastoð þar sem metið er vægi eða tilgangur, hagkvæmni, möguleg áhætta og sjálfbærni verkefnastoðarinnar áður en stuðningur er ákveðinn.

Quality control of a programme proposal that assesses relevance, feasibility, potential risk and sustainability of a programme prior to a decision of funding.
Markvirkni = EffectivenessÞað að ná fram/valda æskilegri eða tilætlaðri niðurstöðu. Vísað er til þess að hve miklu leyti þróunaríhlutun nær settum eða væntanlegum markmiðum, að teknu tilliti til hlutfallslegs mikilvægis þeirra.

Producing/causing the desired or intended result. The extent to which the development intervention's objectives were achieved, or are expected to be achieved, taking into account their relative importance.
Markmið = ObjectiveÞað sem átak eða/viðleitni beinist að: takmark, markmið eða niðurstaða. Markmið nær yfir bæði takmark og tilgang.

Þróunarmarkmið (takmark): Verkefni er ætlað að stuðla að tilteknu markmiði. Orðin „stuðla að“ gefa til kynna að verkefninu einu og sér er ekki ætlað að ná þróunarmarkmiðinu. Sértækt markmið (tilgangur): Verkefni er ætlað að ná fram tilteknum áhrifum sem koma fram sem árangur af framkvæmd þess og byggjast á afurðum þess.

Something toward which effort is directed: an aim, goal, or end of action. The objectives encompass goal and purpose in the goal hierarchy.

Development objective – goal: The higher level objective that a project is expected to contribute to. The addition of the word “contribute” implies that the project alone is not expected to achieve the development objective. Immediate objective – purpose: The effect which is expected to be achieved as the result of the project delivering the planned outputs.
Markhópur = Target groupÞeir einstaklingar eða skipuheildir sem hagnast eiga á verkefnastoðinni.

The specific individuals or organisations for whose benefit the programme is undertaken.
 
Marghliða aðstoð = Multilateral assistanceAðstoð sem veitt er fyrir tilstilli alþjóðlegra stofnana, t.d. Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðabankans (ekki eyrnamerkt aðstoð).

Assistance channelled through international organisations, for example UN organisations and the World Bank Group.
Mannúðaraðstoð = Humanitarian assistanceMannúðaraðstoð miðar að því að bjarga mannslífum, lina þjáningar nauðstaddra og viðhalda mannlegri reisn á neyðarsvæðum, hvort heldur neyðin er af völdum manna eða náttúruafla. Aðgerðir miða að vernd borgara, endurreisn samfélags og veitingu fæðu, vatns, skjóls, hreinlætisaðstöðu og heilsugæslu. Mannúðaraðstoð stuðlar að uppbyggingu varna og viðbúnaðar vegna stórslysa, náttúruhamfara og styrjalda. Þegar aðstæður bjóða er flottafólki gert kleift að snúa aftur til fyrri heimkynna.

Humanitarian assistance aims to save lives, ease the suffering of those in distress and uphold human dignity in emergencies, whether man-made or caused by forces of nature. Operations aim to protect citizens, rebuild societies and provide food, water, shelter, sanitary facilities and health care. Humanitarian assistance supports the improvement of prevention and preparedness due to major accidents, natural disasters and wars. When the situation allows it, refugees are given the opportunity to return to their former homes.
Mannréttindi = Human rightsMannréttindi byggjast á Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948 og þeim mannréttindasáttmálum SÞ sem síðar hafa verið gerðir. Þau eru óafsalanleg, ódeilanleg og algild. Tvö megingildi mannréttindahugtaksins eru að öllum sé fært að lifa með reisn og hafi jafnan rétt óháð kyni, kynhneigð, kynþætti, litarhætti, tungu, trúarbrögðum, stjórnmála- eða öðrum skoðunum, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu, fötlun, eignum, uppruna eða öðrum félagslegum aðstæðum. Í mannréttindum felst einnig vernd gegn ofbeldi af öllum gerðum og þau grundvallast á virðingu fyrir einstaklingnum. Mannréttindum er í lagalegum skilningi ætlað að tryggja einstaklingum og hópum réttindi og vernd gegn hvers konar aðgerðum, eða aðgerðaleysi stjórnvalda, sem vegur að grundvallarréttindum eða mannvirðingu fólks.

Human rights are based on the United Nations Universal Declaration of Human Rights from 1948 and the United Nations Human Rights Conventions that have been made since then. They are inalienable, indivisible and absolute. Two main values of the human rights concept are that everyone is able to live with dignity and have equal rights irrespective of gender, sexual orientation, race, colour, language, religion, political or other views, nationality or social status, disabilities, assets, origin or other social conditions. Human rights also include protection against any kind of violence and they are based on the respect for the individual. In legal terms, human rights are expected to ensure the rights of individuals and groups and provide protection against any kind of actions, or lack thereof, by the government that threaten the basic rights and dignity of people.
Lærdómur = Lessons learnedAlmennar ályktanir, byggðar á úttektum á verkefnum, verkefnastoðum eða stefnumálum sem heimfæra má á almennari aðstæður. Lærdómur varpar iðulega ljósi á styrk- og veikleika í undirbúningi, gerð og framkvæmd sem hefur áhrif á árangur, útkomu og áhrif.

Generalizations based on evaluation experiences with projects, programs, or policies that abstract from the specific circumstances to broader situations. Frequently, lessons highlight strengths or weaknesses in preparation, design, and implementation that affect performance, outcome and impact.
Lokaskýrsla = Final reportSkýrslugjöf við lok íhlutunar. Þar er fjallað um sömu atriði og í framvinduskýrslu sem lýtur að öllu tímabilinu og jafnframt er lagt mat á markvirkni, áhrif (ef hægt er), sjálfbærni og tilgreindur er sá lærdómur sem draga má af íhlutuninni.

Reporting at the end of an intervention. Addresses the same topics as a progress report for the entire programme period and also gives assessment of the; effectiveness, impact (if possible), sustainability, and states the “lessons learned”.
Kynnæmir vísar = Gender-sensitive indicatorsVísar sem aðgreina eftir kyni, aldri og félags- og efnahagslegum bakgrunni. Þeir eru hannaðir til að sýna breytingar í tengslum kvenna og karla í tilteknu samfélagi og yfir tímabil. Vísarnir eru verkfæri til að meta framvindu tiltekinnar þróunaríhlutunar í þágu kynjajafnréttis. (Kyngreindar upplýsingar sýna hvort bæði konur og karlar eiga aðild að verkefnastoðum og verkefnum sem þátttakendur/starfsfólk og sem haghafar á öllum stigum). Nálgunin gerir ráð fyrir markvirkri vöktun og mati.

Indicators disaggregated by sex, age and socio-economic background. They are designed to demonstrate changes in relations between women and men in a given society over a period of time. The indicators comprise a tool to assess the progress of a particular development intervention towards achieving gender equality. (Sex-disaggregated data demonstrates whether both women and men are included in the programmes or projects as agents/project staff, and as beneficiaries at all levels). The approach allows for effective monitoring and evaluation.
Kynjuð hagstjórn og fjárlagagerð = Gender budgetingAðferðum kynjasamþættingar beitt við fjárhagsáætlunargerð. Í því felst að kynjasjónarmið eru höfð að leiðarljósi á öllum stigum fjárhagsáætlunargerðar og tekjur og útgjöld eru endurskipulögð í þeim tilgangi að stuðla að jafnrétti kynjanna.

The application of gender mainstreaming in the budgetary process. It means incorporating a gender perspective at all levels of the budgetary process and restructuring revenues and expenditures in order to promote gender equality.
Kynjasamþætting = Gender mainstreamingSú skoðun að jafnréttismál séu mál samfélagsins í heild. Gert er ráð fyrir því að kynferði verði grundvallarforsenda við mótun nýrrar stefnu eða við töku ákvarðana á opinberum vettvangi. Markmiðið er að sjónarhorni kynferðis sé fléttað inn í alla stefnumótun innan samfélagsins, hefðbundin hlutverk kynjanna endurskilgreind og bæði konum og körlum gert kleift að samþætta fjölskyldu- og atvinnulíf.

The view that gender equality issues are issues that concern society as a whole. Gender regarded as a fundamental criterion when new policies are being formulated or when public decisions are being made. The goal is to introduce a gender perspective into all strategic planning within the community, to redefine the traditional roles of the genders and to enable both women and men to integrate family life and professional life.
Kynjajafnvægi = Gender parityJöfn hlutföll kynja í tilteknum störfum, t.d. nefndum og ráðum.

An equal proportion of genders in certain positions, e.g. on committees and in councils.
Kynhlutverk = Gender rolesÞau hlutverk og störf sem kynjunum er ætlað að sinna í samfélaginu sem byggjast oft á stöðluðum hugmyndum um getu og eðli kynjanna.

The roles and tasks that the genders are expected to perform respectively in society and which are often based on stereotypical ideas on the abilities and nature of the genders.
Kynblinda = Gender blindnessUndir merkjum kynhlutleysis er oft litið fram hjá sértækum þörfum og reynslu karla og kvenna. Hlutlaus ákvæði hafa oft verri afleiðingar fyrir annað kynið. Því er nauðsynlegt að hafa kynja- og jafnréttissjónarmið í huga við alla ákvarðanatöku.

The specialised needs and experience of men and women are often ignored under the banners of gender blindness. Neutral provisions often have worse consequences for one of the genders. For this reason, it is necessary to keep gender and gender equality perspectives in mind in all decision-making.
Kyngervi = GenderHugmyndir um félagslegan mun kvenna og karla og tengsl kynjanna sem eru lærðar, breytilegar í tíma og mismunandi innan og milli samfélaga og menningarhópa Þessar hugmyndir mótast af félagslegu umhverfi og lærast í gegnum félagsmótunarferla. Þær ákvarða hvað er álitið viðeigandi fyrir einstaklinga af hvoru kyni. Þær eru háðar samhengi og breytanlegar.

The social differences and relations between men and women that are learned, changeable over time, and have wide variations both within and between societies and cultures. These differences and relationships are socially constructed and are learned through the socialization process. They determine what is considered appropriate for members of each sex. They are context-specific and can be modified.
KISS = KISSEinfaldleiki á að vera aðalmarkmiðið og forðast ætti óþarfa flækjur. Stutt og laggott er lagið.

Simplicity should be a key goal and that unnecessary complexity should be avoided - Keep It Short and Simple.
Jafnrétti kynjanna = Gender equalityKynjajafnrétti byggist á konur og karlar njóti sömu réttinda og tækifæra þannig að hegðun, væntingar, óskir og þarfir kvenna og karla séu jafnmikils metnar. Jafnrétti kynjanna þýðir að kynin séu jafn sýnileg í samfélaginu, þau séu jafn valdamikil og taki þátt í opinberu lífi og einkalífi í jöfnum hlutföllum.

Gender equality is based on women and men enjoying the same rights and opportunities so that behaviour, expectations, wishes and needs of women and men are equally valued. Gender equality means that both genders are equally visible in the community, they have equal power and participate in the public life and the private life to an equal degree.
Innra eftirlit = Internal controlÓaðskiljanlegur þáttur stjórnunareiningar sem fylgist með eftirfarandi þáttum:

• markvirkni og skilvirkni starfseminnar,

• áreiðanleika reikningsskila,

• fylgni við viðeigandi lög og reglugerðir.

 
An integral component of a management structure that provides reasonable assurance that the following objectives are being achieved:

• Effectiveness and efficiency of operations

• Reliability of financial reporting

• Compliance with applicable laws and regulations.
Hagsmunaaðilar = StakeholdersHópar fólks, samtaka og stofnana sem hafa beina eða óbeina hagsmuni af verkefnum, gegna hlutverki í þeim, hafa áhrif á þau eða verða fyrir áhrifum vegna þeirra.

Groups of people, organisations and institutions who have a direct or indirect interest, or a role, in the project, or who affect or are affected by it.
Hagkvæmniúttekt, hagsýnismat = Value for money evaluation (VFM)Mat á hvort að hámarksárangri sé náð ef miðað er við útgjöld, þ.e. hvort gætt er ráðdeildar í rekstri.

Evaluation of whether commitment to ensuring the best results possible are obtained from the money spent.
Hagkvæmniathugun = Feasibility studyMeð henni er metið hvort hagkvæm skilyrði séu fyrir hendi fyrir árangursríka framkvæmd verkefnastoðar.

Assesses if the practical conditions exist for successful implementation of a programme.
Haghafar = BeneficiariesEinstaklingar, hópar eða samtök, hvort sem þeir eru innan eða utan þess markhóps sem þróunarstarfið beinist að, sem hafa beinan eða óbeinan hag af starfinu.

The individuals, groups, or organisations, whether targeted or not, that benefit directly or indirectly, from the development effort.
Gögn, þ.e. réttmæti þeirra = Validity of dataHversu vel gögn og rannsóknir mæla það sem þeim er ætlað að mæla. Réttmæti skiptist í réttmæti hugsmíðar, innra réttmæti, ytra réttmæti og áreiðanleika.

The extent to which the data and research measure what they are supposed to measure. Validity can be divided into construct validity, internal and external validity, and reliability.
Gögn, þ.e. áreiðanleiki þeirra = Reliability of dataHversu mikið samræmi er í mælingum.

How consistent is the measure.
 
Gæðatrygging = Quality assuranceÍ gæðatryggingu felast aðgerðir sem varða mat og endurbætur á verðleika eða gildi verkefnastoðar eða fylgni hennar við settar kröfur. Liðir í gæðatryggingu eru mat, árangursstjórnun, rýni meðan á framkvæmd stendur, úttektir o.s.frv.

Quality assurance encompasses any activity that is concerned with assessing and improving the merit or the worth of a programme or its compliance with given standards. Examples of quality assurance activities include appraisals, result based management, reviews during implementation, evaluations etc.
Grunnviðmið = Base-line dataViðmið sem lýsa stöðu áður en verkefnastoð hefst sem hægt er að miða við síðar og hafa til samanburðar þegar árangur er metinn.

Data describing the situation prior to a programme intervention, against which progress can be assessed or comparisons made.
Geiranálgun = Sector Wide Approach (SWAp)Aðferð við framkvæmd verkefnastoða sem tekur til alls geirans.

Programme-based approach operating at the level of an entire sector.
Gagnsæi = TransparencyHugtakið vísar til þess að einfalt og aðgengilegt sé fyrir hinn almenna borgara að nálgast þau gögn og upplýsingar sem ákvarðanir er varða þeirra hag byggja á og að verklag sé í takt við lög og reglur. Gagnsæi í opinberri stjórnsýslu felur í sér að almenningur hafi aðgang að öllum þeim upplýsingum sem hann þarf til að geta veitt stjórnsýslunni nauðsynlegt aðhald og til að taka upplýstar ákvarðanir.

The concept refers to an easy access for private citizens to data and information that decisions that affect their well-being are based on and that procedures are carried out in accordance with laws and regulations. Transparency in public administration means that the public has access to all of the information it needs to be able to provide the administration with necessary restraint and to make enlightened decisions.
Gagnaöflun = Data Collection ToolsAðferðafræði sem notuð er við auðkenningu upplýsinga og söfnun þeirra, t.d. við úttektir..

Methodologies used to identify information sources and collect information for example during an evaluation.
Færniuppbygging = Capacity buildingFærniuppbygging er ferli sem felur í sér að einstaklingar, skipuheildir og samfélög þrói hæfni sína til að leiða til lykta þau viðfangsefni sem takast þarf á við. Færni byggir á mörgum þáttum. Þar á meðal er kunnátta, geta til að leiða, tengjast öðrum og meta, en einnig þau kerfi og ferlar sem eru umlykjandi, þar á meðal valdakerfi, norm og gildi. Grundvallarmarkmið færniuppbyggingar er að bæta getu sína til að fjalla um, leggja mat á og taka ákvarðir um mikilvægar spurningar sem tengjast vali á hvað skuli gera og hvernig. Skilningur á þörfum þeirra sem um ræðir og á möguleikum og takmörkunum í stöðunni er þar lykilatriði.

Capacity building is a process where individuals, organisations and communities develop their ability to complete the subject matters that need to be tackled. Capacity is based on many factors, including knowledge and an ability to lead, connect with others and evaluate but also the systems and processes that are all around, including power structures, norms and values. The main objective of capacity building is to enhance one's ability to discuss, evaluate and decide on important questions linked to choosing what to do and how. An understanding of the needs of those in question as well as of the possibilities and restrictions of the situation is key. 
Fyrirsjáanleiki = Predictability (of aid)Veitendur þróunaraðstoðar gefa upplýsingar um áætluð framlög til samstarfslands næstu 3-5 árin.

Donors will provide 3-5 year forward information on their planned aid to partner countries.
Framvinduskýrsla = Progress reportReglubundin skýrslugerð fyrir framkvæmd verkefna eða verkefnastoða. Framvinduskýrslur eru vettvangur til að bera saman afrakstur, miðað við áætlanir.

Regular management reporting mechanism of achievements within projects or programmes (description of outputs compared to work plans).
Frammistaða, afköst = PerformanceAð hve miklu leyti þróunaríhlutun eða samstarfsaðili starfar í samræmi við staðla eða viðmiðunarreglur eða nær árangri í samræmi við sett markmið og fyrirætlanir.

The degree to which a development intervention or a development partner operates according to specific criteria/standards /guidelines or achieves results in accordance with stated goals or plans.
Framlag = ContributionFjárhagslegur og/eða faglegur stuðningur við verkefni eða verkefnastoð.

The financial and/or professional support to a project/programme.
Forsendur (Rökrammi) = Assumptions (Logical Framework)Tilgátur um áhættuþætti sem gætu haft áhrif á framvindu eða árangur verkefnis/verkefnastoðar.

Hypotheses about factors or risks which could affect the progress or success of a project/programme.
Fjármögnunaráætlun = Financial planÁætlun sem sýnir framlög ýmissa aðila.

Plan showing contributions from various sources.
 
Fjármálastjórnun = Financial managementNær bæði yfir aðfangastjórnun og fjármálaumsýslu.

Financial management encompasses the two core processes of resource management and finance operations.
Fjármál = FinancialMál sem tengjast tekjum, kostnaði, fjárfestingum og fjármögnun.

Issues related to revenue, costs, investments and funding.
Fjárlagastuðningur við tiltekna geira = Sector (budget) supportUndirflokkur beins fjárlagastuðnings. Í viðræðum stjórnvalda og þeirra sem veita þróunaraðstoðina er lögð áhersla á einstaka geira frekar en almenna stefnu og forgangsröðun stjórnvalda.

Sub-category of direct budget support. Dialogue between donors and partner governments focuses on sector specific concerns rather than on overall policy and budget priorities.
Fjárlagastuðningur – beinn = Direct budget supportFjárlög samstarfslands eru fjármögnuð með fjárframlögum beint frá gjafa inn í ríkissjóð samstarfslandsins, þ.e. fjármagni er ráðstafað í samræmi við reglur viðtökuríkisins um gerð og framkvæmd fjárlaga. Hér er undanskilið eyrnamerkt fjármagn sem rennur í ríkissjóð ef ætlunin er að nýta féð til ákveðinna nota, þ.e. í tiltekið verkefni eða verkefnastoð.

A method of financing a partner country's budget through a transfer of resources from a donor to the partner government's national treasury. The funds thus transferred are managed in accordance with the recipient budgetary procedures. Excluded are funds transferred to the national treasury, with the intention of earmarking the resources for specific uses (programmes or projects).
Fjárlagastuðningur – almennur = General budget supportUndirflokkur beins fjárlagastuðnings. Í viðræðum gjafa og stjórnvalda samstarfslands er lögð áhersla á almenna stefnu og forgangsröðun.

Sub-category of direct budget support. Dialogue between donors and partner governments focuses on overall policy and budget priorities.
Endurskoðunarþjónusta = Audit servicesFelur í sér að faglegur endurskoðandi með viðeigandi löggildingu framkvæmi endurskoðun, þ.e. annaðhvort Ríkisendurskoðun eða sjálfstæður, löggiltur endurskoðandi. Endurskoðun skal framkvæmd samkvæmt alþjóðlegum, faglegum stöðlum sem eiga við viðkomandi fagaðila.

Must be provided by a professional auditor with applicable certification for carrying out the audit, i.e. either the Auditor General in the country or a professional accountant in public practice. Audit must be carried out according to the professional (international) auditing standards applicable for the engaged professional.
Endurskoðunarskýrsla = Audit reportSkýrsla endurskoðanda þar sem m.a. markmiði, umfangi og niðurstöðum endurskoðunarinnar er lýst. Í skýrslu um endurskoðun ársreikninga er skýr, skrifleg endurskoðunaráritun fyrir allan (árs)reikninginn.

The auditor's report where (among other) audit objectives, scope and findings of the audit are described. The report on audit of financial statements contains a clear written audit opinion on the financial statements as a whole.
Endurskoðunarálit = Audit opinionEndurskoðunarálit er veitt án fyrirvara þegar endurskoðandinn kemst að þeirri niðurstöðu að (árs)reikningar gefi sanna og glögga mynd í samræmi við viðeigandi reikningsskilavenju.

An unqualified audit opinion is expressed when the auditor concludes that the financial statements give a true and fair view (or are presented fairly, in all material respects,) in accordance with the applicable financial reporting framework.
Endurskoðun reikninga = Audit of financial statementsEndurskoðun sem unnin er til þess að gefa álit á því hvort reikningar sýni fjárhagsstöðuna réttilega og að öllu leyti í samræmi við skilgreind og viðeigandi viðmið um reikningsskil.

Auditing performed in order to express an opinion on whether the financial statements present fairly, in all material respects the financial position in accordance with an identified and applicable financial reporting framework.
Endurskoðun = AuditSjálfstæð ytri eða innri athugun sem ætlað er eftirfarandi: Að veita fullvissu fyrir því að fjárhagsfærslur og -upplýsingar um aðila séu sannar og réttmætar, meta og votta fjárhagsábyrgð, innra eftirlit og fylgni við viðeigandi lög og reglugerðir, meta frammistöðu og/eða gæðaeftirlit.

An external or internal independent examination which shall do any of the following: Give assurance on the truth and fairness of an entity's financial records and financial information; evaluate and give attestation of financial accountability, internal control or compliance with applicable statutes and regulations; appraise performance and/or quality management.
Endurgjöf = FeedbackHlutaðeigandi aðilum hafa verið kynntar niðurstöður, sem fengist hafa í matsferli, með það að markmiði að stuðla að þekkingu.

The transmission of findings generated through a review process to parties for whom it is relevant and useful so as to facilitate learning.
 
Eignun = AttributionOrsakatengingar milli merkjanlegra eða væntanlegra breytinga og ákveðinnar íhlutunar.

The ascription of a causal link between observed (or expected to be observed) changes and a specific intervention.
Eignarhald = OwnershipHaghafar þróunarverkefna hafa marktæk áhrif á hönnun og framkvæmd þróunarverkefna og teljast „eigendur“ þeirra.

Intended beneficiaries have significant influence over the design and implementation of development projects and are seen as their “owners”.
Efnahagsmál = EconomicMálefni sem lúta að eða tengjast efnahag, framleiðslukerfi eða efnahagsstjórnun.

Issues of or relating to the economy, the system of production and management of material wealth.
Bundin aðstoð = Tied aidSkilyrt aðstoð með laga- og reglusetningarlegum hömlum á samkeppni um þau kaup sem gerð eru fyrir gjafafé.

Conditional aid, with legal and regulatory barriers to open competition for aid funded procurement.
Breytingastjórnun = Change managementFelur í sér skilgreiningar, lýsingu, flokkun, mat, samþykki eða synjun, framkvæmd og staðfestingu breytinga. Allir samstarfsaðilar geta beðið um breytingar. Nauðsynlegt er að stjórna breytingum og kynna þær fyrir viðkomandi hagsmunaaðilum.

Identifies, describes, classifies, assesses, approves or rejects, realises and verifies changes. Changes can be requested by any party and have to be managed and communicated to all relevant interested parties.
Borgarasamtök = Civil society organisationsFjölbreytt flóra samtaka og bandalaga um margvísleg málefni, hugsjónir og hagsmuni sem þátttakendur standa fyrir af eigin hvötum, utan við hið formlega valdakerfi og án þess að vera ætlað að skapa eigendum sínum arð. Mörg borgarasamtök eru knúin áfram, a.m.k. að einhverju leyti, af sjálfboðaliðum. Gert er ráð fyrir að þau hafi formlegt stjórnskipulag og að ábyrgðarskipting sé skýr.

A diverse group of organisations and communities dealing with various issues, ideals and interests which participants represent on their own accord, outside of the formal structures of power and without the purpose of creating profit for its owners. Many civil society organisations are driven, at least in some part, by volunteers. It is assumed that they have a formal organisational structure and that the division of responsibilities is clear.
Borgaralegt samfélag = Civil societyVettvangur, þar sem fólk mætist til orðræðu og athafna, á mótum hins formlega kerfis ríkisvalds, markaðar og fjölskyldu. Borgarasamfélagið getur samanstaðið af margskonar félagasamtökum, hagsmunaaðilasamtökum, trúfélögum, samvinnufélögum, óformlegum hópum og margskonar félagslegum hreyfingum eins og alþjóðasamtökum, háskóla- og rannsóknasamfélaginu og sjálfstæðum fjölmiðlum.

A platform where people meet to have a discourse and act, at the junction of the formal system of governance, the market place and family. Civil society can consist of various organisations, interest groups, religious communities, cooperative enterprises, informal groups and diverse social movements such as international organisations, the academic and research community and independent media.
Bann við mismunum = Laws against discriminationJafnræðisreglan eða bann við mismunun er ein grunnhugmynd mannréttinda og er hana að finna í öllum helstu mannréttindasamningum. Að mismuna merkir að fara í manngreinarálit, koma ólíkt fram við einstaklinga sem eru í sömu stöðu, á grundvelli ákveðinna eiginleika. Þegar komið er fram á þennan hátt, án þess að hlutlægar eða málefnalegar ástæður liggi til grundvallar, þá er brotið gegn jafnræðisreglunni. Allir eiga að vera jafnir fyrir lögum án tillits til kynferðis, aldurs, fötlunar, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, litar, kynhneigðar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.

The principle of equality or laws against discrimination is one of the main basic ideas regarding human rights and it is present in all of the main human rights agreements. To discriminate means to show partiality, to treat people in the same position differently, on the basis of certain qualities. Treating people this way, without objective or factual reasons, goes against the principle of equality. Everyone should be equal under the law without regard to gender, age, disabilities, religion, opinions, ethnic origin, colour, sexual orientation, economic status, lineage or position in any other way.
Áætlun = PlanSafn aðgerða sem ætlað er að ná tilteknu markmiði.

A set of intended actions, through which one expects to achieve a goal.
Áreiðanleiki = ReliabilitySamkvæmni og trúverðugleiki gagna og matsgerða, miðað við gæði tækja, aðferða og athugana sem notuð voru við söfnun og úrvinnslu matsgagna.

Consistency or dependability of data and evaluation judgements, with reference to the quality of the instruments, procedures and analyses used to collect and interpret evaluation data.
Árangursstjórnun = Result based managementÁrangursstjórnun er aðferð sem setur frammistöðu/árangur í brennidepil og metur hvernig til tekst með afurðir, afrakstur og áhrif að aðgerðum. Huga þarf að samhengi og að samræmis sé gætt og að áhersla sé lögð á fagleg vinnubrögð. Stefna og skýr markmið, skipulagðar aðferðir, kerfisbundnar mælingar og eftirfylgni eru helstu áfangar árangursstjórnunar.

Result based management is an approach that puts focus on performance/results and evaluates the success of output, outcome and impact of operations. Context and coordination has to be taken into consideration and emphasis put on professional work practices. Strategy and clear objectives, organised methods, systematic measuring and follow up are the main segments of result based management.
Árangurskeðja = Results chainOrsakasamhengi sem verkefni/verkefnastoð er sett í og þar sem kveðið er á um nauðsynlegt samhengi til að ná tilsettum markmiðum – nánar tiltekið er farið frá aðföngum til aðgerða sem leiða til afurða og að lokum til útkomu og áhrifa.

The causal sequence for a project/programme that stipulates the necessary sequence to achieve desired objectives – beginning with inputs, moving through activities and outputs, and culminating in outcomes and impacts.
Árangur = ResultAfurð, útkoma eða áhrif verkefnis/verkefnastoðar (fyrirhuguð, ekki fyrirhuguð, jákvæð og/eða neikvæð).

The output, outcome or impact (intended or unintended, positive and/or negative) of a project/programme.
Áhættuþáttur = Risk factorAtriði sem gætu (ef þau koma upp) hamlað árangri verkefnastoðar.

Factors that will, if they occur, have an adverse effect on the achievement of planned results of the programme.
Áhættustjórnun = Risk managementFerli við greiningu, mat og viðbrögð við áhættuþáttum og miðlun upplýsinga um þá.

A systematic approach to setting the best course of action by identifying, assessing, acting on and communicating risk issues.
Áhættumildun = Risk mitigationAð draga úr áhættu með því að minnka líkurnar á atburðum sem áhætta fylgir eða, eigi þeir sér stað, að draga úr afleiðingum þeirra.

The act of reducing risk levels by lowering the probability of a risk event's occurrence or reducing its consequence, should it occur.
Áhættumildun = Risk mitigationAð draga úr áhættu með því að minnka líkurnar á atburðum sem áhætta fylgir eða, eigi þeir sér stað, að draga úr afleiðingum þeirra.

The act of reducing risk levels by lowering the probability of a risk event's occurrence or reducing its consequence, should it occur.
Áhættugreining = Risk analysis Athugun á áhættu til að meta mögulegar afleiðingar sérhvers atburðar eða atburða sem geta haft áhrif á það hvort settu marki verði náð.

An examination of risks to assess the probable consequences for each event, or combination of events that may influence the achievement of planned results.
Áhætta - vikmörk = Risk toleranceÁhættuviðmið sem eru ásættanleg.
The level of acceptance of not fully achieving planned results.
Áhætta = RiskÁhætta er skilgreind sem líkur á því að sett markmið náist ekki. Í áhættu felast óvænt atvik og aðstæður sem kunna að hafa neikvæð áhrif á heildarframvindu eða niðurstöður einstakra verkþátta.

Risk refers to the uncertainty that surrounds future events and outcomes. It is the expression of the likelihood and impact of an event with the potential to influence the achievement of planned results.
 
Áhrif = ImpactAfleiðingar starfsemi (verkefnis/verkefnastoðar) á umhverfið eða haghafa. Koma oft í ljós eftir verklok.

The effect of activities (project/programme) on the surroundings or beneficiaries.
Áfangaúttekt = Mid-term EvaluationSjá Úttektir.

Ref. evaluation.
Ábyrgðarskylda = AccountabilitySkylda til að sýna fram á að starfsemi hafi farið fram í samræmi við samþykktar reglur og kröfur eða skylda til að greina réttilega og nákvæmlega frá framkvæmd og niðurstöðum í samræmi við tilskipanir og/eða áætlanir. Með ábyrgðarskyldu er þess krafist að þeir sem taka ákvarðanir séu dregnir til ábyrgðar vegna framkvæmda í þeirra umboði. Nauðsynlegt er að ákveðið skipulag sé fyrir hendi þar sem kveðið er á um ábyrgð, áreiðanleika, traust og gegnsæi í öllum málum viðkomandi þróunarstarfinu og samstarfi aðila.

Obligation to demonstrate that work has been conducted in compliance with agreed rules and standards or to report fairly and accurately on performance and results vis a vis mandated roles and/or plans. Accountability requires that decision makers be held responsible for the exercise of authority invested in them, i.e. that there must be an established structure for addressing responsibility, reliability, confidence and transparency in all relevant matters of development concern and cooperation between partners.
Afurð, afrakstur = OutputsVörur, fjármunir og þjónusta sem eru afrakstur verkefnis/verkefnastoðar.

The products, capital goods, and services which result from a project/ programme.
 
Aðföng = InputÞær bjargir sem notast er við til að framkvæma verkefni/verkefnastoð, þ.m.t. mannauður, fjármunir, sérþekking, tækni og upplýsingar.

The resources used to deliver activities/tasks of a project/programme, including people, money, expertise, technology and information.
Aðgerð, verkþáttur = Activity

Framkvæmd eða starfsemi þar sem nýtt eru aðföng, s.s. fjármagn, tæknileg aðstoð eða annars konar aðföng til að framleiða tiltekna afurð.

Actions taken or work performed through which inputs, such as funds, technical assistance and other types of resources are mobilised to produce specific outputs.

Útgefið efni

Síðast uppfært: 16.6.2020
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum