Hoppa yfir valmynd

Loftferðasamningar og samkomulög (MoU/MoC) Íslands

Loftferðasamningar eru milliríkjasamningar og viðskiptasamningar og hefur utanríkisráðuneytið fyrirsvar við gerð þeirra í samráði við samgönguráðuneytið og Samgöngustofu. Samráði er haft við hagsmunaaðila í því ferli. Samhliða gerð nýrra loftferðasamninga er áhersla lögð á að uppfæra gildandi samninga eins og þörf krefur.

Ísland hefur gert samninga sem heimila flug til yfir 100 ríkja. Samningarnir eru gagnkvæmir og heimila öðrum ríkjum einnig áætlunarflug hingað til lands.

Flestir þeirra eru tvíhliða en einnig eru nokkrir fjölhliða samningar, þar á meðal loftferðasamningurinn við Bandaríkin sem tekur til allra ríkja ESB, Íslands og Noregs og Samningurinn um Stofnun Sameiginlegs Evrópsks Flugsvæðis (ECAA) sem nær til allra ríkja ESB svæðisins, Íslands og Noregs, og 6 ríkja á Balkanskaga.

Greiðar samgöngur við útlönd er lykilatriði fyrir hagsmuni Íslands. Flugiðnaðurinn er ein af undirstöðuatvinnugreinum okkar og öflugt net loftferðasamninga stuðlar að aukinni samkeppni og hagstæðari fargjöldum, ásamt því að tryggja íslenskum flugrekendum aðgang að alþjóðamörkuðum.

Í eftirfarandi yfirliti eru loftferðsamningar Íslands og samkomulög (MoU/MoC). Unnt er að nálgast samningana með því að smella á nafn viðkomandi ríkis í yfirlitinu.

Fyrirvari
Unnið er að því að fullgilda loftferðasamninga. Birting loftferðasamninga á heimasíðu utanríkisráðuneytisins er í upplýsingaskyni og kemur ekki í stað lögformlegrar birtingar loftferðasamninga í C-deild Stjórnartíðinda, í samræmi við 4. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað nr. 15/2005. Sé munur á texta hér á heimasíðunni og í birtum samningi í Stjórnartíðindum, þá gildir textinn eins og hann birtist í Stjórnartíðindum. 

 

Yfirlit yfir loftferðasamninga og samkomulög (MoU/MoC) Íslands við önnur ríki (PDF)

Á ensku / In English - Iceland's Air Services Agreements (PDF)

 
Síðast uppfært: 1.3.2022 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum