Hoppa yfir valmynd

Velsældarvísar

Ríkisstjórn Ísland hefur á undanförnum árum sett áherslur um aukna hagsæld og lífsgæði almennings í forgang við stefnumótun. Árið 2019 voru skilgreindir 39 mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði, oft nefndir velsældarvísar, sem mæla félagslega, umhverfislega og efnahagslega þætti. Ákvörðun um val á mælikvörðum byggði m.a. á könnun á vegum nefndar forsætisráðherra þar sem þátttakendur voru beðnir um að raða þáttum sem snúa að hagsæld og lífsgæðum í mikilvægisröð. 

Mælikvarðarnir eru nú 40 talsins. Þeir taka mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, byggja á opinberum hagtölum og eru samanburðarhæfir við önnur lönd.

Hagstofa Íslands heldur utan um vísasafnið og uppfærir reglulega.

Mælikvarðarnir eru í þremur flokkum og þrettán undirflokkum:

Samfélag

Heilsa

  • Lífslíkur
  • Andleg heilsa
  • Neitar sér um læknisþjónustu

Menntun

  • Menntunarstig
  • Brotthvarf af framhaldsskólastigi
  • Símenntun

Félagsauður

  • Traust til samborgara
  • Kosningaþátttaka
  • Traust til stjórnmálakerfis
  • Stuðningur annarra
  • Þátttaka í skipulögðu félagsstarfi

Öryggi

  • Eignaspjöll
  • Heimilisofbeldi
  • Öryggi í nærumhverfi

Jafnvægi vinnu og einkalífs

  • Löng vinnuvika
  • Óhefðbundinn vinnutími
  • Tvö störf eða fleiri

Efnahagur

Hagkerfið

  • Kaupmáttur
  • Skuldastaða heimila
  • Skuldastaða hins opinbera, heimila og fyrirtækja
  • Þróun verðlags
  • Hagvöxtur

Atvinna

  • Atvinnuleysi
  • Stundar ekki nám, atvinnu eða starfsþjálfun
  • Atvinnuþátttaka
  • Starfsánægja

Húsnæði

  • Lélegt ástand húsnæðis
  • Íþyngjandi byrði húsnæðiskostnaðar

Tekjur

  • Skortur á efnislegum gæðum
  • Ójöfnuður tekna
  • Lágtekjuhlutfall
  • Viðvarandi lágar tekjur

Umhverfi

Loftgæði

  • Losun gróðurhúsalofttegunda
  • Svifryk

Land

  • Árangur í landgræðslu
  • Náttúruverndarsvæði

Orka

  • Endurnýjanleg orka

Úrgangur og endurvinnsla

  • Endurvinnsla úrgangs
  • Magn heimilissorps
 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum