Hoppa yfir valmynd

Leiðbeiningar fyrir íbúakosningar sveitarfélaga

Almennt

Um íbúakosningar sveitarfélaga gilda eftirfarandi ákvæði sveitarstjórnarlaga:

  • 38. gr. um atkvæðagreiðslu fyrir nefnd fyrir hluta sveitarfélags
  • 107. og 108. gr. um atkvæðagreiðslu einstök málefni sveitarfélags
  • 119. gr. um sameiningarkosningar.
  • 133. gr. og 134. gr. a gilda um allar tegundir af íbúakosningum.

Jafnframt gildir reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga nr. 922/2023.

Kjörstjórn

Sveitarstjórn skal kjósa kjörstjórn sem ber ábyrgð á stjórnsýslu og framkvæmd íbúakosninga. Fjöldi fulltrúa skal vera oddatala en að öðru leyti ákveður sveitarstjórn fjölda þeirra. Sveitarstjórn er heimilt að taka ákvörðun um að fela yfirkjörstjórn sveitarfélagsins, sem kosin er á grundvelli kosningalaga, hlutverk kjörstjórnar vegna íbúakosninga og skal yfirkjörstjórn tilkynnt það sérstaklega. Kjörstjórn getur falið starfsfólki sveitarfélaga störf í tengslum við framkvæmd kosninga.

Vegna sameiningar sveitarfélaga skulu viðkomandi sveitarstjórnir kjósa fulltrúa í sameiginlega kjörstjórn, eftir nánara samkomulagi þeirra. Miða skal við að hvert sveitarfélag hafi a.m.k. einn fulltrúa í kjörstjórn og að fjöldi nefndarmanna sé oddatala. Viðkomandi sveitarstjórnum er heimilt að skipa undirkjörstjórn í hverju sveitarfélagi fyrir sig með þremur til fimm fulltrúum.  Sjá nánar í kosningu vegna sameiningar sveitarfélaga

Verkefni kjörstjórnar

Hlutverk kjörstjórnar er m.a. að:

  1. Halda kosningu og annast undirbúning og framkvæmd hennar, þ.m.t. sjá um talningu og lýsa úrslitum kosningar.
  2. Útbúa kjörgögn, þ.m.t. eyðublöð vegna aðstoðarmanns kjósanda sbr. 11 gr. og kjörgögn vegna póstkosningar, sbr. 10. gr.
  3. Veita almenningi, frambjóðendum, fjölmiðlum og öðrum sem annast framkvæmd kosninga upplýsingar, fræðslu og leiðbeiningar.
  4. Hafa samvinnu og samráð við viðeigandi aðila, félagasamtök og stofnanir við undirbúning og framkvæmd kosninga og birta niðurstöður kosninga opinberlega.

Skýrsla kjörstjórnar

Kjörstjórn heldur ekki gerðarbók heldur skilar skýrslu til sveitarstjórnar um framkvæmd kosningarinnar. Í skýrslunni skal m.a. fjallað um:

  • Fjölda kjörstaða og opnunartíma þeirra
  • Fjölda ónotaðra kjörseðla í vörslu kjörstjórnar og tilhögun vörslu
  • Fjölda ágreiningsatkvæða, atkvæði sem hafa borist með pósti, sbr. 10. gr., atkvæði sem ónýtast
  • Atkvæði sem berast eftir að kosningu er lokið
  • Kjörsókn í sveitarfélagi
  • Aðstoðarmenn kjósenda og ákvarðanir tengdar þeim
  • Lok atkvæðagreiðslu og upphaf talningar
  • Móttöku atkvæðakassa frá kjörstöðum
  • Ákvarðanir um gildi atkvæða
  • Niðurstöðu talningar
  • Lok talningar og frágang og vörslu kjörgagna
  • Eyðingu kjörgagna og aðrar ákvarðanir
  • Afgreiðslur eða upplýsingar sem varða undirbúning og framkvæmd kosninga sem kjörstjórn telur rétt að upplýsa sveitarstjórn um

Hæfi kjörstjórnar

Um hæfi kjörstjórnar gilda sambærilegar reglur og í kosningalögum. Kjörstjórnarmaður skal víkja sæti ef til úrskurðar er mál er varðar maka hans eða sambúðarmaka, enda sé sambúðin skráð í þjóðskrá, eða þann sem er skyldur honum eða mægður í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti við ættleiðingu og ef að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.

Ágreiningi um hæfi kjörstjórnarmanns má skjóta til ráðuneytis sveitarstjórnarmála, sbr. 19. gr.

Kosningaréttur og kjörskrá

Um kosningarétt í íbúakosningum gilda sambærilegar reglur og um kosningarétt í kosningum til sveitarstjórnar að því undanskildu að námsmenn sem hafa lögheimili erlendis hafa ekki kosningarrétt í íbúkosningum.

Þá er sveitarstjórn er heimilt að miða kosningaaldur í íbúakosningu við 16 ár og miða skal við að kjósandi hafi náð þeim aldri sem kosningarréttur miðar við á lokadegi atkvæðagreiðslu, standi atkvæðagreiðslan yfir tiltekið tímabil.

Kjörskrá 

Reglur um kjörskrá í íbúakosningum er eingöngu að finna í reglugerð ráðuneytisins um íbúakosningar. Um gerð kjörskrár og leiðréttingu hennar í íbúakosningum gilda hins vegar að mestu leyti sambærilegar reglur og finna má í kosningalögum.

Meginreglan er sú að á kjörskrá hvers sveitarfélags við íbúakosningar eru þau sem hafa kosningarétt og skráð voru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár klukkan 12 að hádegi, 22 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.

Eins og á við um almennar kosningar þá gerir Þjóðskrá Íslands kjörskrá fyrir íbúakosningu sveitarfélaga og notast er við prentaða kjörskrá sem Þjóðskrá Íslands er heimilt að afhenda með rafrænum hætti. Í kjörskrá er skráð nafn kjósenda, kennitölu, lögheimili, kyn og ríkisfang. Tilkynna þarf Þjóðskrá Íslands um boðaða atkvæðagreiðslu og á hvaða tímabili hún fer fram eigi síðar en 30 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst

Þjóðskrá Íslands tilkynnir sveitarfélagi að gerð hafi verið kjörskrá jafnskjótt og gerð hennar er lokið og eigi síðar en 20 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.

Kjörskrá skal vera aðgengileg almenningi til skoðunar á skrifstofu sveitarstjórnar eða öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn ákveður, eigi síðar en 14 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst. Sveitarfélag skal kynna íbúum að gerð hafi verið kjörskrá og hvar hún er aðgengileg á þann hátt á hverjum stað þar sem venja er að birta opinberar auglýsingar, til að mynda á vefsíðu sveitarfélagsins.

Þegar Þjóðskrá Íslands hefur tilkynnt sveitarfélagi að gerð hafi verið kjörskrá er sveitarstjórn heimilt að óska eftir því að opnað verði fyrir uppflettingu í henni á vef Þjóðskrár Íslands og annast sveitarstjórn þá kostnað af því. Að loknum kjördegi skal loka fyrir uppflettingu í kjörskrá.

Leiðréttingar á kjörskrá og kærur

Um leiðréttingar á kjörskrá og kærur gilda sambærilegar reglur og í kosningalögum.

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands sem tekur þær þegar til meðferðar og gerir viðeigandi leiðréttingar ef við á.

Sérstök athygli er vakin á því að slíkar leiðréttingar má gera þar til að atkvæðagreiðslu er lokið.

Heimilt er að leiðrétta kjörskrá ef:

  1. Þjóðskrá Íslands hefur láðst að skrá lögheimili kjósanda til samræmis við tilkynningu hans um flutning
  2. Þjóðskrá Íslands berst vitneskja um andlát kjósanda
  3. Þjóðskrá Íslands berst vitneskja um að erlendur ríkisborgari hafi öðlast íslenskt ríkisfang eða að kjósandi hafi misst íslenskt ríkisfang
  4. íslenskur ríkisborgari, sem aldrei hefur átt lögheimili hér á landi, flyst til landsins og skráir lögheimili sitt hér á landi eftir viðmiðunardag kjörskrár
  5. Þjóðskrá Íslands verður þess að öðru leyti áskynja að villa hafi verið gerð við skráningu kjósanda við kjörskrárgerðina

Þjóðskrá Íslands sendir hlutaðeigandi kjörstjórn, og viðkomandi kjósanda, ef við á, tilkynningu um leiðréttingar sem hún gerir á kjörskrá, svo að þær megi færa á prentuð kjörskráreintök.

Óheimilt er að færa á prentuð kjörskráreintök aðrar leiðréttingar en þær sem Þjóðskrá Íslands heimilar. Leiðréttingar á prentuð kjörskráreintök skulu gerðar í samræmi við leiðbeiningar Þjóðskrá Íslands.

Heimilt er að skjóta ákvörðun Þjóðskrár Íslands um leiðréttingar á kjörskrá til ráðuneytis sveitarstjórnarmála innan sólarhrings frá dagsetningu hennar. Ráðuneytið veitir kæranda hæfilegan frest til að koma að frekari gögnum áður en það fellir úrskurð í málinu.

Framkvæmd íbúakosninga

Kjörgögn

Í íbúakosningum gilda sambærilegar reglur um kjörseðil og í almennum kosningum.

Kjörseðill í slíkum kosningum skal a.m.k. vera 160 g/m² að þyngd, og þá skal brjóta saman í prentsmiðju með þeim hætti að óprentaða hliðin snúi út. Við slíkar kosningar skal jafnframt miða fjölda prentaðra kjörseðla að lágmarki við áætlaðan fjölda kjósenda á kjörskrá að viðbættu 1%.

Sú grundvallarregla gildir um allar íbúakosningar að kjörseðlar mega ekki vera auðkenndir með þeim hætti að þeir séu rekjanlegir til kjósanda.

Um varðveislu atkvæðaseðla gilda þær reglur að kjörstjórn og fulltrúar hennar skulu varðveita ónotaða kjörseðla í innsigluðu íláti eða fyrir luktum dyrum sem jafnframt skulu innsiglaðar.

Eftir talningu atkvæða skulu kjörseðlar varðveittir með tryggum hætti þangað til kærufrestur er liðinn. Eigi síðar en ári eftir að atkvæðagreiðslu er lokið skal kjörstjórn eyða notuðum og ónotuðum atkvæðaseðlum enda sé þá ágreiningsmálum um gildi og framkvæmd kosninga lokið.

Hafa skal samband við Landskjörstjórn vegna kjörkassa.

Tímabil atkvæðagreiðslu

Sveitarstjórn ákveður, eða felur byggðarráði eða kjörstjórn að ákveða, á hvaða tímabili íbúakosningar fara fram.

Tímabilið skal minnst vara í tvær vikur og að hámarki fjórar vikur. Heimilt er að hefja atkvæðagreiðslu í fyrsta lagi 20 dögum eftir að til hennar er boðað. Atkvæðagreiðsla telst hafin þegar opnað er fyrir atkvæðagreiðslu á kjörstað.

Almennt um kjörstaði

Sveitarstjórn ákveður staðsetningu og fjölda kjörstaða, skiptingu í kjördeildir og opnunartíma kjörstaða eða felur byggðarráði eða kjörstjórn að taka slíkar ákvarðanir.

Meginreglan er sú að reglulegur opnunartími skal vera a.m.k. á einum kjörstað innan sveitarfélagsins á því tímabili sem atkvæðagreiðsla á sér stað á virkum dögum, t.d. á opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins.

Að öðru leyti skal leitast við að fjöldi kjörstaða og opnunartími þeirra sé í samræmi við fjölda íbúa og vegalengdir innan sveitarfélagsins og að kjörstaður sem er með reglulegan opnunartíma hafi gott aðgengi m.t.t. hjólastóla og annarra hjálpartækja. Á hverjum kjörstað skal vera aðstaða þar sem hægt er að greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi greiðir atkvæði.

Hvert sveitarfélag er ein kjördeild. Sveitarstjórn getur þó ákveðið, eða falið byggðarráði eða kjörstjórn að ákveða, að í sveitarfélaginu verði fleiri en ein kjördeild. Ef sveitarfélagi er skipt upp í kjördeildir er kjósanda einungis heimilt að greiða atkvæði í sinni kjördeild. Á sama kjörstað mega vera fleiri en ein kjördeild og kjördeildir skal að jafnaði tölusetja til aðgreiningar.

Í auglýsingu um íbúakosningar skal koma fram á hvaða tíma atkvæðagreiðsla fer fram, fjöldi kjörstaða og fjöldi kjördeilda eftir atvikum, og aðrar nauðsynlegar leiðbeiningar varðandi atkvæðagreiðsluna.

Flutningur á kjördeild

Heimilt er að flytja kjördeild frá einum kjörstað til annars í ákveðinn tíma, en óheimilt er að hafa sömu kjördeild opna á tveimur stöðum samtímis. Í þessari reglu felst m.a. að heimilt er að láta allar kjördeildir kjósa á kjörstað sem er með reglulegum opnunartíma, en á ákveðnum dögum t.d. á lokadegi atkvæðagreiðslu, er heimilt að opna annan kjörstað fyrir tilteknar kjördeildir.

Sem dæmi má taka að í sveitarfélagi eru þrjár kjördeildir, A, B og C fyrir þrjá þéttbýlisstaði. Allar kjördeildir kjósa á kjörstað sem er með reglulegan opnunartíma. Á síðustu þremur dögum atkvæðagreiðslunnar (eða á öðrum tímum sem ákveðnir eru fyrirfram) eru tveir nýir kjörstaðir opnaðir fyrir kjördeildir B og C en kjördeild A kýs áfram á þeim kjörstað sem hefur reglulegan opnunartíma.

Þar sem notast þarf við prentaða kjörskrá geta kjördeildir B og C ekki kosið á kjörstað sem er með reglulegan opnunartíma meðan kosning fer fram í kjördeildunum á öðrum kjörstöðum.

Þá gildir sú almenna regla kosningalaga að þau sem sinna atkvæðagreiðslunni skulu gæta þess að ekki fari fram kosningaáróður eða kosningaspjöll né önnur starfsemi sem truflar eða hindrar framkvæmd íbúakosninga á og við kjörstað. Það á þó ekki við um almennar upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eða kosningatillöguna sem sveitarfélagið hefur útbúið.

Framkvæmd atkvæðagreiðslunnar

Atkvæðagreiðsla í íbúakosningum fer fram með sambærilegum hættum og við almennar kosningar.

Kjósandi skal gera grein fyrir sér, svo sem með því að framvísa persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd eða á annan fullnægjandi hátt að mati þeirra sem sinna atkvæðagreiðslunni. Merkja skal við nafn kjósanda í kjörskrá áður en hann neytir kosningarréttar síns. Eigi kjósandi rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni skal fulltrúi kjörstjórnar afhenda kjósanda kjörseðil. Þegar kjósandi hefur tekið við kjörseðlinum fer hann með hann þar sem hægt er að greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi greiðir atkvæði.

Kjósandi markar með skriffæri eða stimpli sem kjörstjórn leggur til X í ferning framan við þann svarkost á kjörseðlinum sem hann greiðir atkvæði sitt, brýtur atkvæðið saman og leggur atkvæðið í kjörkassa í viðurvist þeirra sem sinna atkvæðagreiðslunni.

Láti kjósandi sjá hvað er á seðli hans eða ef hann hefur gert mistök við merkingu hans er seðillinn ónýtur og má ekki leggja hann í atkvæðakassann. Á kjósandi þá rétt á að fá nýjan kjörseðil og skal hann þá afhenda þeim sem sinna atkvæðagreiðslunni hinn fyrri seðil.

Hreyfanlegur kjörstaður

Heimilt er að ákveða hreyfanlegan kjörstað, þ.e. kjörstaður sem ekki er bundinn við tiltekna staðsetningu á þeim tíma sem kosning fer fram. Hér mætti nefna kosningabíl sem komið er fyrir á ákveðnum stöðnum.

Auglýsa skal hvar og hvenær atkvæðagreiðsla með hreyfanlegum kjörstað, fer fram með fimm daga fyrirvara.

Heimilt er að hafa hreyfanlegan kjörstað í sveitarfélagi sem ekki heldur íbúakosningu, með samþykki viðkomandi sveitarfélags.

Atkvæðagreiðsla á heilbrigðisstofnunum

Leitast skal við að atkvæðagreiðsla fari einnig fram innan sveitarfélags þar sem kjósendur eiga erfitt um vik að mæta á kjörstað, svo sem þar sem kjósendur eru með lögheimili á heilbrigðisstofnunum og stofnunum fyrir fatlað fólk. Áréttað er í reglugerðinn að heimilt sé að ákveða sérstaka kjördeild fyrir staði þar sem kjósendur eiga erfitt um vik að mæta á kjörstaði.

Athygli er vakin á því að ef sérstök kjördeild er ekki ákveðin á heilbrigðisstofnun, getur kosning eingöngu farið þar fram þegar kjörstaður með reglulegum opnunartíma er lokaður, þar sem kosning í kjördeild getur ekki farið fram á tveimur stöðum samtímis.

Ef skal gætt að því, að ef ákveðin er sérstök kjördeild fyrir heilbrigðisstofnun, Atkvæðagreiðsla fyrir viðkomandi kjördeild skal einnig fara fram á þeim kjörstað sem er með reglulegan opnunartíma, nema á því tímabili sem atkvæðagreiðsla fer fram á viðkomandi stofnun.

Framkvæmd atkvæðagreiðslu á heilbrigðisstofnun fer þannig fram að kjörstjórn auglýsir atkvæðagreiðslu með a.m.k. 5 daga fyrirvara á vefsíðu sveitarfélagsins og á viðkomandi stofnunum. Hlutaðeigandi stofnun skal láta í té hentuga aðstöðu, svo og eftir atvikum aðstoðarfólk, þannig að atkvæðagreiðsla geti gengið sem greiðast fyrir sig og með fyrirskipuðum hætti. Kjósanda ber að koma á fund fulltrúa kjörstjórnar þar sem atkvæðagreiðslan fer fram með sama hætti og á hefðbundnum kjörstað.

Atkvæðagreiðsla má aðeins fara fram á sjúkrastofu eða í herbergjum heimilismanna dvalarheimila og fatlaðs fólks eða vistmanna, ef það er verulegum vandkvæðum háð að flytja kjósanda á fund fulltrúa kjörstjórnar.

Póstatkvæðagreiðsla

Veita skal kjósendum möguleika á að greiða atkvæði sitt með pósti í íbúakosningu. Um er að ræða nýmæli í framkvæmd opinberra kosninga og er framkvæmdinni lýst ítarlega í 10. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.

Framkvæmd póstatkvæðagreiðslu fer þannig fram að kjósandi óskar eftir því við kjörstjórn að fá kjörgögn send til sín á það heimilisfang eða það netfang sem hann gefur upp. Ákveða þarf því hvernig kjósandi kemur beiðni sinni á framfæri. Getur það t.d. farið fram með þeim hætti að kjörstjórn auglýsi sérstakt netfang þar sem beiðnin skal sett fram. Gæta skal að því að halda skrá utan um þá kjósendur sem fá kjörgögn send til sín þar sem atkvæði telst ógilt ef það berst frá kjósanda sem ekki er á slíkri skrá.

Í auglýsingu sveitarfélags um íbúakosningar skal koma fram hvernig póstatkvæðagreiðsla fer fram og hvenær umsókn skal í síðasta lagi berast kjörstjórn.

Óski kjósandi eftir að fá atkvæði sent á heimilisfang er atkvæðaseðill ásamt sendiumslagi, kjörseðilsumslagi og fylgibréfi sent til kjósanda á umbeðið heimilisfang. Kjósandi merkir við atkvæðið og leggur það í kjörseðilsumslagið í viðurvist tveggja lögráða votta eða lögbókanda. Kjósandi fyllir út fylgibréf og leggur það og atkvæðisumslag í sendiumslagið.

Óski kjósandi eftir að fá kjörgögn send rafrænt eru þau send á umbeðið netfang. Atkvæðaseðill og fylgibréf eru prentuð út og kjósandi merkir við atkvæðið og leggur það í umslag sem kjósandi útvegar sjálfur. Umslagið og fylgibréf eru lögð í annað umslag sem kjósandi útvegar einnig sjálfur.

Þá gildir sú regla að kjósandi annast sjálfur sendingu atkvæðis til kjörstjórnar og ber kostnað af sendingu bréfsins.

Á fylgibréfi vegna póstkosningar skulu vera þau atriði sem talin eru upp í 10. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga. Hér er að finna dæmi um slíkt fylgibréf.

Athugist að ef kjósandi þarfnast aðstoðar við að greiða atkvæði með pósti getur hann notið aðstoðar sérstaks aðstoðarmanns og skal þess getið á fylgibréfi.

Aðstoðarmenn kjósenda

Um aðstoðarmenn kjósenda gildir 11. gr. reglugerðar um íbúakosningar. Reglurnar er samhljóða þeim reglum sem gilda um aðstoðarmenn kjósenda í almennum kosningum.

Talning atkvæða

Um talningu atkvæða gildir 12. gr. reglugerðar um íbúakosningar. Reglurnar eru sambærilegar þeim reglum sem gilda um talningu atkvæða í kosningalögum m.a. um að talning atkvæða fari fram fyrir opnum dyrum og að auglýsa skuli sérstaklega hvar talning fari fram. 

Þá gildir sú regla að ekki er heimilt að hefja talningu atkvæða fyrr en öllum kjörstöðum hefur verið lokað á síðasta degi atkvæðagreiðslunnar en heimilt er að hefja flokkun atkvæða og undirbúa talningu þeirra áður en atkvæðagreiðslu er lokið með sama hætti og í almennum kosningum.

Þá gilda sömu reglur um talningastjóra, flokkun, afstemmingu, og framkvæmd á talningu atkvæða og í almennum kosningum.

Það er hlutverk kjörstjórnar að upplýsa um niðurstöðu talningar skal það gert með opinberum hætti og a.m.k. á vefsíðu sveitarfélagsins.

Talning póstatkvæða

Um talningu póstatkvæða gilda sambærilegar reglur og á við um talningu utan kjörfundaratkvæði í almennum kosningum.

Heimilt er að opna sendiumslög vegna atkvæða sem greidd eru með pósti af a.m.k. tveimur fulltrúum kjörstjórnar áður en atkvæðagreiðslu er lokið.

Ef óvíst er um gildi atkvæðisins skal taka fylgibréf og atkvæðisumslag til hliðar og skal kjörstjórn leggja mat á gildi atkvæðis. Ef taka skal atkvæðið til greina skal setja sérstakt merki til bráðabirgða við nafn kjósandans í kjörskránni, en kjörseðilsumslagið óopnað ásamt fylgibréfinu skal lagt á ný í sendiumslagið og það lagt til hliðar og varðveitt meðan atkvæðagreiðsla fer fram. Ef ekki skal taka atkvæðið til greina skal ganga frá kjörseðilsumslaginu og fylgibréfinu og varðveita á sama hátt, en rita skal ástæðu þess að atkvæðið verður ekki tekið til greina á sendiumslagið. Ef ekki eru gerðar athugasemdir við fylgibréfið og kjósanda, skal atkvæðisumslag sent til talningar þegar hún hefst þar sem atkvæðið er tekið úr kjörseðilsumslagi og atkvæðið talið með hefðbundnum hætti.

Atkvæði greitt með pósti telst ógilt ef það er ekki í sérstöku atkvæðisumslagi, atkvæðisumslag er ekki lokað, fylgibréfið er ekki rétt útfyllt eða undirritað eða það eru fleiri en eitt atkvæði í atkvæðisumslagi.

Þá gildir sú regla að ekki skuli taka til greina atkvæði sem berst til kjörstjórnar eftir að atkvæðagreiðslu er lokið, ef atkvæði berst frá kjósanda sem ekki er á skrá um að hafa óskað eftir kjörgögnum eða ef kjósandi hefur þegar greitt atkvæði á kjörstað. Kjósandi sem greiðir atkvæði með pósti getur því greitt atkvæði sitt á kjörstað, einu sinni, og ógilt þar með atkvæði sitt sem greitt var með pósti.

Ógild atkvæði

Sambærilega reglur gilda um ógildingu atkvæða og í almennum kosningum. Fjallað er um ógildingu atkvæða í 13. gr. reglugerðar um íbúakosningar. Þar kemur fram að atkvæði skuli meta ógilt ef:

  • kjörseðill er auður,
  • ekki má með öruggum hætti sjá hvaða svarkosti kjósandi hefur viljað greiða atkvæði sitt,
  • ætla má að merki eða áletrun á kjörseðli séu sett af ásettu ráði til að gera seðilinn auðkennilegan,
  • kjörseðill er ekki sá sem kjörstjórn hefur látið gera.

Við mat á gildi atkvæðis þegar sveitarstjórn hefur ákveðið að spurningar á kjörseðli séu fleiri eða orðaðar með öðrum hætti, skal meta gildi hverrar spurningar sjálfstætt. Ekki skal meta atkvæði ógilt í heild þó kjósandi hafi ekki tjáð eða mistekist að tjá afstöðu sína til einstakra spurninga á kjörseðli, enda sé atkvæði að öðru leyti gilt.

Atkvæði skal ekki meta ógilt, þó að gallað sé, ef greinilegt er hvernig það á að falla nema það augljóslega brjóti í bága við einn eða fleiri stafliði 1. mgr. Þannig skal taka gilt atkvæði þó að ekki sé merkt í ferning við svarmöguleika en t.d. utan hans, þó að X sé ólögulegt, þó að hak sé sett í ferning í stað X o.s.frv.

Ef ágreiningur verður innan kjörstjórnar um hvort atkvæði telst gilt, skal kjörstjórn greiða um það atkvæði.

Íbúakosningar um einstök málefni að frumkvæði sveitarstjórnar og ekki er bindandi

Kosningaréttur

Í kosningum um einstök málefni sveitarfélags sem fram fara að frumkvæði sveitarstjórnar og eru ekki bindandi er sveitarstjórn heimilt að gera eftirfarandi breytingar á kosningarétti íbúa.

  • að kosningarréttur sé bundinn ákveðnum aldri
  • að kosningarréttur sé bundinn við lögheimili í tilteknum hluta sveitarfélags,
  • ·og/eða að ekki sé gerð krafa um ríkisfang eða búsetutíma.

Ákvörðun sveitarstjórnar um breytingar á kosningarétti er háð því skilyrði að hægt sé að gefa út kjörskrá fyrir þann hóp kjósenda sem um ræðir.

Kjörgögn

Ekki er gerð krafa um sérstaka þyngd kjörseðla eða að kjörgögn skuli vera innsigluð en hins vegar gilda þær reglur kjörseðlar skulu vera úr haldgóðum pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum. Þá skulu ónotaðir kjörseðlar varðveittir með tryggum hætti.

Tímabil atkvæðagreiðslu

Sveitarstjórn er heimilt að ákveða, eða fela byggðarráði eða kjörstjórn að ákveða, að atkvæðagreiðsla fari fram á styttra tímabili, en skal atkvæðagreiðsla þó að lágmarki vara í átta klukkustundir. Þó má hætta atkvæðagreiðslu ef allir sem eru á kjörskrá hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

Sameiningarkosningar

Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga eða viðkomandi sveitarstjórnir skulu kynna íbúum sveitarfélaganna þá tillögu sem greiða skal atkvæði um og helstu forsendur hennar með a.m.k. 20 daga fyrirvara, svo sem með kynningarfundum og/eða dreifibréfum. Tillagan skal innan sama frests auglýst opinberlega í Lögbirtingablaði og í fjölmiðlum.

Vegna sameiningar sveitarfélaga skulu viðkomandi sveitarstjórnir kjósa fulltrúa í sameiginlega kjörstjórn, eftir nánara samkomulagi þeirra. Miða skal við að hvert sveitarfélag hafi a.m.k. einn fulltrúa í kjörstjórn og að fjöldi nefndarmanna sé oddatala.

Viðkomandi sveitarstjórnum er heimilt að skipa undirkjörstjórn í hverju sveitarfélagi fyrir sig með þremur til fimm fulltrúum og fela henni að halda kosningu í viðkomandi sveitarfélaga, annast undirbúning og framkvæmd hennar.  Einnig að veita almenningi, frambjóðendum, fjölmiðlum og öðrum sem annast framkvæmd kosninga upplýsingar, fræðslu og leiðbeiningar.

Sveitarstjórn lætur gera atkvæðaseðil til afnota við atkvæðagreiðslu vegna sameiningar sveitarfélaga. Form atkvæðaseðils skal staðfest af ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Ákvörðun um að lækka kosningaaldur í 16 ár, sbr. 2. mgr. 2. gr., þarf samþykki allra viðkomandi sveitarstjórna.

Kosningar í nefnd fyrir hluta sveitarfélags

Reglur um kosningu í nefnd fyrir hluta sveitarfélags

Sveitarfélög setja sér reglur um hvernig kosið skuli í nefnd fyrir hluta sveitarfélagsins, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga, og skulu reglurnar birtar í Stjórnartíðindum eigi síðar en 30 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst. Í reglum skal koma fram hvernig kosið skal í nefnd fyrir hluta sveitarfélags. Heimilt er að ákveða að fram fari hlutfallskosning, óbundin kosning, eða hver sú tegund af kosningu sem sveitarstjórn telur heppilegasta.

Kjörgengi

Kjörgengur í nefnd fyrir hluta sveitarfélags er hver sá sem hefur kosningarrétt í sveitarfélaginu skv. 133. gr. sveitarstjórnarlaga. Heimilt er mæla frekar fyrir um kjörgengi nefndarmanna í reglum sveitarfélags um íbúakosningar.

Kjörgögn

Ekki er gerð krafa um sérstaka þyngd kjörseðla eða að kjörgögn skuli vera innsigluð en hins vegar gilda þær reglur að kjörseðlar skulu vera úr haldgóðum pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum. Þá skulu ónotaðir kjörseðlar varðveittir með tryggum hætti.

Tímabil atkvæðagreiðslu

Sveitarstjórn er heimilt að ákveða, eða fela byggðarráði eða kjörstjórn að ákveða, að atkvæðagreiðsla fari fram á styttra tímabili en tvær-fjórar vikur en skal atkvæðagreiðsla þó að lágmarki vara í átta klukkustundir og þá mest fjórar vikur. Þó má hætta atkvæðagreiðslu ef allir sem eru á kjörskrá hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

Kærur, uppkosning og fleira

Kærur um ólögmæti íbúakosninga skulu sendar ráðuneyti sveitarstjórnarmála til úrlausnar innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga.

Uppkosning fer fram ef kosning ferst fyrir af óviðráðanlegum orsökum eða ef kosning hefur verið úrskurðuð ógild. Í íbúakosningum um einstök málefni sem fara fram að frumkvæði sveitarstjórnar og ekki eru bindandi ákveður sveitarstjórn hvort uppkosning fari fram.

Tímalína íbúakosninga

  • Sveitarfélag skal tilkynna Þjóðskrá Íslands um boðaða atkvæðagreiðslu og á hvaða tímabili hún fer fram eigi síðar en 30 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
  • Sveitarfélög setja sér reglur um hvernig kosið skuli í nefnd fyrir hluta sveitarfélagsins og skulu reglurnar birtar í Stjórnartíðindum eigi síðar en 30 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
  • Á kjörskrá hvers sveitarfélags við íbúakosningar eru þau sem hafa kosningarétt og skráð voru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár klukkan 12 að hádegi, 22 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
  • Þjóðskrá Íslands tilkynnir sveitarfélagi að gerð hafi verið kjörskrá jafnskjótt og gerð hennar er lokið og eigi síðar en 20 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
  • Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga eða viðkomandi sveitarstjórnir skulu kynna íbúum sveitarfélaganna þá tillögu sem greiða skal atkvæði um og helstu forsendur hennar með a.m.k. 20 daga fyrirvara, svo sem með kynningarfundum og/eða dreifibréfum. Tillagan skal innan sama frests auglýst opinberlega í Lögbirtingablaði og í fjölmiðlum.
  • Til atkvæðagreiðslu um einstök málefni sveitarfélags skal boða með a.m.k. 20 daga fyrirvara með opinberri auglýsingu. Samhliða skal sveitarstjórn opinberlega kynna þá tillögu sem borin verður undir atkvæði og þær upplýsingar sem kjósendum eru nauðsynlegar til að geta tekið til hennar upplýsta afstöðu.
  • Kjörskrá skal vera aðgengileg almenningi til skoðunar á skrifstofu sveitarstjórnar eða öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn ákveður, eigi síðar en 14 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst. Sveitarfélag skal kynna íbúum að gerð hafi verið kjörskrá og hvar hún er aðgengileg á þann hátt á hverjum stað þar sem venja er að birta opinberar auglýsingar.
  • Tímabil atkvæðagreiðslu um einstök málefni sveitarfélagsins sem fram fara að frumkvæði íbúa sveitarfélagsins og/eða er bindandi og sameiningarkosningar skal minnst vara í tvær vikur og að hámarki fjórar vikur.
  • Íbúakosningar sem fram fara að frumkvæði sveitarstjórnar og ekki eru bindandi og kosningar í nefnd sem fer með málefni fyrir hluta sveitarfélags, geta farið fram á styttra tímabili, en skal atkvæðagreiðsla þó að lágmarki vara í átta klukkustundir.
  • Framkvæmd atkvæðagreiðslu á heilbrigðisstofnun skal auglýst með a.m.k. 5 daga fyrirvara á vefsíðu sveitarfélagsins og á viðkomandi stofnunum.
  • Auglýsa skal með fimm daga fyrirvara hvar og hvenær atkvæðagreiðsla með hreyfanlegum kjörstað fer fram.
  • Kjörstjórn skal auglýsa a.m.k. sjö dögum fyrir lok atkvæðagreiðslu hvar og hvenær talning atkvæða fer fram. Heimilt er að auglýsa talningu eingöngu á vef sveitarfélags. Velja skal hentugt húsnæði fyrir talningu atkvæða þar sem aðgengi er gott.
  • Kærur um ólögmæti íbúakosninga skulu sendar ráðuneyti sveitarstjórnarmála til úrlausnar innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga.
  • Atkvæðaseðla og kjörskrár skal geyma þar til kærufrestur kosninga er liðinn eða fullnaðarúrskurður um gildi þeirra hefur verið uppkveðinn enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Eigi síðar en ári eftir kjördag skal kjörstjórn eyða atkvæðaseðlum og kjörskrám enda sé þá ágreiningsmálum um gildi og framkvæmd kosninganna lokið.
Síðast uppfært: 17.10.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum